Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.2007, Síða 27
Götuhernaðurinn hefur í sumar vakið athygli á málefnum hreyfihamlaðra og öryrkja:
Okkar peningur, ykkar púl
Götuhernaðurinn er hópur sem sam-
anstendur af átta hressum strákum á aldr-
inum átján til tuttugu og þriggja ára sem
unnið hafa að því í sumar að vekja athygli
á öryrkjum og bæta ímynd hreyfihamlaðra
en fimm af meðlimunum eru hreyfihaml-
aðir. Strákarnir hafa mest unnið að gerð
heimasíðu með ýmsu skemmtiefni en í lok
júlí hönnuðu strákarnir tvær tegundir af
stuttermabolum sem nú eru í sölu. Á bol-
unum er lógó sem sýnir mann í hjólastól
með hanakamb en það var hannað af stóra
bróður eins af meðlimunum fyrir nokkrum
árum og Arnar Birgisson, einn af meðlim-
um Götuhernaðarins, útfærði það og sá um
að hanna bolina. „Á bláa bolnum stend-
ur Öxe Crew en það er hópur af öryrkjum
sem var mjög öflugur í harðkjarnarokks-
og pönksenunni. Öxe Crewið var duglegt
við að mæta á tónleika og var mjög áber-
andi hópur. Ég er að læra grafíska hönnun í
Borgó og mér finnst mjög gaman að hanna
svona,“ segir Arnar en þetta er fyrsta árið
sem hann starfar á vegum Götuhernað-
arins. „Ég er ekki hreyfihamlaður en við
erum bara svona vinahópur og kynntumst
flestir í Borgó.“ Á öðrum bolnum má lesa
setninguna „Okkar peningur, ykkar púl“
en Andri Valgeirsson hefur starfað í Götu-
hernaðinum síðastliðin þrjú ár og seg-
ir setninguna koma úr lagi sem strákarnir
sömdu í fyrra. „Þessi setning er í einu við-
laginu og við tókum ákvörðun um að nota
hana sem hálfgert mottó okkar en erum
líka bara að gera grín að þessu öllu sam-
an og reyna að koma því að að öryrkjar séu
ótrúlega inn í dag og í tísku. Okkur langaði
í slagorð sem myndi kannski sjokkera fólk
og vekja meiri athygli og okkur fannst bara
sniðugt að gera þetta,“ segir Andri að lok-
um en bolina er hægt að nálgast á heima-
síðu Götuhernaðarins, oryrki.is.
Mikil áhersla er lögð á innlenda
dagskárgerð hjá Ríkissjónvarpinu í
vetur. Í boði verður bæði leikið efni
sem og þættir af öðru tagi en af leiknu
sjónvarpsefni verður fyrst farið í að
framleiða spennuþætti upp úr bók-
inni Aftureldingu sem skrifuð er af
Viktori Arnari Ingólfssýni en það er
Sveinbjörn I Baldvinsson sem vinnur
nú hörðum höndum að skrifum hand-
rits upp úr bókinni og Björn Brynjúlf-
ur Björnsson kvikmyndagerðarmaður
kemur til með að leikstýra þáttunum.
„Þættirnir munu heita Mannaveið-
ar og eru byggðir á bókinni. Tökurn-
ar fara fram í októ_ber og Sjónvarpið
kemur til með að sýna þættina eftir
áramót. Við erum að svo stöddu að
prófa leikara í hlutverkin. Við viljum
að sjálfsögðu bara fá almennilega
leikara og vinnum nú að því að prófa
það fólk sem við viljum fá og teljum
að henti best í hlutverkin,“ segir Björn
Brynjúlfur en samkvæmt heimildum
DV hafa þeir Ólafur Darri Ólafsson og
Gísli Örn Garðarsson verið orðaðir við
aðalhlutverkin.
Íslenskt efni á hverjum degi
Eins og áður sagði verður sérstök
áhersla lögð á innlenda dagskrárgerð
og að sögn Þórhalls Gunnarssonar
dágskrárstjóra Sjónvarpsins mun ís-
lenskt efni verða til sýningar á hverj-
um degi. „Það verður fullt af viku-
legum þáttum. Silfur Egils verður
meðal annars á dagskrá hjá okkur, á
þriðjudagskvöldum sýnum við svo
þáttinn Söngvaskáld og eftir áramót
verður annar tónlistarþáttur sem
kemur til með að heita Albúm og er
stýrt af Jóni Ólafssyni. Síðan sýnum
við nýjan menningarþátt sem fjallar
um kvikmyndir og leikhús sem Þor-
steinn J. mun ritstýra, en umsjónar-
menn þáttarins ásamt Þorsteini eru
þau Andrea Róbertsdóttir, Elsa María
Jakobsdóttir og kvikmyndamógúll-
inn Ásgrímur Sverrisson. Á föstu-
dögum verðum við svo með spurn-
ingaþátt þar sem tuttugu og fjórir af
stærstu kaupstöðum landsins keppa
sín á milli. Þóra Arnólfsdóttir og Sig-
mar Guðmundsson stjórna þeim
þætti. Þegar átta kaupstaðir verða
eftir gerum við smáhlé og Gettu bet-
ur verður sýndur en þegar því er lok-
ið keppa átta klárustu kaupstaðirnir
til úrslita. Það verður alltaf einn fræg-
ur úr hverjum kaupsstað sem keppir
fyrir hönd síns bæjarfélags. Svo verð-
ur náttúrulega stór skemmtiþáttur á
laugardagskvöldum,“ segir Þórhall-
ur en segist þó ekki vera búinn að
ákveða stjórnendur þáttarins. „Ég er
bara búinn að búa þáttinn til.“
Allsherjar skemmtiþáttur
og fjör
Skemmtiþátturinn hefur enn ekki
hlotið nafn en fyrirkomulagið er hins
vegar alveg á hreinu. „Þetta verður
þannig að ég er búinn að fá níu frá-
bæra lagahöfunda til að semja þrjú lög
hver og keppa innbyrðis í vetur. Laga-
höfundarnir eru þau Dr. Gunni, Gum-
mi Jóns úr Sálinni, Magnús Þór Sig-
mundsson, Barði í Bang Gang, Magnús
Eiríksson, Fabúla, Hafdís Huld, Svala
Björgvins og Andrea Gylfadóttir. Þetta
verða sem sagt í heildina tuttugu og sjö
lög og þrjú sem keppa í hverjum þætti.
Áhorfendur velja svo eitt lag sem fer
svo áfram í úrslitakeppni. Síðan gefst
öðrum lagahöfundum kostur á að
senda inn lög og sex þeirra verða val-
in í keppnina og tvö af þeim sex keppa
svo í úrslitaþættinum og sá sem sigrar
í þessari söngvakeppni keppir svo fyr-
ir Íslands hönd í Eurovision í Serbíu á
næsta ári,“ segir Þórhallur en bætir þó
við að markmiðið sé alls ekki að semja
eitthvað týpískt Eurovision. „Mark-
miðið er bara að semja flott lög burt-
séð frá Eurovision og það má í raun-
inni vera hvernig lag sem er og bara
algjörlega eins og höfundinn langar
að búa til. Svo velur höfundurinn bara
með sér flotta flytjendur og söngvara.
Í þættinum verður einnig ýmislegt
fleira skemmtiefni, Sigurjón Kjartans
og Jón Gnarr verða þarna og Selma
Björns. Þorvaldur Bjarni sér síðan um
tónlistarstjórnina og þetta verður bara
heilmikið fjör.“ Þórhallur segist að lok-
um einnig vera með ýmislegt fleira í
vinnslu sem og fullt af íslenskum bíó-
myndum og nýjum heimildarmynd-
um sem sýndar verða í vetur auk þess
sem gamla góða Spaugstofan verður
enn á skjánum en þó með breyttum
áherslum. krista@dv.is
Ríkissjónvarpið leggur mikla áherslu á innlenda dagskrárgerð í vetur. Meðal leikins
efnis verður þátturinn Mannaveiðar sem skrifaður er upp úr glæpasögunni Aftureld-
ingu og á laugardagskvöldum verður til sýningar einn allsherjar skemmtiþáttur.
þriðjudagur 14. ágúst 2007DV Bíó 27
EkkErt
gErð Star trEk
Verðlaunaður
í Sviss
Breski leikarinn sir Anthony Hopk-
ins vann til verðlauna fyrir leik-
stjórn og leiksnilld sína á Locarno,
alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í
Sviss. Hopkins var verðlaunaður
fyrir leikstjórn sína á myndinni Slip-
stream en í henni lék hann einnig
eitt aðalhlutverkið. Verðlaununum
fyrir besta leikinn deildi hann með
Frakkanum Michel Piccoli og Ítal-
anum Michele Venitucci. Í nýjustu
mynd sinni, Slipstream, fer Hopkins
með hlutverk þýsks rithöfundar og
hefur myndin fengið góða dóma
hingað til.
Tillman gerir
mynd um Biggie
Leikstjórinn George Tillman Jr., sem
á að baki myndir á borð við Men of
Honor og Soul Food, mun leikstýra
nýrri kvikmynd sem byggist á ævi
rapparans Notorious B.I.G. Það
er viðskiptajöfurinn og rapparinn
Sean Diddy Combs sem framleið-
ir myndina, en hann og Biggie voru
miklar félagar. B.I.G hét réttu nafni
Chrisopher Wallace og var af mörg-
um talinn einn áhrifamesti rappari
austurstrandarinnar fyrr og síðar.
Hann lést í skotárás árið 1997. Um
þessar mundir leitar kvikmyndafyr-
irtækið Fox Searchlight að leikara til
þess að leika rapparann og eru allir
sem líkjast honum á einn eða annan
hátt beðnir um að senda fyrirtækinu
upptöku af sér.
Fleiri Conan-
myndir í vændum
Kvikmyndafyrirtækið Millennium
Films hefur eignað sér réttinn á
sögunum um villimanninn Conan,
sem Arnold Schwarzenegger lék
eftirminnilega áður fyrr. Conan er
byggður á sögum Robert E. Howard
og fjallar um stríðsmann fyrr á öld-
um sem ferðast um með sverð sitt.
Ekki hefur enn verið rætt um smáat-
riði varðandi næstu kvikmynd, en á
næstu dögum hefst leitin að leikara
í hlutverkið. Nýju myndirnar verða
þó trúrri sögum Howards en þær
myndir sem Arnold lék í.
Bolir Götuhernaðarins Hafa unnið að
gerð heimasíðu með ýmsu skemmtiefni.
MaNNaVEIðar
Í SJÓNVarPINU
Þórhallur
Gunnarsson
dagskrárstjóri
Sjónvarpsins
segir mikla áherslu
lagða á íslenska
dagskrárgerð.
Afturelding spennuþæ
ttirnir
Mannaveiðar eru skrifa
ðir upp úr
aftureldingu.