Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.2007, Blaðsíða 6
þriðjudagur 14. ágúst 20076 Fréttir DV
FLEIRI BÖRN Í SJÁLFS-
VÍGSHUGLEIÐINGUM
Börn í sjálfsvígshugleiðingum eru 60 prósent þeirra sem leita
til bráðamótttöku BUGL. Félagsráðgjafar á deildinni hafa
sagt upp vegna lágra launa. Styrkir einkafyrirtækja greiða
fyrir því að börn með geðræn vandkvæði fá aðstoð. Vonir eru
bundnar við nýjan heilbrigðisráðherra.
Um 60 prósent þeirra sem leita til
bráðamóttöku Barna- og unglinga-
geðdeildar Landspítala - háskóla-
sjúkrahúss koma þangað vegna mats
á sjálfsvígshættu eða sjálfsskaðandi
hegðunar. „Þetta þekktist ekki þegar
ég byrjaði hér,“ segir Hrefna Ólafsdótt-
ir, yfirfélagsráðgjafi á BUGL, sem hef-
ur starfað á deildinni í rúm tuttugu ár.
„Börn eru ekki í jafn miklum og nán-
um tengslum við fullorðið fólk og hér
áður fyrr. Samfélagsgerðin gerir það að
verkum að öryggisnet barnanna rofn-
ar.“
Geðvernd í boði einkafyrirtækja
Í ársbyrjun var sett á laggirnar með-
ferðarprógramm sem heitir „Lífið kall-
ar“ og er með því lögð áhersla á að
koma til móts við þarfir þessa hóps.
Þetta er samvinnuverkefni spítalans,
FL Group og Sinfóníuhljómsveitar-
innar. Möguleikar til verkefna sem
þessa hafa aukist nýlega vegna áhuga
almennings og fyrirtækja á að styrkja
starfsemina.
Í DV í gær kom fram að biðlist-
ar á BUGL hafa aldrei verið lengri og
bíða nú 165 börn eftir aðstoð. Guðrún
Bryndís Guðmundsdóttir, settur yfir-
læknir á deildinni, sagði að ekki væri
hægt að sinna öllum sem á aðstoð
þurfa að halda. Hún benti á að það
væri mikið álag á alla fjölskylduna þeg-
ar barn með geðræn vandkvæði fær
ekki aðstoð og að biðin auki hættuna á
að líðan barnanna verði enn verri loks
þegar aðstoðin berst.
Guðrún sagðist telja ábyrgðina hjá
stjórnvöldum en nefndi að velvilji væri
hjá heilbrigðisyfirvöldum til að vinna
að málum þessara barna.
Munar 100 þúsund krónum
Valgerður Halldórsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Félagsráðgjafafélags Ís-
lands, segir að talsverður atgervisflótti
frá ríki til einkafyrirtækja og sveitarfé-
laga hafi átt sér stað meðal félagsráð-
gjafa. „Þetta er ekki vegna óánægju
með starfið heldur eru launakjörin
lykilatriðið.“ Hún bendir á að oft muni
tugum þúsunda á grunnlaunum fé-
lagsráðgjafa eftir því hvort þeir vinni
hjá ríki eða í einkageiranum.
Tveir félagsráðgjafar af átta hættu
störfum á BUGL síðasta vetur. „Þeir
fóru bara út af laununum,“ segir
Hrefna Ólafsdóttir, yfirfélagsráðgjafi
á BUGL. Félagsráðgjafar á deildinni
eru margir hverjir þar aðeins í hluta-
starfi. Þeir halda tryggð við vinnustað-
inn vegna löngunar til að starfa þar en
sækja einnig vinnu annars staðar til að
fá mannsæmandi laun. „Það er erfitt
að lifa af þeim launum sem hér er boð-
ið upp á,“ segir Hrefna. Hún bendir á
að félagsráðgjafar á Landspítalanum
hafi dregist mikið aftur úr í launaþró-
un. „Það munar kannski 80 til 100 þús-
und krónum á launum í sambærileg-
um stöðum annars staðar.“
Þyngstu málin í landinu
Aðeins þriðjungur félagsráðgjafa
á BUGL er með langa reynslu í fag-
inu. Hinir eru tiltölulega nýútskrifað-
ir. Hrefna segir þetta aukaálag lengja
þann tíma sem vinna þarf að hverju
máli. „Nýliðar þurfa stuðning frá sér
reyndara fólki.“ Þeir sem reynsluna
hafa þurfa því ekki aðeins að sjá um
eigin mál heldur einnig þeirra sem
þeir leiðbeina í starfi.
„Það er álag að vera alltaf með
þyngstu málin í landinu,“ segir Hrefna.
Deildin er sú eina sinnar tegundar hér
á landi og aðeins erfiðustu málin sem
komast þar að. „Því minni þjálfun sem
starfsfólk hefur, því minna álag þol-
ir það. Því minni umbun sem fólk fær
fyrir starf sitt, því síður er það tilbúið að
stoppa lengi við.“
Starf félagsráðgjafa felst að miklu
leyti í að hafa yfirsýn yfir hvert mál.
Þeir vinna tengslin á milli stofnana
til þess að hægt sé að halda utan um
barnið og að það fái sínum þörfum
fullnægt, hvort sem það er í leikskóla,
heilsugæslu, tómstundaiðkun eða
innan fjölskyldunnar.
Tveir félagsráðgjafar af átta hættu störf-
um á BUGL síðasta vetur. „Þeir fóru bara út
af laununum,“ segir Hrefna. Félagsráðgjaf-
ar á deildinni eru margir hverjir þar aðeins í
hlutastarfi. Þeir halda tryggð við vinnustað-
inn vegna löngunar til að starfa þar en sækja
einnig vinnu annars staðar til að fá mann-
sæmandi laun.
Hrefna Ólafsdóttir aðeins þriðjungur
félagsráðgjafa á BugL er reyndur í
faginu. Fagfólk leitar annað vegna lágra
launa á spítalanum.
Erla HlynsdÓttir
blaðamaður skrifar: erla@dv.is
Mörg ung-
menni í vanda
Meira en
helmingur þeirra
barna sem leita
til BugL er í
sjálfsvígshugleið-
ingum. þetta er
hærra hlutfall en
áður hefur þekkst.