Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.2007, Page 16
þriðjudagur 14. ágúst 200716 Sport DV
enski boltinn
Mourinho bíður eftir essien
Michael Essien meiddist gegn
Birmingham og þátttaka hans í leiknum
gegn reading á
miðvikudag er í
hættu. jose
Mourinho stjóri
Chelsea sagði í
gær að Essien
hefði verið
sárþjáður inní
búningsklefa.
„þetta er eithvað
sem snertir hnéð
á honum. Hann þjáðist greinilega og
þar sem ég var með tvo miðjumenn á
bekknum beið ég ekki með
skiptinguna. Ég veit ekkert hvort hann
verður með gegn reading, það mun
koma bara í ljós.“ Mourinho fékk þó
einnig góðar fréttir um helgina því
didier drogba, Paulo Ferreira og Claude
Makalele snéru allir aftur eftir að hafa
verið að glíma við meiðsli.
Man. utd vill einnig alves
Chelsea munu fá harða samkeppni um
starfskrafta daniel alves því real
Madrid og
Manchester
united eru
einnig sögð hafa
áhuga á honum.
jose Mourinho
stjóri Chelsea
hefur lengi verið
harður aðdáandi
alves og Chelsea
er sagt tilbúnið
að borga þrjá milljarða fyrir kappann.
Forseti sevilla jose Maria del Nido
viðurkenndi að hann hefði neitað
tilboðum í alves en bara útaf því að
honum fannst þau of lág. alves sjálfur
hefur sagt vilja prófa nýja hluti en del
Nido segist ekki hlusta á boð sem eru
minna en þrír og hálfur milljarður.
sevilla keypti alves á 100 milljónir
króna en hefur í gegnum tíðina selt
leikmenn eins og josé antonio reyes,
julio Baptista og sergio ramos fyrir um
tíu milljarða króna.
unsworth enn að
david unsworth, fyrrum leikmaður
Everton og Wigan, er á leið til Burnley í
ensku fyrstu
deildinni. Hann
hefur verið
samningslaus
síðan í vor þegar
Wigan lét hann
fara á frjálsri sölu
frá félaginu.
samningurinn er
til eins árs og
segir steve
Cotteril, stjóri Burnley, ástæðuna fyrir
kaupunum vera þá að honum finnist
liðið vanta meiri reynslu í hópinn.
unsworth er markahæsti varnarmaður
ensku úrvalsdeildarinnar frá upphafi og
er orðinn 33 ára gamall.
bolton kaupir o‘brien
sammy Lee, framkvæmdastjóri Bolton,
er ófeiminn við að sanka að sér
leikmönnum en
síðasti
liðsaukinn, andy
O´Brien, er tólfti
leikmaðurinn
sem hann fær til
liðsins á þessu
tímabili. O´Brien
kemur frá
Portsmouth fyrir
óuppgefna
upphæð en hann skrifaði undir tveggja
ára samning við Bolton. Hann er
tuttugu og níu ára og getur spilað allar
stöður í vörninni. „Hann eykur breiddina
í hópnum og eykur dýptina í honum,“
segir sammy Lee, framkvæmdastjóri
Bolton.
rooney frá í tvo Mánuði
Wayne rooney brákaði bein í leiknum
gegn reading um síðustu helgi. Í
yfirlýsingu frá
Manchester
united kemur
fram að rooney
verður frá í tvo
mánuði en þetta
er í þriðja skiptið
á ferlinum sem
hann brýtur
bein í fæti.
Meiðslin eru áfall
fyrir enska landsliðið sem spilar tvo leiki
í undankeppni Evrópukeppninnar á
móti Ísrael 8. september og rússlandi
12. september. „þetta eru mikil
vonbrigði fyrir hann og mikil vonbrigði
fyrir steve Mac Claren,“ sagði alex
Ferguson, stjóri Manchester united.
FH-ingar komust í undanúrslit
VISA-bikarkeppninnar með því að
leggja Valsmenn að velli í hörku-
leik. Ásgeir Gunnar Ásgeirsson
lífskúnstner var hetja Hafnfirðinga
og skoraði sigurmarkið í uppbótar-
tíma eftir dramatískar lokamínútur.
Valsmenn spiluðu fast til að byrja
með og gáfu FH-ingum engan tíma á
boltanum. Byrjunin á leiknum ein-
kenndist af baráttu á miðjunni. Sér-
staklega var gaman að fylgjast með
baráttu þeirra Tryggva Guðmunds-
sonar og Pálma Rafns Pálmasonar
en þar var ekkert gefið eftir. Barátta
þeirra var hörð en heiðarleg.
Helgi Sigurðsson framherji Vals
átti tvö fyrstu færin en bæði skot
hans voru varin af Daða Lárussyni
markverði FH.
Eftir stundarfjórðung átti Tryggvi
góðan skalla sem fór yfir. Guðmund-
ur Sævarsson átti þá góða sendingu
fyrir og Tryggvi vann sér stöðu gegn
Birki Sævarssyni en skallinn fór hár-
fínt yfir.
FH var komið á bragðið, færði
sig framar á völlinn og settu aukna
pressu á Valsmenn. Matthíasarnir
í liði FH bjuggu til fínt færi tíu mín-
útum síðar. Matthías Guðmundsson
átti frábæra fyrirgjöf frá hægri inn á
teig Vals þar sem Matthías Vilhjálms-
son skallaði yfir. Þegar hálftími var
liðinn leit stórkostleg sókn dagsins
ljós. Undirritaður man varla eftir
slíku samspili hér á landi, slíkt hefur
aðeins sést í leikjum Arsenal. Tryggvi
og Ásgeir Gunnar Ásgeirsson tættu
þá vörn Vals í spað. Tóku létta þrí-
hyrninga út um allan völl og Ásgeir
stimplaði glæsilega yfir á Matthías
Guðmundsson en hann var of lengi
að athafna sig og Kjartan varði slakt
skot Matthíasar. Hægt er að setja
spurningarmerki við sendingu Ás-
geirs en hún hefði ef til vill mátt vera
fastari. Staðan var því markalaus
þegar menn gengu til búningsher-
bergja í hálfleik.
baráttan hélt áfram
Síðari hálfleikur byrjaði rólega
og fá færi litu dagsins ljós. Helst var
áberandi hve liðunum gekk illa að
halda knettinum innan liðs. Fyrsta
færið sem kvað að var mjög gott en
það féll í skaut Sigurvins Ólafsson-
ar. Matthías Vilhjálmsson gaf eitr-
aða sendingu fyrir markið þar sem
Sigurvin skallaði framhjá af stuttu
færi frá markteig. Stuttu síðar fengu
Valsmenn fínt færi eftir horn þegar
Gunnar Einarsson fékk skyndilega
boltann í markteignum. Daði varði
skot hans vel.
Leikurinn einkenndist af baráttu
á milli liðanna fram að lokamínút-
unum þegar FH-ingar gerðu harða
atlögu að marki Valsmanna í tví-
gang. Fyrst skallaði Tommy Nielsen
að marki eftir horn en Sigurbjörn
Hreiðarsson bjargaði á línu. Strax
úr horninu varði Kjartan meistara-
lega eftir atgang í teignum. Eftir það
brunuðu Valsmenn upp og Helgi
Sigurðsson lagði upp dauðafæri fyr-
ir Baldur Aðalsteinsson en Daði las
skot Baldurs eins og opna bók. Þetta
var lokafæri leiksins og því benti allt
til þess að grípa þyrfti til framleng-
ingar.
FH-ingar voru hins vegar á öðru
máli og í uppbótartíma komst Guð-
mundur Sævarsson upp að enda-
mörkum, sendi fyrir markið þar sem
Tommy Nielsen skallaði í stöngina.
Ásgeir Gunnar Ásgeirsson var fljót-
astur að átta sig í teignum og skor-
aði úr frákastinu með góðu skoti.
FH-ingar sýndu mikinn vilja til
þess að klára leikinn og uppskáru
eftir því. Valsmenn geta hins vegar
nagað sig í handarbökin yfir að hafa
ekki sýnt meiri einbeitingu á loka-
kaflanum og því fór sem fór.
svona er fótboltinn
„Svona er fótboltinn,“ sagði Atli
Sveinn Þórarinsson fyrirliði Vals dap-
ur í bragði skömmu eftir að Kristinn
Jakobsson hafði flautað til leiksloka.
„Bæði lið fá náttúrulega hörkufæri
síðustu þrjár eða fjórar mínúturnar,
við einn á móti markmanni og svo
björgum við tvisvar á marklínu og
þetta féll þeirra megin í dag.
FH hélt hreinu í þessum leik og því
fór þetta svona. Við spiluðum bara
illa í fyrri hálfleik, erum hreinlega
ekki vaknaðir en spilum betur í þeim
síðari og fáum sénsa en það er ekkert
við þessu að segja, þeir skora og þess
vegna er þetta sanngjarnt.“
svona leikir vinnast á einu
marki
Það er langt síðan undirritað-
ur hefur séð Ólaf Jóhannesson jafn
ánægðan eftir sigurleik. Hann hopp-
aði hæð sína í loft upp þegar loka-
flautið gall og var ótrúlega ánægður
með sigurinn. „Þetta eru náttúrulega
tvö áþekk lið og auðvitað verður leik-
ur milli þannig liða alltaf spennandi.
Þeir vinnast á einu marki, á örlitlum
mistökum og ég er klár á því að við
áttum sigurinn skilið, mér fannst við
betri en þeir. Það er sætast að vinna
svona og það er leiðinlegt að tapa
svona og á meðan við erum réttu
megin, þá er ég ánægður.
Mér fannst við vera betri í þessum
leik og fá fleiri færi og vera líklegri og
sem betur fer kom markið því ég er
ekki viss um að liðið hefði þolað mik-
ið meira, ég er ekki viss um það.
Við erum komnir núna í undan-
úrslitin og ég er hrikalega sáttur með
það því við komumst ekki svona langt
í fyrra,“ sagði Ólafur og hélt áfram að
fagna með sínu fólki.
benni@dv.is, vidar@dv.is
FH-ingar sterkari
á loka ínútunum
ásgeir gunnar ásgeirsson var hetja FH-inga þegar hann skoraði sigurmarkið á
lokamínútunni gegn Val í 8 liða úrslitum í VISA-bikarnum í gær. Valsmenn sitja eft-
ir með sárt ennið því þeir fengu svo sannarlega færin til að skora í leiknum.
0 1
VALUR FH
Mark: Ásgeir Gunnar Ásgeirsson (90.).
allur lurkum laminn
Valsmenn létu tryggva guð-
mundsson oft finna til tevatnins.
Jess! guðmundur sævarsson bakvörð-
urinn knái fagnaði vel og innilega.