Félagsbréf - 01.12.1958, Page 5
Engin mánaðarbók kemur út í janúar 1958
FEBRIJARBÓK AB
eftir RAINER MARIE RILKE
þýðandi HANNES PÉTURSSON skáld
Rainer Marie Rilke (1875—1926) var heimsfrægt austurrískt skáld
og rithöfundur, fæddur og alinn upp í Prag. Ljóð hans eru ákaflega
listræn og lýrisk og hafa haft mikil áhrif á heimsbókmenntirnar.
Rilke ritaði ekki mikið í óbundnu máli, en allt ber það svip hins
mikla og fágaða listamanns.
Sögur af himnaföðurnum eru þrettán sögur, sem mynda allar eina
heild, en himnafaðirinn er að einhverju leyti rauði þráðurinn í þeim
öllum, — eða svo að notuð séu orð sögumannsins sjálfs:
„Ég ætla ekki að ljóstra því upp fyrirfram um hvað sögurnar fjalla.
En af því ekkert veldur ykkur eins miklum heilabrotum né liggur
ykkur jafnþungt á hjarta og himnafaðirinn, þá ætla ég í hvert skipti
sem henta þykir að smeygja inn því sem ég veit um hann“.
Sögurnar eru skrifaðar með góðlátlegri kímni, fagur og heillandi
lestur.
Stærð bókarinnar verður um 150 bls. Verð til félagsmanna eigi hærra
en kr. 76,00 ób., kr. 98,00 ib.