Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2007, Síða 8
Sviptingar hjá
reykjavik energy inveSt
5. janúar 2007
Geysir Green stofnað
n Geysir Green Energy er stofnað.
Stofnendur fyrirtækisins eru FL
Group, Glitnir og VGH Hönnun. Frá
stofnun félagsins hefur það eignast
Jarðboranir, 32 prósenta hlut í
Hitaveitu Suðurnesja og fjárfest í jarð-
hitafélögum í Kanada, Þýskalandi og
á Filippseyjum. Höfuðstöðvar Geysis
eru í Reykjanesbæ.
27. mars 2007
reykjavik enerGy
invest stofnað
n Reykjavík Energy er stofnað sem
fjárfestingar- og viðskiptaþróunar-
armur Orkuveitu Reykjavíkur á
alþjóðavettvangi. Fyrirtækið er að 93
prósenta hlut í eigu Orkuveitu
Reykjavíkur.
11. september 2007
Glitnisforstjórar í rei
n Bjarni Ármannsson tekur að sér
stjórnarformennsku í Reykjavik
Energy Invest. Hann hafði keypt hluti
í félaginu fyrir um fimm hundruð
milljónir króna áður en hann tók að
sér stjórnarformennskuna. Stuttu
síðar er Jón Diðrik Jónsson,
fyrrverandi forstjóri Glitnis, ráðinn til
Reykjavik Energy Invest. Um var að
ræða tímabundið ráðgjafarverkefni
sem hann mun sinna fram til
áramóta.
25. september 2007
kosninGastjóri
björns inGa ráðinn
n Rúnar Hreinsson er ráðinn
verkefnastjóri hjá Reykjavik Energy
Invest. Rúnar hafði áður verið
kosningastjóri Framsóknarflokksins í
síðustu þingkosningum. Þar áður var
hann kosningastjóri Björns Inga
Hrafnssonar.
3. október 2007
sameininG undirrituð
n Stjórnir Reykjavik Energy Invest og
Geysis Green Energy undirrituðu
samkomulag um sameiningu
félaganna undir merkjum REI.
Ætlunin var að skapa leiðandi
fyrirtæki á heimsvísu í fjárfestingum
og þróun á sviði jarðvarma. Ekki eru
allir á eitt sáttir um vinnuhætti Björns
Inga og Vilhjálms og var mikið
kvartað undan upplýsingaskorti í
aðdraganda sameiningarinnar.
4. til 5. október 2007
óánæGja með
kaupréttarákvæði
n Eftir að kaupréttarákvæði
lykilstarfsmanna innan Orkuveitu
Reykjavíkur urðu ljós greip um sig
mikil óánægja í samfélaginu. Stjórn
REI fundaði um málið og komst að
þeirri niðurstöðu að draga heimildina
til baka þannig að útvöldum
starfsmönnum byðist ekki að kaupa
hlutabréf á sérgengi.
7. október 2007
borGarstjóri
oG björn inGi víki
n Miklar umræður fara fram á fundi
vinstri grænna þar sem Svandís
Svavarsdóttir lýsir því yfir að
spillingarkeimur sé af málinu. Hún
lýsir því einnig yfir að eðlilegast sé að
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson og Björn
Ingi Hrafnsson víki úr borgarstjórn
sökum vantrausts.
8. október 2007
sáttafundur hjá sjálfstæðismönnum
n Fundur hjá borgarfulltrúum Sjálfstæðisflokks sem miðar að því að ná samkomu-
lagi vegna þeirra deilna sem skapast hafa. Niðurstaðan er sú að selja hlutinn í
Reykjavik Energy Invest.
björn ingi hrafnsson, borg-
arfulltrúi Framsóknarflokks-
ins, segir að það komi til
greina að selja lítinn hluta í
Reykjavik Energy Invest
núna. Verðmæti Reykjavik
Energy Invest sýnir að það
var rétt ákvörðun að stofna
sjálfstætt félag um útrásar-
verkefni Orkuveitunnar.
Borgarstjórnarflokkur Framsókn-
arflokksins kom saman í gær til að
ræða þá stöðu sem upp var komin
eftir fund sjálfstæðismanna þar sem
þeir samþykktu að selja hlut borgar-
innar í Reykjavik Energy Invest.
Björn Ingi Hrafnsson, borgar-
fulltrúi Framsóknarflokksins, sagði
að fundi loknum að góð eining væri
innan flokksins þrátt fyrir þá stöðu
sem upp væri komin. „Við teljum að
þessi samruni hafi verið skynsamleg-
ur og þeir fjármunir sem við settum
inn í þetta fyrirtæki hafa margfaldast.
Þetta þýðir að íbúar Reykjavíkur og
sveitarfélaganna sem eiga Orkuveit-
una hafa styrkt mjög sína stöðu.“
ekki verið að einkavæða
Á fundinum, sem haldinn var í
höfuðstöðvum framsóknarmanna
á Hverfisgötu, var niðurstaða fund-
ar sjálfstæðismanna einnig rædd.
Björn Ingi segir að borgarfulltrú-
ar flokkanna tveggja muni hittast á
næstu dögum þar sem skorið verður
úr um hvernig verður hægt að vinna
að þeim málum í sameiningu. „Þetta
getur alveg farið saman en flokkarn-
ir verða að ræða þetta sín á milli.“
Aðspurður hver viðbrögð hans
við fundi sjálfstæðismanna hafi ver-
ið segir Björn Ingi að flokkarnir verði
að koma sér saman um þá niður-
stöðu. Björn Ingi vill þó bíða með að
selja stærsta hlutann því hann tel-
ur að hann geti orðið enn verðmæt-
ari þegar fram líða stundir. „Ég tel
að þá komi í ljós hversu miklir fjár-
munir hafa skapast úr þessum út-
rásarverkefnum. Ég vil líka koma
því á framfæri að það er ekki verið
að einkavæða Orkuveituna. Við sett-
um útrásarverkefni inn í sérstakt fé-
lag og þau eru orðin svona verðmæt.
Það eitt og sér sýnir að það var rétt
ákvörðun.“
vill hámarka gróðann
Björn Ingi segir að það komi vel
til greina af hans hálfu að selja lítinn
hluta núna til að lágmarka það sem
lagt var af fjármagni í fyrirtækið.
Aðspurður hvort gagnrýni á fram-
göngu hans og Vilhjálms hafi átt rétt
á sér segir Björn Ingi að hann reyni
að gera sitt besta og vera einlægur í
því sem hann tekur sér fyrir hendur.
„Ég hafði enga persónulega hags-
muni af málinu aðra en að reyna að
gera það sem væri Orkuveitunni til
góðs og íbúum á þessu svæði,“ seg-
ir Björn Ingi og bætir við að niður-
staða fundarins í gær hafi leitt það
í ljós að hann hafi fullan stuðning
í borgarstjórnarhópi framsóknar-
manna. „Maður verður að standa og
falla með sínum verkefnum.“
ekki þrýstingur frá jóni
ásgeiri
Aðspurður hvort Jón Ásgeir Jó-
hannesson hafi þrýst á samruna fyr-
irtækjanna tveggja til að hífa upp
ársreikninga FL Group segir Björn
Ingi að sú kenning gangi ekki upp.
„Við vorum ekki að hugsa um efna-
hagsreikninga FL Group. Við vorum
að reyna að búa til sem mest verð-
mæti úr þeirri þekkingu sem ligg-
ur fyrir í útrásarverkefnunum og ég
held að það sé vandfundið það verk-
efni sem hefur tekist jafn vel til að
skapa verðmæti á jafn stuttum tíma.
Það er ýmislegt í þessari atburðarás
sem við sáum ekki fyrir en ef mað-
ur hefur sannfæringu fyrir því sem
maður gerir verður maður að taka
þann slag. Það er ýmislegt sem má
gagnrýna í aðdragandanum og ég
hef farið yfir þann þátt. Hvað sem
því líður stendur það eftir að þetta
hafi verið gott fyrir samfélagið okkar
og þjóðhagslega hagkvæmt.“
Óskar Bergsson, varaborgar-
fulltrúi Framsóknarflokksins, vildi
engu bæta við orð Björns Inga að
fundi loknum.
einar þór siGurðsson
blaðamaður skrifar: einar@dv.is
„Við teljum að þessi
samruni hafi verið
skynsamlegur og þeir
fjármunir sem við sett-
um inn í þetta fyrirtæki
hafa margfaldast.“
VILL
SELJA HLUTA
ÞRIðJUDaGUR 9. OKtóBER 20078 Fréttir DV
björn ingi hrafnsson Það
kemur vel til greina að selja
lítinn hluta núna til að lágmarka
það sem lagt var af fjármagni í
fyrirtækið, segir Björn Ingi.