Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.2007, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.2007, Síða 4
þriðjudagur 14. ágúst 20074 Fréttir DV InnlendarFréttIr ritstjorn@dv.is Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu vill takmarka fjölda skemmtistaða í miðborginni: Næturklúbbar í iðnaðarhverfum Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, segir nauð- synlegt að gera átak í miðborg Reykjavíkur. Hann veltir upp þeirri hugmynd að takmarka fjölda næt- urklúbba í miðborginni og beina starfsemi þeirra frekar í önnur hverfi borgarinnar. Ljóst sé að miðborg- in taki ekki almennilega við þeim fjölda sem sækir miðborgina um helgar. Þá telur hann rétt að skoða þann möguleika að breyta opnun- artímum skemmtistaða. „Það er nauðsynlegt að borgaryfirvöld setji sér skýra stefnu um fjölda skemmti- staða í miðborginni, opnunartíma þeirra og hvers konar starfsemi þeir stundi.“ Hann segist ekki hafa áhyggj- ur af því að lögreglan missi yfir- sýn með því að dreifa skemmti- stöðum um borgina. „Það er fyrst og fremst mannsöfnuðurinn sem skapar þennan vanda og slíkar að- gerðir myndu bæði gera störf lög- reglunnar auðveldari og bæta ásýnd miðborginnar,“ segir hann. Á árum áður þekktist það fyrirkomulag að skemmtistaðir voru frekar utan miðborgarinnar og nefnir Stefán Ármúla í því samhengi. Á Norður- löndunum þekkist það víða að fjöldi næturklúbba er takmarkaður í mið- borginni með góðum árangri, seg- ir Stefán. „Menn þekkja þetta fyr- irkomulag í þeim borgum þar sem menningabragur er á skemmtana- lífinu. Skemmtistöðum í borginni hefur fjölgað mikið á síðustu árum og flestir eru þeir opnir fram undir morgun.“ Stefán veltir einnig upp þeim hugmyndum að koma á fót færan- legri lögreglustöð þar sem þeim, sem gerast sekir um minni mál í miðborginni um helgar, gefst kostur á að gangast undir lögreglustjóra- sekt og reiða hana af hendi á staðn- um. „Þessi aðferð hefur gefist mjög vel í löndunum í kringum okkur og myndi auka sýnileika lögreglunnar enn frekar.“ valgeir@dv.is Stefán Eiríksson „það er nauðsynlegt að borgaryfirvöld setji sér skýra stefnu um fjölda skemmtistaða í miðborginni, opnunartíma þeirra og hvers konar starfsemi þeir stundi.“ Eldur logaði í olíu Engin slys urðu á fólki og ekkert tjón hlaust af þegar eldur kviknaði í olíupolli við bifreið sem lagt var á bílastæði við veit- ingastaðinn Hafið Bláa við Þor- lákshafnarveg um hádegi í gær. Slökkvilið var kallað til og slökkti eldinn sem logaði í poll- inum, en þá hafði bifreiðinni verið komið í öruggt skjól. Að mati lögreglu var fólk á vettvangi þó aldrei í raunverulegri hættu. Eldsupptök eru ókunn. Þrír greindust með berkla Þrír einstaklingar hafa greinst með berkla hér á landi það sem af er árinu, að því er fram kemur í Farsóttafréttum Landlæknis- embættisins. Í tveimur tilfellum hafa farið fram viðamiklar rannsóknir á þeim sem höfðu umgengst hina smituðu. Í fyrra tilvikinu greind- ist erlendur starfsmaður við Kárahnjúkavirkjun og í kjölfar- ið var ákveðið að rannsaka 159 starfsmenn við virkjunina. Búið er að útiloka 68 þeirra, 5 hafa greinst með jákvæðum hætti en án lungnaberkla og rannsókn er ólokið með hina 86. Í síðara til- vikinu greindist 84 ára vistmað- ur á elliheimili á Norðurlandi. Rannsaka þurfti 93 heilbrigðis- starfsmenn, 39 aðstandendur og 25 vistmenn til að útiloka að nokkur annar hefði smitast. Hraðakstur á Reykjanesbraut Ökumaður bifreiðar var tekinn fyrir of hraðan akstur á Reykjanesbrautinni rétt fyrir miðnætti í fyrrakvöld. Lögregl- an á Suðurnesjum mældi hann á 121 kílómeters hraða á brautinni þar sem einungis er leyfilegt að keyra á 90 kílómetra hraða. Ökumaðurinn er 25 ára karl- maður og var hann hvorki und- ir áhrifum lyfja né áfengis. Nú bíður hans myndarleg sekt fyrir hraðaksturinn. Óttast um skólastarf Þriðjungur kennara í Stóru- Vogaskóla hefur sagt starfi sínu lausu eða verða í leyfi á kom- andi skólavetri. Minnihluti bæjarstjórn- ar í Vogum hefur verulegar áhyggur af því að illa gengur að ráða í stöðurnar þar sem auglýsingar þess efnis hafi ekki borið árangur, samkvæmt bókun þeirra í bæjarráði. Fyrir vikið er meirihlutinn sakað- ur um slæleg vinnubrögð í að viðhalda faglegu skólastarfi í bænum. Meirihlutinn segir áhyggjurnar tilhæfulausar þar sem fræðslunefnd bæjarfé- lagsins hafi skilað góðu starfi. „Við hefðum betur haldið í dönsku krónuna,“ segir Helgi Vilhjálmsson, betur þekktur sem Helgi í Góu. Hann segir íslensku krónuna óstöðugan gjaldmiðil og hefur áhyggjur af því að hún leiki landsmenn grátt. „Það er ógjörningur að fylgjast með geng- inu, það sveiflast svo hratt.“ Helgi segist ekkert skilja í Íslend- ingum að vilja hafa eigin gjaldmiðil. „Við erum allt of lítil. Grænlendingar og Færeyingar láta sér nægja dönsku krónuna. Við vorum áður undir Dönum og ég skil ekki af hverju við bjuggum til þessa íslensku krónu.“ Neyddur til að hækka verð Sveiflur á genginu eru vissulega miklar, að mati Helga, en hann tel- ur þær þó hafa verið enn meiri hér áður fyrr. „Það var nú bara einn dag- inn sem tvö núll voru tekin af henni,“ segir hann og vísar til myntbreyting- arinnar árið 1980. Krónan hefur lækkað mikið að undanförnu og má búast við að lækk- unin muni brátt skila sér út í verðlag- ið. Í DV í gær sagði Stefán Úlfarsson, hagfræðingur Alþýðusambands- ins, að hann væri þess fullviss að nú drægi úr góðæri síðustu ára. „Ég er tilneyddur til þess að hækka verð ef fer sem horfir,“ segir Eymundur Magnússon hjá Móður jörð í Vallanesi. „Ég hef raunar ver- ið skammaður fyrir hversu seinn ég er að hækka verðið hjá mér,“ bend- ir hann á og nefnir að sumar vörur hjá honum kosti það sama og fyrir sex árum. „Alvöru viðskiptamönn- um finnst ekki mikið til þessa koma,“ segir Eymundur og hlær. Hjá Móður jörð starfa um átta manns þegar mest er en aðeins tveir eða þrír á veturna. Eymundur seg- ist hafa byrjað búskap og ræktun um 1979. Tíu árum síðar hafi starf- semin að Vallanesi farið að líkjast litlum fyrirtækjarekstri. „Ég hef ver- ið tregur til að hækka verð en það verður víst að koma að því. Eins og þetta hefur verið að undanförnu hef ég nánast gefið vöruna. Það gengur ekki til lengdar.“ Gengissveiflur ólíðandi Helgi í Góu hefur litlar áhyggjur af því að verð á hráefni hækki í kjölfar gengislækkunar undanfarið. „Stund- um hækkar hráefnið og stundum lækkar það.“ Hann segist vera al- inn upp við breytingar á gengi og því kippi hann sér lítið upp við þær dagsdaglega. Í Góu má kaupa lakkrís, karamell- ur og konfekt. „Þetta er nú ekki svo dýr vara sem ég er að selja. Það verð- ur að koma í ljós hvort fólk ákveður að skera niður á þessu sviði.“ Að hans mati er hefðbundin neysluvara hér á landi orðin allt of dýr. Móðir jörð er á Egilsstöðum. „Flutningskostnaður er stór baggi fyrir okkur sem erum úti á landi. Við borgum bæði aðföngin og sömu- leiðis fyrir vöruna þegar hún er send suður, en þar eru flestir viðskipta- vinirnir.“ Eymundur segir að aukinn kostnaður við flutning muni skila sér inn í vöruverð. Grænmeti, korn og grænmetis- buff eru meðal þess sem framleitt er í Vallanesi. „Við finnum fyrir auknum kostnaði í tengslum við millilanda- siglingarnar,“ segir Eymundur. Hann bendir á að bæði umbúðir og hráefni sem hann noti komi frá útlöndum. Að mati Helga er ólíðandi hvern- ig verðlag hér á landi á það til að sveiflast vegna breytinga á erlend- um mörkuðum. „Það virðist vera hagkvæmara fyrir sum fyrirtæki að gera reksturinn upp í erlendri mynt.“ Hann segir þó ekki á dagskrá að Góa fari þá leið. „Við seljum svo rammís- lenska vöru. Hana þarf að verðleggja í íslenskri mynt.“ Búast má við verðhækkunum á neysluvöru í kjölfar gengislækkunar. Helgi í Góu telur að Íslendingum væri betur borgið með danska krónu sem gjaldmiðil. Eymundur í Vallanesi gerir ráð fyrir að þurfa að hækka vöruverð eftir að hafa reynt að halda því í lágmarki árum saman. BETUR BORGIÐ MEÐ DANSKRI KRÓNU Erla HlyNSdóttir blaðamaður skrifar: erla@dv.is Eymundur Magnússon „Ég er tilneyddur til þess að hækka verð ef fer sem horfir,“ segir Eymundur í Manni lifandi. Helgi í Góu að mati Helga er ólíðandi hvernig verðlag hér á landi á það til að sveiflast vegna breytinga á erlendum mörkuð- um. Sveiflur á genginu eru vissulega mikl- ar, að mati Helga, en hann telur þær þó hafa verið enn meiri hér áður fyrr. „Það var nú bara einn dag- inn sem tvö núll voru tekin af henni,“ seg- ir hann og vísar til myntbreytingarinnar árið 1980.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.