Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.2007, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.2007, Blaðsíða 8
þriðjudagur 14. ágúst 20078 Fréttir DV Birgir Hólm Björgvinsson, framkvæmdastjóri Sjómannafélags Reykjavíkur, hefur áhyggjur af því að við Reykjavíkurhöfn verði aðeins listasöfn og blómaskreytingar. Hann segir fólk ekki geta lifað af þvíumlíku og að vernda verði Reykjavíkurhöfn sem mið- stöð útgerðar í þessari stærstu verstöð landsins. Hann líkir þeirri stefnu að breyta hafnarsvæðinu í nýtískulega íbúabyggð við hryðjuverk. HRYÐJUVERK VIÐ HÖFNINA Sigtryggur Ari jóHAnnSSon blaðamaður skrifar: sigtryggur@dv.is „Það jaðrar við hryðjuverk að leggja niður fiskvinnslu við Reykjavíkur- höfn,“ segir Birgir Hólm Björgvins- son, framkvæmdastjóri Sjómanna- félags Reykjavíkur. Hann telur að hafnaryfirvöld ættu að setja HB Granda stólinn fyrir dyrnar með að flytja vinnslustöð sína til Akraness. Reykjavík hafi orðið það sem hún er vegna þess að hér hafi verið stærsta verstöð landsins. „Menn ættu ekki að falla í þá gryfju að halda að það sé hægt að lifa af listum og menningu einum og sér,“ segir Birgir. Hann lítur yfir höfnina frá Kaffivagninum í átt að Listasafni Reykjavíkur og bendir á stanslausan ferðamannastrauminn. „Þetta fólk kemur hingað til þess að skoða skip- in, bátana og útgerðina. Það er sú starfsemi sem vekur mesta forvitni,“ segir Birgir. ógn af bönkum Birgir segir að stærri sjávarútvegs- fyrirtæki séu núorðið í eign og und- ir stjórn bankanna. Sjávarútvegin- um stafi ógn af þessu fyrirkomulagi, menn hugsi í hlutabréfum og kvóta- eign, fremur en störfum og vinnslu. „Ég held að Kaupþing banki sé að stjórnast í þessum áformum HB Granda að flytja upp á Skaga,“ segir Birgir. Hann vill meina að þarna sjái menn fyrir sér tækifæri til þess að skipta út verðmætum eignum á hafnarsvæðinu í Reykjavík fyrir nýjar og hagkvæmari einingar á Akranesi. Síðan geti fyrirtækið braskað með eignir sínar í Reykjavík, eins og hann orðar það. „Þeir hjá Granda segjast vera að flytja sig til vegna samdráttar í afla- heimildum. Ég fæ ekki skilið að það breyti miklu hvort menn landa sín- um fiski í Reykjavík eða á Akranesi. Sjófrysti fiskurinn mun halda áfram að koma á land í Reykjavík, vegna þess að hér er styttra í gámana,“ seg- ir Birgir. Margir missa vinnuna Flutningur á vinnslu HB Granda frá Reykjavík til Akraness kemur til með að hafa áhrif á störf fjölda fólks. Birgir telur að þarna geti allt að 130 manns misst vinnuna. „Það hef- ur ekkert verið minnst á þetta. Það hefði eitthvað heyrst ef svona lagað hefði gerst annars staðar á landinu,“ segir Birgir og bendir í því samhengi á söluna á Kambi á Flateyri. „Það var auðvitað meiriháttar reiðarslag fyrir byggðina á Flateyri þegar tilkynnt var að Kambur hygðist leggja upp laupana. Svona nokkuð hefur auðvitað minni áhrif í Reykja- vík, en er engu að síður stór skaði sem fólk virðist ekki hafa áttað sig á,“ segir Birgir. Hann efast um að þessi fjöldi muni hafa lífsviðurværi af því að starfa á listasöfnum. „Það stefnir í að hérna við höfnina verði ekkert ann- að en blómaker og listasýningar,“ segir hann. Forsvarsmenn HB Granda sögðu fyrir helgi að ekki myndi koma til fjöldauppsagna vegna flutningsins. Einhver fækkun yrði þó á starfsfólki. Flytja vegna kvóta Útskýringar forsvarsmanna HB Granda á þeirri ákvörðun að flytja vinnslu fyrirtækisins frá Reykjavík voru á þá leið að sameina þyrfti alla bolfiskvinnslu. Landvinnsla botn- fisks verði nær eingöngu á karfa og ufsa, enda verði ekki hægt að sækja sérstaklega í þorsk, eins og hingað til, vegna minni kvóta. Þessu markmiði segja forsvarsmenn HB Granda að verði eingöngu náð með því að sam- eina alla vinnslu í einu veri, á Akra- nesi. DV spurði Eggert B. Guðmunds- son, forstjóra HB Granda, hvort hann sæi fyrir sér arðvænlega nýtingu á eignum fyrirtækisins við Reykjavík- urhöfn. „Menn vita náttúrulega að þarna eru ýmsir möguleikar en það er ekkert komið á koppinn hjá okk- ur,“ sagði Eggert. Björn Ingi Hrafnsson, stjórnarfor- maður Faxaflóahafna, lýsti undrun sinni í DV í gær á þessum áætlunum HB Granda. „Við munum náttúru- lega fara varlega í að úthluta lóðum á meðan við vitum ekki hvað þeir ætla sér. Það verður ekki bæði sleppt og haldið,“ sagði Björn. Hann fagnar því engu að síður að áhugi sé á uppbygg- ingu á Akranesi. umhverfisspjöll í reykjavík Birgir líkir breytingunum á at- hafnasvæðunum við Reykjavíkur- höfn við umhverfisspjöll. „Það má ekki velta við grjóti austur á Kára- hnjúkum án þess að allt verði vit- laust. Hérna segir enginn neitt þó að heilu hafnargarðarnir séu kaffærð- ir,“ segir Birgir. Hann segir að nú sé að hverfa frá Reykjavíkurhöfn mikil- væg atvinnustarfsemi, sem einnig sé sögulega verðmæt. „Ég get ekki séð annað en að hér stefni menn að því að sjávarútvegur í Reykjavík eigi að líða undir lok.“ Birgir segir að Reykjavíkurborg verði augljóslega af miklum tekjum þegar útgerð á borð við HB Granda ákveður að leita á önnur mið. „Ég verð nokkuð hissa ef borgin hleypir þessum flutningum í gegn sísvona. Uppruni HB Granda er náttúrulega í gömlu Bæjarútgerð Reykjavíkur, sem var einkavædd í tíð Davíðs Oddsson- ar sem borgarstjóra,“ segir Birgir. Hann er þó ekki of bjartsýnn á að Borgarstjórnin geti haft áhrif á það sem úr verður. „Stjórnamálamenn í dag eru meira og minna orðnir alveg háðir peningamönnunum.“ Almennilegar útgerðir „Það eru samt enn eftir hraust- ir og almennilegir útgerðarmenn. Nú hefur Guðmundur Kristjánsson frá Rifi sýnt því áhuga að fara af stað með vinnslu í Reykjavík.“ Birgir hefur velþóknun á Guðmundi og segir að þarna sé á ferðinni maður sem ólst upp við sjómennsku og útgerð. „Í dag eru margir stjórnendur útgerða og fiskvinnslufyrirtækja eins og verð- bréfamiðlarar,“ segir Birgir. Hann fagnar því einnig að í Reykja- vík séu enn reknar útgerðir og vinnslu- fyrirtæki á borð við Ögurvík Gísla Jóns Hermannssonar og Fiskikaup. „HB Grandi er líka gott og mikið fyrirtæki. Það er bara synd að leyfa Reykjavíkur- höfn að breytast í svæði fyrir listasöfn og lúxusíbúðir,“ segir Birgir. „Það eru samt enn eftir hraustir og al- mennilegir útgerðar- menn. Nú hefur Guð- mundur Kristjánsson frá Rifi sýnt því áhuga að fara af stað með vinnslu í Reykjavík.“ Skipaviðgerðir í miðborginni Varðskipið Ægir og Múlaberg frá siglufirði í slipp í reykjavík. samkvæmt skipulagi munu skipaviðgerðir færast frá miðborginni. nýbyggingar við Daníelsslipp Ný hús rísa nú þar sem áður voru athafna- svæði reykjavíkurhafnar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.