Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2007, Side 7

Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2007, Side 7
DV Fréttir þriðjudagur 9. október 2007 7 SJÁLFSTÆÐISMENN lega ánægður með þá sátt sem náð- ist innan borgarstjórnarflokksins á fundinum í gær. Hann segir það alls ekki hlutverk opinbers fyrirtækis að stunda spákaupmennsku og fyrir vikið eigi ekki að velta fyrir sér mögu- legu verðmæti REI síðar meir. „Okk- ur tókst svo sannarlega að leysa okkar mál. Það hefur oft gerst að ágreining- ur komi upp í borgarstjórnarflokkum og í sjálfu sér er það ekkert óeðlilegt. Við ætluðum okkur aldrei að eiga lengi hlutinn í REI, það hefur aldrei staðið til. Um niðurstöðuna erum við fullkomlega sammála og ætlum að ráðast í söluferli á næstunni,“ segir Vilhjálmur. „Við viljum bæta upplýsingaflæð- ið milli stjórnar Orkuveitunnar og borgarfulltrúanna í ljósi þess trúnað- arbrests sem upp kom. Við lítum það mjög alvarlegum augum að upplýs- ingum um undirbúning málsins var ekki komið á framfæri við okkur og munum taka mjög ákveðið á því. Það kemur síðar í ljós til hvaða ráða verð- ur gripið.“ Þríþætt sátt Sátt borgarstjórnarflokks sjálf- stæðismanna er í raun þríþætt. Í fyrsta lagi ákvörðun um að selja hlut Orkuveitunnar í REI, í öðru lagi að rannsaka hvað fór úrskeiðis í vinnu- brögðum stjórnenda sem leiddi til trúnaðarbrestsins og í þriðja lagi að bæta úr samskiptum borgarstjórn- ar við stjórnendur Orkuveitunnar. Hanna Birna Kristjánsdóttir, forseti borgarstjórnar, er ánægð með niður- stöðuna þar sem tryggt sé að Orku- veitan sinni vel grunnþjónustu við almenning. „Við erum sátt. Sú sam- staða sem náðist er mjög mikilvæg. Við munum ræða í okkar hópi hvað fór úrskeiðis og í því þurfum við að ræða hvort Björn Ingi hefði átt að færa upplýsingar betur á milli. Þetta er alls ekkert eina málið þar sem við höfum þurft að takast á en ég tel okk- ur hafa leyst þetta mál vel. Öll erum við að vinna eftir bestu sannfæringu og treystum okkar fulltrúum,“ segir Hanna Birna. Í annað sinn Allur borgarstjórnarflokkur Sjálf- stæðisflokksins fullyrðir að upplýs- ingaskortur og samskiptaleysi hafi skapað þann ágreining sem verið hef- ur síðustu daga. Samkvæmt heimild- armönnum DV er þetta ekki í fyrsta sinn sem legið er á upplýsingum inn- an stjórnar Orkuveitunnar því þegar ákvörðun um REI var tekin á sínum tíma, í mars á þessu ári, töldu borgar- fulltrúar Sjálfstæðisflokksins sig ekki hafa fengið fullnægjandi upplýsing- ar um ferlið. Þetta er því í annað sinn sem þeir upplifa slíkan skort á upp- lýsingum og fyrir vikið brugðust þeir hart við er samskiptaleysi kom upp á nýjan leik nýverið. Fyrir utan upplýsingaskortinn er málefnaágreiningur sú meginástæða sem borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks- ins hafa gefið upp fyrir ágreiningi undanfarinna daga og segja það skoð- un sína að Orkuveitan eigi ekki heima í áhættufjárfestingum. Aðspurðir vildu borgarfulltrúarnir lítið gefa upp um það hvers vegna þeir hefðu ekki mótmælt fyrirhugaðri stofnun REI í mars síðastliðnum þegar það var kynnt. Eina haldbæra skýringin sem fékkst var að meiri fjármunir væru nú komnir inn í spilið og því hefði ver- ið komið tilefni til að velta hlutverki Orkuveitunnar frekar fyrir sér. Að auki hafi kaupréttarsamningar lykilstarfs- manna ýtt við borgarfulltrúunum til að skoða málið betur. Fer alls ekki saman Nú er útlit fyrir að málefnaágrein- ingur sjálfstæðismanna sé leystur með þeirri tillögu að selja hlut Orku- veitunnar í REI. Júlíus Vífill Ingvarsson, borgarfull- trúi Sjálfstæðisflokksins, segir enga aðra leið hafa komið til greina á end- anum. Hann fullyrðir að meirihluta- samstarfið hafi aldrei verið í hættu. „Það hefur komið berlega í ljós í þessu ferli að hagsmunir opinbers fyrirtæk- is og einkarekins fara alls ekki saman. Ágreiningurinn innan okkar raða hef- ur verið augljós en aldrei komið nærri því að sundra okkur. Innan hópsins ríkir eining og fullkomið traust rík- ir milli flokkanna í meirihlutanum. Í málinu kom upp núningur milli flokkanna sem þó hefur ekki náð að bera skugga á samstarfið.“ Aðspurður tekur Gísli Marteinn Baldursson, formaður borgarstjórn- arflokks Sjálfstæðisflokksins, í sama streng og telur ákvörðunina full- komlega eðlilega til þess að leysa úr ágreiningi innan flokksins og draga úr núningi við Framsóknarflokkinn. Hann segir aldrei annað hafa stað- ið til en að leysa ágreininginn. „Við teljum þessa leið koma fullkom- lega til móts við það sem við vildum. Orkuveitan á ekki að vera í ævintýra- mennsku að okkar mati. Með þessu tryggjum við líka betra upplýsinga- flæði til borgarfulltrúanna og getum alfarið metið hvernig lykilstjórnend- ur Orkuveitunnar höguðu sér í þessu máli,“ segir Gísli Marteinn. Vorum ekki ráðin til að græða Margir eru þeirrar skoðunar að með ákvörðuninni sé verið að selja einn verðmætasta hluta Orkuveit- unnar til einkaaðila. Borgarstjórn- arflokkur sjálfstæðismanna hef- ur iðulega lofað því að hann ætli ekki að selja Orkuveituna. Aðspurð- ir voru borgarfulltrúarnir einhuga um að með ákvörðun sinni um að selja hlutinn í REI væri ekki verið að brjóta gegn loforðum flokksins þar sem ekki væri stefnt á að selja sjálfa Orkuveituna á þessu kjörtímabili. „Við erum bara að selja útrásar- verkefni Orkuveitunnar. Sá hluti var kominn í samkeppni og þá töldum við rétt að selja. Vilhjálmur og Björni Ingi njóta fulls traust okkar borgar- fulltrúanna þrátt fyrir ágreininginn,“ segir Gísli Marteinn. Aðspurð er Hanna Birna sam- mála og segir það ekki hlutverk borg- arfulltrúanna að sinna fjárfestingar- hlutverki sem þessu. Hún segir það skýran vilja innan hópsins að vilja ekki vera í samkeppni við einkaað- ila. „Það er ýmislegt á markaði sem borgin gæti grætt á. Við vorum hins vegar ekki ráðin til þess. Við vorum ráðin til að fara með stjórn sveitarfé- lags og í því liggur munurinn,“ segir Hanna Birna. Vík milli vina Gísli Marteinn segir mikilvægt að farið verði yfir það hvernig stjórn- endur Orkuveitunnar hafi hagað sér í málinu. Hann er sannfærður um að hægt verði að læra af mistökunum sem gerð voru. „Við fengum ekki þær upplýsingar sem við kölluðum eftir og ekki rétta kynningu á málinu þeg- ar það var kynnt. Við förum rækilega yfir þetta mál til þess að svona gerist ekki aftur og ég lít svo á að nú sé deil- an að baki. Ég er sannfærður um að ef málið hefði verið unnið með eðli- legum hætti hefði ágreiningurinn ekki komið upp. Það var því miður ekki gert og við munum læra af þeim mistökum.“ Aðspurður segir Vilhjálmur alla borgarfulltrúa flokksins starfa vel saman og fullyrðir að svo verði áfram. „Við erum öll miklir vinir þó við höfum ekki öll verið sammála í þessu verkefni. Það getur margt gerst í góðum hjónaböndum og þeg- ar ágreiningur kemur upp tökum við þétt á honum. Við höfum gert fullt af góðum verkum saman og ætlum að halda því áfram,“ segir Vilhjálmur. „Það getur margt gerst í góðum hjónaböndum og þegar ágreiningur kemur upp tökum við þétt á honum.“ Björgólfur Beitti sér ekki Björgólfur Guðmundsson, stjórnarformaður Landsbankans, segir í yfirlýsingu rangt sem fram kom í DV í gær að hann hefði hugsanlega haft áhrif á Vil- hjálm Þ. Vilhjálmsson til að flýta sameiningu undir merkjum Reykjavik Energy Invest þar sem áhyggjur hafi verið vegna fjárhagsstöðu Hannesar Smárason- ar. Haft var eftir viðmælendum DV að þetta væri tal- in ástæða. Rétt er hjá Björgólfi að ekki var haft sam- band við hann vegna málsins. Af því tilefni biður DV málsaðila afsökunar en rétt hefði verið að hafa sam- band við þá áður en málið var sett fram. Ítrekað skal að vísað var í fréttaskýringunni til þessa orðróms um flýti- meðferð Vilhjálms á málinu en alls ekki kveðið upp úr um að þetta væri raunin. DV hefur ekki forsendur til að meta fjárhagsstöðu Hannesar Smárasonar fremur en afskipti Björgólfs. Framhald á næstu síðu Sáttir saman eftir samstöðuna á fundinum í gær fullyrða borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins að fullkomið traust ríki milli meirihlutaflokkanna. Á næstunni verður hins vegar rækilega farið yfir hegðun stjórnenda orkuveitunnar undanfarið. Engin lausn dagur. b. eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar í borgarstjórn, segir það enga lausn að ætla að selja fyrirtækið núna fyrir upphæð sem gæti orðið tugmilljörðum verðmætara eftir nokkur ár. Komið með eftirréttinn borgarstjórn- arflokkur Sjálfstæðisflokksins leysti ágreining sinn á löngum hádegisverðar- fundi í ráðhúsinu í gær. Hér er starfsmað- ur að færa fulltrúunum eftirrétt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.