Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2007, Blaðsíða 6
Borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðis-
flokksins hefur sameinast um þá
ákvörðun að selja eigi tafarlaust all-
an hlut Orkuveitu Reykjavíkur í dótt-
urfélaginu Reykjavik Energy Invest,
REI. Þessi niðurstaða fékkst eftir
fjölda funda undanfarna daga eftir
að verulegur ágreiningur kom upp
innan flokksins er borgarfulltrúarnir
urðu æfir út í Vilhjálm Þ. Vilhjálms-
son borgarstjóra og Björn Inga
Hrafnsson, formann borgarráðs.
Borgarfulltrúarnir og borgarstjóri
fullyrða að full sátt og eining ríki inn-
an hópsins eftir ákvörðunina.
Um tíma logaði borgarstjórn
stafna á milli og í moldviðrinu síð-
ustu daga velti fólk því fyrir sér hvort
meirihlutasamstarf Sjálfstæðisflokks
og Framsóknarflokks væri að bresta.
Allir borgarfulltrúarnir, að borgar-
stjóra meðtöldum, hafa viðurkennt
óánægu sína undanfarið og telja
að stjórnendur Orkuveitunnar hafi
staðið óeðlilega að málum. Þeir vilja
greina til hlítar hvað fór úrskeiðis og
tryggja að mistökin geti ekki endur-
tekið sig. Til að tryggja það sem best
víkur Haukur Leósson, stjórnarfor-
maður Orkuveitunnar, úr stjórn á
næstunni og einhver borgarfulltrú-
anna tekur sæti hans í staðinn. Hver
það verður hefur ekki verið gefið
upp.
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks-
ins vilja selja hlut Orkuveitunnar í
REI eins hratt og auðið er og vilja
hefja söluferlið hið fyrsta. Á endan-
um telja þeir sig geta leyst út 10 millj-
arða króna hagnað sem nýttur verð-
ur til að lækka skuldir borgarinnar.
Alvarleg kveðja
Dagur B. Eggertsson, oddviti
Samfylkingarinnar í borgarstjórn,
lýsir vonbrigðum sínum með ákvörð-
unina um að selja hlutinn. Hann tel-
ur hagsmunum Reykvíkinga ekki
vel gætt og undrast hversu illa hefur
gengið að fá upplýsingar um málið.
„Ég hef af því miklar áhyggjur að inn-
anflokksátök, valdabrölt og ósam-
lyndi innan meirihlutans leiði til
svona skyndiákvörðunar sem gengur
mjög freklega á almannahagsmuni.
Menn virðast vera sammála um það
á markaði að verðmæti fyrirtækisins
tvö- eða þrefaldast á næstu árum og í
einum grænum hvelli vilja sjálfstæð-
ismenn losa sig við þau verðmæti
fyrir slikk. Í mínum huga er sú stað-
reynd mjög alvarleg,“ segir Dagur.
„Borgarbúar hafa fengið þá kveðju
frá meirihlutanum að hann vilji af-
henda einhverjum mönnum fyrir-
tækið, tugmilljarða andvirði úr hönd-
um borgarbúa. Það gerist bara vegna
deilna innan raða meirihlutans og
bakvið luktar dyr eins og venjulega.
Við studdum sameininguna sjálfa
en teljum mikilvægt að tekið sé til í
öllum hliðarsamningum sem síð-
ar komu í ljós. Sameiningunni var
klúðrað algjörlega og stjórnarmenn
verða að axla þá ábyrgð.“
Fullkomin sátt
Borgarfulltrúarnir hittust með
borgarstjóra á hádegisverðarfundi
í gær, í Ráðhúsi Reykjavíkur, og leit-
uðu leiða til að sætta hópinn. Í upp-
hafi stóð til að fundurinn stæði í eina
klukkustund en hann dróst á lang-
inn. Tveimur og hálfum tíma eftir
að fundurinn hófst voru eftirréttirn-
ir keyrðir inn á fundinn og rúmum
hálftíma síðar var fjölmiðlamönnum
hleypt inn.
Vilhjálmur borgarstjóri er veru-
þriðjudagur 9. október 20076 Fréttir DV
SJÁLFSTÆÐISMENN
SNÚA BÖKUM SAMAN
Borgarstjórnarflokkur sjálfstæðismanna vill selja hlut Orkuveit-
unnar í Reykjavik Energy Invest og rannsaka framferði stjórnar-
manna Orkuveitunnar undanfarið. Skipt verður um stjórnarfor-
mann Orkuveitunnar. Allir borgarfulltrúarnir viðurkenna ósætti
undanfarna daga en segja nú fullkomið traust ríkja. Dagur B.
Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar í borgarstjórn, segir
hagsmunum borgarbúa fórnað vegna innbyrðis deilna og valda-
brölts meirihlutans.
TrAusTi hAFsTEinsson
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
UPPHAFLEGI LISTINN
Mikil reiði greip um sig í samfélaginu er í ljós kom að útvaldir starfs-
menn reykjavik Energy invest, rEi, og orkuveitu reykjavíkur áttu að fá
að kaupa hlutabréf fyrir tugi milljóna í rEi á sérkjörum. Meðal þeirra
sem voru á listanum eru ýmsir yfirstjórnendur orkuveitunnar en veru
þeirra á listanum var harðlega mótmælt af fulltrúum minnihlutans í
stjórn orkuveitunnar á kynningarfundi sem haldinn var vegna
sameiningar rEi og Geysis Green Energy. Í kjölfarið var nöfnum
stjórnendanna kippt út af listanum og eftir stóðu nýir starfsmenn rEi,
ýmsir vísindamenn orkuveitunnar og forstjóri hennar. sumir hinna
útvöldu höfðu aðeins unnið hjá rEi í skamman tíma. hér má sjá
upprunalegan lista þeirra einstaklinga sem áttu að hljóta rétt til að
kaup hlutabréf í rEi á sérkjörum.
ForsTjóri orkuvEiTu
rEykjAvÍkur:
n Guðmundur Þóroddsson
vÍsinDAMEnnirnir:
n Einar Gunnlaugsson
n Gestur Gíslason
n Grímur Björnsson
n jakob Friðriksson
n Þorleifur Finnsson
n vilhjálmur skúlason
nýir sTArFsMEnn rEi:
n Gunnar Örn Gunnarsson
n Guðmundur F. sigurjónsson
n hafliði helgason
n rúnar hreinsson
yFirsTjórn or
(Teknir út af listanum):
n Anna skúladóttir
n Páll Erland
n hjörleifur kvaran
n Eiríkur hjálmarsson
n hólmsteinn sigurðsson
n Loftur r. Gissurarson
Allir vinir Vilhjálmur borgarstjóri er ánægður með
sáttina sem náðist. undir það taka borgarfulltrúarnir
sem vilja alfarið tryggja að orkuveitan stundi ekki
áhættufjárfestingar í samkeppni við einkaaðila.
Dv MynDir ÁsGEir