Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2007, Síða 22
Gunni Birgis hefur settt upp hraðahindrun við Smára-lindina, fækkað akreinum
um heilan helling, hann er búinn
að loka Dalvegi og Nýbýlavegi.
Gamli góði Villi er lítt skárri, hann
malbikar allar stofnbrautir borgar-
innar á einum og sama deginum.
Meðan garparnir tveir halda áfram
eins og þeir hafa gert fyllast allar
götur af fólki sem vissi ekkert hvað
þess beið, fór jafnvel að heiman án
þess að losa blöðruna. Vandræði
í hverjum bíl. Þegar ástandið er
þannig klukkan átta að morgni að
óslitin bílaröð er frá Hafnarfirði til
Reykjavíkur er ekki laust við að einn
maður, öðrum frekar, sé öfundaður
og það ekkert lítið.
Sá maður heitir Magnús Krist-insson og er frá Vestmanna-eyjum. Hann á peninga og
hefur útsjónarsemi. Hann keypti
sér ekki einkaþotu eins og hinir
ríku mennirnir. Nei, hann keypti
sér þyrlu og getur núna ullað
bæði á gamla góða Villa og Gunna
Birgis. Magnús þarf
ekkert að hanga í
röð við Smára-
lind eða á Hafn-
arfjarðarvegi
eða á Kringlu-
mýrarbraut
eða Miklubraut
eða Sæbraut eða
Suðurlandsbraut. Hans
vegna mega Villi og Gunni loka
öllum götum og haga sér eins og
þeir vilja. Magnús á þyrlu, hann er
öfundaður. Hann er ekki í spreng í
endalausri röð. Reyndar er Magn-
ús ekki bara lánsamur á þyrlunni.
Hann á bílaumboð við
Nýbýlaveg, en þang-
að hefur verið
ófært nánast eins
lengi og elstu
menn muna.
Gunni er að grafa
þar. Það er eini
vandi Magnúsar.
Þar sem okkur finnst svo fínt að skulda hlýtur að koma að því að peningahús bank-
anna, sem eru að springa und-
an peningum, opnist og við get-
um fengið lán til að kaupa okkur
þyrlu. Þá má Nýbýlavegurinn vera
lokaður eins lengi og Gunni vill,
líka Kársnesbrautin og hvað sem
þær kallast allar þessar blessuðu
götur. Að hugsa sér að geta svifið
yfir öllum bílaröðunum og jafnvel
klósett um borð. Ætli bílþök séu
jafnfjölbreytt á litinn og húsþök?
Sennilega ekki, en það vita þeir
svo sem einir sem eiga þyrlu. Hvað
ætli þyrlupallur kosti? Þeir verða
fínir við hliðina á trampólínunum
öllum. Þá verða garðarnir tvíeygðir
séð úr þyrlum.
Gunni Birgis og gamli góði
Villi munu
halda áfram
að grafa og
malbika. Þeir
kunna það, já,
það kunna þeir.
Þeir skapa ekki vand-
ann. Það gera bankarnir, þeir bjóða
ekki lán til kaupa á þyrlum. Ef banka-
stjórarnir væru ekki alltaf á þotum
milli landa, ef þeir vissu hvað það
er erfitt að vera í endalausri bílaröð,
og það í spreng, myndu þeir hleypa
peningum út og lána okkur fyrir
þyrlum. En hvar er hægt að lenda?
miðvikudagur 29. ágúst 200722 Umræða DV
Útgáfufélag: Dagblaðið-Vísir útgáfufélag ehf.
Stjórnarformaður: Hreinn loftsson
framkVæmDaStjóri: Elín ragnarsdóttir
ritStjóri og ábyrgðarmaður:
Sigurjón m. Egilsson
fulltrÚi ritStjóra: janus Sigurjónsson
fréttaStjóri: brynjólfur Þór guðmundsson
aðStoðarritStjóri: Sigríður Dögg auðunsdóttir
auglýSingaStjóri: Valdimar birgisson
Umbrot: dv. Prentvinnsla: Prentsmiðja morgunblaðsins.
Dreifing: árvakur. dv áskilur sér rétt til að birta aðsent efni
blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
aðalnúmer 512 7000, ritstjórn 512 7010,
áskriftarsími 512 7080, auglýsingar 512 70 40.
Vantar þyrlukaupalán
daggeisli
Sigurjón M. EgilSSon ritStjóri Skrifar. Þeir sögðu já, án þess að kynna sér hvað það var sem þeir samþykktu.
Ekkert spurt, engu svarað
leiðari
Ríkisstjórn Íslands hafði um tvennt að velja, endurbæta núverandi Grímseyjar-ferju, en endurbæturnar voru metnar á um 50 milljónir króna, eða að kaupa nýa
ferju. Sá kostur var valinn. DV hefur undir hönd-
um minnisblað frá ríkisstjórnarfundi 5. apríl 2005,
þar sem segir: „Oilean Arann er hugsanlega falt
fyrir 80 til 100 milljónir króna í núverandi ástandi
og að viðbættum 60 milljónum króna í endurbæt-
ur verður heildarverð um það bil 150 milljónir
króna.“ Þetta stóð í plaggi sem ríkisstjórnin skoð-
aði og mat að best væri að kaupa ferjuna. Hún
kostaði meira en 80 milljónir og meira en 100 milljónir. Kaupverð-
ið var 975.000 sterlingspund, tæpar 130 milljónir, og endurbæturnar
koma til með að kosta meira en 60 milljónir króna.
Sturla Böðvarsson kynnti þessar upplýsingar á ríkisstjórnarfundi 12.
apríl 2005. Í minnisblaði til ríkisstjórnarinnar mælir Sturla með því
að írska ferjan verði keypt. Skynsamlegra sé að eyða 150 milljónum
í kaup og endurbætur á írsku ferjunni en að leggja út í nýsmíðar fyr-
ir 600 milljónir. Sturla tekur það fram að gera megi ferjuna Sæfara
hæfa fyrir siglingaleiðina til Grímseyjar fyrir sextíu milljónir, en það
sé engu að síður talið óraunhæft fyrir þá 28 ára gamalt skip.
„Því er hér lagt til að ríkisstjórnin heimili að skipið Oilean Arann
verði keypt og endurbætt fyrir um 150 milljónir
króna, auk þess sem núverandi Sæfari verði seldur.
Heimildar Alþingis fyrir þessari ráðstöfun verði síð-
an aflað í fjárauka- eða fjárlögum næsta haust,“ seg-
ir Sturla í minnisblaðinu.
Það sjá allir að þetta var gjörsamlega vonlaus af-
greiðsla. Ekkert af því sem ríkisstjórnin ætlaði gekk
eftir, ekkert.
Með Sæfara mega fara ámóta margir farþegar og
íbúar Grímseyjar eru. Þess vegna hefði Sæfari dug-
að áfram og aldur skipa segir ekki allt, eins og þá-
verandi samgönguráðherra gerði að stórmáli. Til
gamans má geta þess að varðskipin þrjú eru frá 32 ára til 48 ára.
Það virðist blasa við að ekki var athugað hver kostnaðurinn kæmi
til með að verða áður en ákveðið var að kaupa ferjuna frá Írlandi og
þegar upp verður staðið verða þau kaup þau verstu sem hugsast gat.
Það hefði verið ámóta dýrt að smíða nýtt skip, sem væri þá sérstak-
lega hannað til þessara siglinga og því betra en aðrir kostir, og senni-
lega hefði verið best af öllu að endurgera Sæfara. Hann hefði dugað
vel og það jafnvel fyrir aðeins tíunda hluta þess sem ósköpin munu
kosta þegar allt kemur til alls. Ráðherrar hafa farið illa með opinbert
fé. Þeir sögðu já, án þess að kynna sér hvað það var sem þeir sam-
þykktu.
dómstóll götunnar
Hvaða kröfur á að gera í kjarasamningum í Haust?
„Ég vil að það verði gerð grundvallar-
breyting í þessu en hún er sú að hækka
lægstu launin sem að mínu mati eru
allt of lág. í stað þess að laun þessara
hæst settu hækka ættu menn frekar að
launa verst launuðu stéttirnar betur.“
Böðvar Már Böðvarsson, 43 ára
starfsmaður Eimskips
„fyrst og fremst betri kjör og þar af
leiðandi hækka lægstu launin. annars
mega laun í samfélaginu hækka meira
og á kostnað þeirra sem eru ríkir. svo
finnst mér að það ætti að útrýma
jafnaðarkaupi þannig að menn sem
vinni yfirvinnu fái hana greidda.“
Ólafur Jóhann Sigurðsson, 20 ára
verslunarmaður
„mér finnst að menn ættu að hækka
lægstu launin og um leið að reyna að
viðhalda stöðugleika í samfélaginu.
Það þarf að reyna að fara milliveginn í
þessum efnum. ef það er mögulegt
þurfa laun þeirra stétta sem eru hvað
verst launaðar að hækka.“
Baldur Jón Kristjánsson, 24 ára
nemi
„Ég hef í rauninni ekki mikla skoðun á
því. mér finnst samt að menn ættu að
einblína á það að hækka lægstu laun.
Það er algjört lykilatriði að mínu mati.“
Bjarni Magnússon, 24 ára nemi
sandkorn
n Ráðuneytisstjóraskipti blasa
nú við í utanríkisráðuneyt-
inu. Grétar Már Sigurðsson,
hefur gegnt
starfinu
um nokk-
urt skeið.
Líklegast
þykir að
annað hvort
Berglind
Ásgeirsdótt-
ir eða Helga
Jónsdóttir verði fyrir valinu.
Berglind, sem hefur mikla
reynslu úr stjórnkerfinu, hafði
sótt um ráðuneytisstjórastöðu
í viðskiptaráðuneytinu, en
hefur nú dregið umsókn sína
til baka. Helga Jónsdóttir vann
á hinn bóginn náið með Ingi-
björgu Sólrúnu Gísladóttur
utanríkisráðherra hjá Reykja-
víkurborg.
n Af vefnum barnaland.is má
margt læra, kannski einkum það
að konur eru ekki konum verst-
ar. Pennar
Barnalands
skiptast á
uppskrift-
um, biðja
um að kveikt
sé á kertum
og beðið
fyrir sjúkum
og annað í
þá veru. Nú kveður við glænýjan
og skemmtilegan tón á síðunni,
þar sem skríbentar leiðbeina
hver öðrum um lausn á kross-
gátu Morgunblaðsins um helg-
ina sem reyndist mörgum erfið.
Hvaða orð passar í 32 lóðrétt?!
n Teiknimyndin Ratatouille
hefur verið tekin til sýninga hér
á landi með bæði íslensku og
ensku tali.
Það er alltaf
ánægjulegt
þegar hinu
ástkæra yl-
hýra er gert
hátt undir
höfði, en
það á þó
ekki við um
allt í kringum kvikmyndina.
Athygli vekur að í ónefndu kvik-
myndahúsi í Reykjavík var held-
ur vandræðaleg stafsetningar-
villa, því þar sem átti að standa
„íslenskt tal“ stóð „ýslenskt tal“.
n Það á ekki af hinum meinta
drápsmanni Lúkasar, Helga
Rafni Brynjarssyni, að ganga.
Eftir að æstur múgur í netheim-
um dæmdi Helga Rafn öðlaðist
hann vafasama frægð. Þegar
Lúkas fannst heill á húfi sáu
allir að sér
og kölluðu
hann hinn
vænsta
dreng. Fyrr-
verandi
leigusali
Helga Rafns
er þó langt
frá því að
vera á sama máli. Þegar Helgi
Rafn skilaði íbúð sem hann
leigði í sumar var hún rústir
einar, greinilegt var að pissað
hafði verið út um allt og að sögn
leigusalans hafði verið spreyjað
upp á alla veggi. Það getur verið
erfitt að vera frægur á Íslandi.