Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.2007, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.2007, Blaðsíða 19
DV Mannanöfn þriðjudagur 14. ágúst 2007 19 Ef þú hétir ekki þínu nafni, hvað vildir þú heita? „Ég hugsa að ég myndi vilja heita Hallgrímur eða Sveinbjörn. Hvoru tveggja hljómar ágætlega. Það væri líklega betra að heita Hallgrímur þar sem foreldrar mínir skírðu okk- ur öll systkinin seinni nöfnum sem byrja á h; Hrannar, Hróar, Hnikarr, Hjörvar og Hrund. Við bræðurnir erum allir kallaðir seinni nöfnun- um okkar svo Hallgrímur félli betur í kramið.“ Hvernig fannst þér nafnið þitt í æsku? „Það angraði mig nú ekki mik- ið. Mér var aldrei strítt af því svo ég muni, enda er svo fátt sem rímar við Hnikarr. Það var helst bikar en það er nú bara jákvætt orð svo ég tók það ekki nærri mér.“ Hefðir þú viljað heita eitthvað annað í æsku? „Nei, ég man ekki eftir því. Ég var aldrei einn af þeim sem óskaði þess að heita eftir einhverri ofur- hetju eða einhverjum frægum. Ég hef alltaf verið nokkuð sérstakur maður og var bara stoltur af því að vera svolítið öðruvísi. Ég hefði lík- lega átt að gerast listamaður en ég hef ekki rekist á hæfileika á því sviði ennþá. Því miður.“ Er eitthvert nafn sem þér finnst ekki fallegt? „Það er nú ekkert sem kemur upp í hugann í fljótu bragði. Jú, annars, ég myndi alls ekki vilja heita Bjart- mar. Það nafn er bæði ljótt í orði og á prenti. Það væri síðasta sort. Nöfnin sem eru í tísku í dag eru sum hver ekki falleg. Fólk verður auðvitað að fá að hafa frjálsar hend- ur með nöfnin á börnum sínum en það verða samt að vera takmörk fyr- ir vitleysunni. Maður sér eitt og eitt nafn sem er alveg hræðilegt en sem betur fer eru nöfnin almennt nokk- uð eðlileg ennþá. Ég verð pabbi eft- ir nokkra daga þannig að ég þarf að fara að velta þessu fyrir mér. Ef ég fengi að ráða nafninu einn myndi það líklega verða Snörtur Máni. Ég hugsa nú samt að ég fái ekki umboð til þess.“ Ef þú hétir ekki þínu nafni hvað myndir þú vilja heita? „Ég hef aldrei hugleitt það. Ég er ánægð með nafnið mitt og ég hef aldrei verið sár út í foreldra mína fyrir að skíra mig þessu sér- kennilega nafni. Mér datt það ekki í hug, ekki einu sinni sem barni, það hvarflaði aldrei að mér. Mér fannst alveg sjálfsagt að heita Dalla og ég hugsaði aldrei um að það hefði verið betra að heita einhverju öðru nafni.“ Hvernig fannst þér nafnið þitt í æsku? „Mér var strítt þó nokkuð á nafninu mínu og það var afbakað á ýmsan hátt. Það var oft kallað á eftir mér, aðallega voru það nú krakkar sem gerðu það, en oft lét fullorðið fólk það líka undan sér. Nafnið mitt vakti svo sannarlega eftirtekt.“ Hvaða nafn fannst þér flottast í æsku? „Ég man ekki eftir neinum sérstökum nöfnum. En vissulega eru til mörg falleg nöfn, til dæm- is Mekkín, Anna, María og Aþena. Það er mikið til af fallegum nöfn- um og ég skipa hiklaust nafninu mínu í flokk fallegra nafna.“ Er eitthvert nafn sem þér finnst ekki fallegt eða beinlínis ljótt? „Já, það kemur svo sem alveg fyrir að ég heyri nafn sem mér finnst ekki fallegt. Ég get ekki nefnt neitt ákveðið dæmi en vissulega finnst mér nöfn vera misjafnlega fögur.“ Dalla Þórðardóttir prófastur Skipa nafninu mínu í flokk fallegra nafna Framhald á næstu blaðsíðu Andri Hnikarr Jónsson kennari Myndi skíra Snörtur Máni Greta Mjöll Samúelsdóttir knattspyrnukona Hélt ég væri Lína Langsokkur Ef þú hétir ekki þínu nafni, hvað vildir þú heita? „Ætli það væri ekki bara Lína. Ég hélt ég væri Lína Langsokkur þegar ég var lítil. Ég lifði í þeirri sjálfsblekkingu mjög lengi. Ég vildi alltaf láta kalla mig eitthvað annað en Greta. Til dæmis þegar ég var að hoppa uppi á húsgögnum eða gera eitthvað af mér, þá svaraði ég því til að ég væri Lína Langsokkur og að ég gæti allt.“ Hvernig fannst þér nafnið þitt í æsku? „Ég var yfirleitt bara ánægð með það, en vildi helst alltaf finna mér einhver gælunöfn. Þau festust hins vegar aldrei við mig lengi. Systir mín stríddi mér aðeins á nafninu mínu og sagði alltaf: „Hver var að freta? Haha, Greta!“ Ég tók upp á því í seinni tíð að finnast það bara fyndið en mér fannst það ekkert fyndið þegar ég var lítil. Ég grét oft yfir þessu.“ Hvaða nafn fannst þér flott- ast í æsku? „Allar dúkkur hétu Lísa, Adda eða Addý, eða eitthvað svoleiðis. Mér fannst Ísabella alltaf fallegt nafn en ég er voða- lega ánægð með nafnið mitt í dag. Það er sérstakt að því leyt- inu til að það er ekki skrifað með é eins og oftast. Ég hét Gréta í þjóðskránni í 14 ár áður en það var svo loksins leiðrétt.“ Er eitthvert nafn sem þér finnst ekki fallegt? „Já, örugglega fullt af nöfn- um. Nöfn passa misjafnlega vel við fólk og það er mikið til af nöfnum sem myndu ekki passa við mig. Ég vil samt ekki gera fólki það að tala um að einhver nöfn séu ljót. Mér finnst samt að fólk eigi að hugsa aðeins fram í tímann þegar það skírir börnin sín. Sum nöfn eru voða- lega krúttleg meðan börnin eru ung en ég hugsa oft með mér þegar ég heyri sérkennileg nöfn hvernig manneskjunni muni ganga ef hún ætlar á Alþingi eða eitthvað slíkt seinna á lífs- leiðinni. Sum nöfn er nefnilega erfitt að taka alvarlega og þess vegna þurfa foreldrar að hugsa dæmið til enda.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.