Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.2007, Page 17
DV Sport þriðjudagur 14. ágúst 2007 17
enski boltinn
Kitson er eKKi hættulegur
steve Coppell stjóri reading hefur
komið sínum manni dave Kitson til
varnar eftir að sá
síðarnefndi fékk
að líta rauða
spjaldið gegn
Manchester
united. Kitson
hafði verið inn á
vellinum í aðeins
37 sekúndur og
aldrei komið við
boltann þegar
hann straujaði Patrice Evra og fékk að
líta rauða spjaldið. „Ég neita að trúa að
þetta hafi verið beint rautt og ég hef
beðið dómarann rob styles að kíkja á
brotið á sjónvarpsupptökum. Ég fór í
hann en var bara að passa að þeir
myndu ekki ná að létta af pressunni.
það síðasta sem ég sagði við sjálfan mig
áður en ég fór út á völlinn var að sýna
baráttu og virðingu við leikinn og ekki
væri verra ef maður læddi inn einu
marki. þetta var bara gult spjald ekki
rautt. Ég er orðlaus,“ sagði Kitson.
Coppell sagði að rauða spjaldið hefði
verið strangur dómur. „Ég er búinn að
skoða atvikið og fóturinn á honum var
hátt uppi. Munurinn á góðri tæklingu
og slæmri nemur einhverjum
millisekúndum. Kitson er ekki
hættulegur leikmaður, alls ekki.“
Malouda og Pizzaro ánægðir
Nýir leikmenn Chelsea Florent Malouda
og Claudio Pizzaro voru ánægðir með
framlag sitt um
helgina gegn
Birmingham.
Báðir skoruðu
þegar Chelsea
vann 3–2 í stór-
skemmtilegum
leik. „Liðið sýndi
karakter og við
erum ánægðir
með að byrja
tímabilið með sigri á stanford Bridge,“
sagði Malouda eftir leikinn á heimasíðu
liðsins. Pizzaro skoraði eftir fallegan
undirbúning frá shaun Wright-Phillips.
„Ég var mjög sáttur eftir leikinn en
stigin þrjú voru mikilvægust. Mér fannst
við spila fínan fótbolta og vona að við
spilum svona áfram í næstu leikjum. Ég
er að reyna halda mér í liðinu og æfi vel
og legg mikið á mig. Vonandi spila ég í
næsta leik en samkeppnin um stöður er
mikil hérna sem er skiljanlegt því við
erum í mörgum keppnum en allir
viljum við spila alla leiki,“ sagði
Perúmaðurinn Pizarro.
Fáir FraMherjar
í Meistaradeildinni
arsene Wenger hefur staðfest að hann
verði líklega án framherjanna Eduardo
og Emmanuel
adebayor á
miðvikudag
þegar arsenal
leikur í Meistara-
deildinni gegn
sparta Prag.
Framherjaparið
missti af
leiknum við
Fulham í
deildinni á sunnudag og er líklegt að
það missi af fleiri leikjum. adebayor er
meiddur á nára en Eduardo er
meiddur á hné.
Kúlu fyrir kúlu verður byrjandinn að meistara
Púlborð
billiard.is
Suðurlandsbraut 10
S. 568 3920 & 897 1715
Hágæða 8 feta púlborð
á einstöku verði
tiger Woods sigraði á PGA-meistaramótinu og tryggði sér þar
með þrettánda sigur sinn á risamóti:
Ég veit hvað til þarf
Tiger Woods sigraði á PGA-
meistaramótinu eftir örugga spila-
mennsku á lokadaginn. Tiger var
að vonum ánægður og sagði eft-
ir mótið alltaf að hann hefði alltaf
á tilfinningunni áður en lokadag-
ur er spilaður á golfmóti á hvaða
skori þurfi að spila til þess að sigra.
„Ég veit hvað til þarf. Maður fær
ákveðna tilfinningu fyrir lokadag-
inn um á hvaða skori maður þarf
að spila og oftar en ekki hef ég rétt
fyrir mér,“ segir Tiger Woods eftir
að hann spilaði á 69 höggum síð-
asta daginn og tryggði sér sigur á
mótinu.
Ernie Els og Woody Austin sóttu
hart að Woods á lokadeginum en
hann var öryggið uppmálað og end-
aði með því að spila á átta höggum
undir pari, tveimur höggum á und-
an Austin og þremur höggum á
undan Els.
Woods fékk 1,26 milljónir doll-
ara eða rúmar 67 milljónir króna
fyrir sigur sinn á mótinu og hef-
ur nú sigrað á 13 risamótum á ferli
sínum sem er einungis fimm mót-
um færra en Jack Nicklaus sigraði á
á sínum ferli sem er met.
Þetta er fyrsti sigur Woods á
stórmóti síðan hann vann PGA-
meistaramótið í ágúst í fyrra eftir að
hafa misst naumlega af sigri á Opna
bandaríska og Masters-mótinu.
vidar@dv.is
sigurvegari Pga tiger var
að vonum ánægður með
sigurinn á Pga-mótinu.
stórskemmtilegur
sjö marka leikur
Fjölnir er kominn í undanúrslit VISA-bikars í fyrsta sinn í sögu félagsins. Fjölnir vann
Hauka 4–3 í átta liða úrslitum í stórskemmtilegum leik í Grafarvogi í gær.
Fjölnir úr Grafarvogi tryggði sér í gær
farseðilinn í undanúrslit VISA-bikars
karla í knattspyrnu með því að leggja
Hauka að velli 4–3. Eins og markatal-
an gefur til kynna var leikurinn stór-
skemmtilegur á að horfa, enda spil-
uðu bæði liðin sóknarbolta. Þetta er í
fyrsta sinn í sögu Fjölnis sem félagið
kemst svo langt í bikarkeppni í knatt-
spyrnu. Liðið fær Landsbankadeild-
arlið í undanúrslitum, en dregið verð-
ur um hverjir mætast þar í dag.
Haukar fengu tvö dauðafæri á
fyrstu tuttugu mínútum leiksins en
Hilmar Eiðsson og Ómar Sigurðsson
fóru illa að ráði sínu.
Haukar komust svo yfir á 31. mín-
útu. Eftir vandræðagang í vörn Fjölnis
fékk Ómar Sigurðsson Haukamaður
boltann, skaut að marki, boltinn fór í
varnarmann Fjölnis og beint fyrir fæt-
ur Ásgeirs Ingólfssonar sem skoraði
með góðu skoti. 1–0 fyrir Hauka í hálf-
leik og forysta þeirra verðskulduð.
Markaregn
Haukar byrjuðu síðari hálfleik
af krafti og eftir aðeins eina mínútu
átti Ásgeir Ingólfsson skalla í stöng
Fjölnismarksins. Haukar voru lík-
legri til að bæta við marki í upphafi
síðari hálfleiks en það voru hins veg-
ar Fjölnismenn sem náðu að jafna,
gegn gangi leiksins.
Þar var að verki miðjumaður-
inn Gunnar Már Guðmundsson
á 52. mínútu. Fjölnir fékk dæmda
hornspyrnu og upp úr henni skall-
aði Gunnar Már í markið. 1–1 og við
þetta hresstust Fjölnismenn svo um
munaði.
Á 60. mínútu átti Pétur Markan
þrumuskot að marki Hauka. Amir
Mehicca, markvörður Hauka, náði
að slá boltann í stöngina, þaðan fór
boltinn til Gunnars Más sem skoraði
auðveldlega af stuttu færi.
Skömmu síðar syrti enn í álinn hjá
Haukum þegar Davíð Ellertsson fékk
að líta sitt annað gula spjald og var
því vísað af velli. Haukar voru skyndi-
lega 2–1 undir og manni færri.
Fjölnismenn gengu á lagið og á
64. mínútu bætti Pétur Markan við
þriðja markinu. Tómas Leifsson átti
hörkuskot í þverslá Haukamarksins
og það var Pétur sem hirti frákast-
ið og skallaði í netið. 3–1 og útlitið
dökkt hjá Hafnfirðingum.
Haukar neituðu þó að játa sig
sigraða. Á 68. mínútu átti Ásgeir Ing-
ólfsson skalla að marki Fjölnis, Ólaf-
ur Johnson reyndi að koma í veg fyrir
mark en varð fyrir því óláni að skora
sjálfsmark. 3–2 og skyndilega var allt
galopið að nýju.
Fjölnir náði aftur tveggja marka
forystu tíu mínútum fyrir leikslok.
Eftir laglegan undirbúning Dav-
íðs Þórs Rúnarssonar skoraði Tóm-
as Leifsson og kom Fjölni í 4–2. Nú
bjuggust flestir við að úrslitin væru
ráðin en svo var ekki.
Fimm mínútum fyrir leikslok náðu
Haukar að klóra í bakkann. Hilmar
Eiðsson skoraði með góðu skoti rétt
fyrir utan vítateig og minnkaði mun-
inn í eitt mark, 4–3. Lengra komust
Haukar ekki og það verða því Fjöln-
ismenn sem verða í pottinum þegar
dregið verður í undanúrslitin í dag.
getum verið stoltir
Þrátt fyrir tapið var Þórhallur Dan
Jóhannsson, fyrirliði Hauka, sáttur í
leikslok. „Mér fannst við sýna ótrú-
legan karakter í þessum leik og við
getum verið stoltir af þessum ungu
mönnum sem spila í þessu Hauka-
liði. Í fyrri hálfleik yfirspiluðum
við Fjölnisliðið og svo lentum við í
vandræðum í seinni hálfleiknum og
þeir skoruðu fullt af mörkum og við
misstum mann út af. Samt erum við
inni í leiknum. Þetta er gríðarsterkt
Fjölnislið og Haukarnir stóðu vel í
þeim í dag,“ sagði Þórhallur.
„Við fengum fullt af færum en
nýttum þau ekki og um það snýst
þetta. Það var kannski munurinn á
þessum tveimur liðum, þeir fengu
ekki mörg færi en þeir skoruðu úr
þeim öllum held ég. Þetta er eitthvað
sem við setjum í reynslubankann og
menn læra og þroskast því þetta er
ungt lið. Við gerðum vel í dag og ég er
rosalega stoltur af mínum strákum,“
sagði Þórhallur, sem sagðist skilja
sáttur við bikarkeppnina í ár.
„Hvernig getum við annað? Við
erum búnir að slá út tvö fyrstudeild-
arlið, eitt úrvalsdeildarlið og Haukar
geta borið höfuðið hátt. Við spiluð-
um fótbolta hér í dag, við vorum ekk-
ert að bakka, skora eitt og reyna að
hanga á því. Við ætluðum að sækja
til sigurs og mér fannst við ekkert sla-
kari en þeir einum færri,“ sagði Þór-
hallur að lokum.
Ásmundur Arnarsson, þjálf-
ari Fjölnis, var að vonum ánægður
með úrslitin en hann var ekki alveg
jafn sáttur við spilamennsku sinna
manna. „Ég var skelfilega óánægð-
ur með fyrri hálfleikinn hjá okkur.
Helstu grunnatriðin vor að klikka,
út um allan völl. Menn gátu ekki
sent boltann á milli sín. Haukar voru
mun betri í fyrri hálfleik og við vor-
um heppnir að vera ekki tveimur eða
þremur mörkum undir í hálfleik,“
sagði Ásmundur og hrósaði Haukum
fyrir þeirra leik.
„Haukar eru með hörkulið og
hafa alltaf verið okkur erfiðir móth-
erjar og við vissum það fyrirfram að
þetta yrði hörkuleikur. Þess vegna er
bara frábært að ná að klára þetta,“
sagði Ásmundur og bætti við að það
væri tilhlökkunarefni að vera komnir
í undanúrslit.
„Bæði fyrir félagið, ungt félag,
að vera komið þetta langt og líka
fyrir stráka sem aldrei hafa komist
svona langt áður. Þetta er bara mikil
reynsla og ævintýri. Bara gaman. En
þetta má ekki trufla einbeitingu okk-
ar í því sem er meginmarkmið okkar,
að klára fyrstu deildina. Það er núm-
er eitt, tvö og þrjú,“ sagði Ásmundur.
dagur sveinn dagbjartsson
blaðamaður skrifar: dagur@dv.is
4 3
FJÖLNIR HAUKAR
Mörk: Ásgeir Ingólfsson (31.), Ólafur Johnson, sjálfsmark
(68.), Hilmar Eiðsson (85.).
Mörk: Gunnar M. Guðmundsson (52.), Gunnar M.
Guðmundsson (60.), Pétur Markan (64.) Tómas Leifs. (80.).
ævintýrið heldur áfram
Fjölnir úr grafarvogi er komið
áfram í undanúrslitin.