Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2007, Síða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2007, Síða 13
g ó ð i h ir ð ir in n Góði hirðirinn er verslun sem selur notað a húsmuni sem safnast í nytja- gáma Sorpu. Hvort sem þig vantar húsgögn, raftæki, leikföng, tímarit , bækur eða skrautmuni má slíka hlu ti finna í Góða hirðinum á verði sem vart finnst fordæmi fyrir hér á landi . Búðin hefur notið vaxandi vinsælda undanfarin ár en í fyrra fóru 800 t onn af vörum í gegnum verslunina . Aðsóknin er mikil sem sést best á því að tugir manna bíða í biðröð fyrir uta n búðina á degi hverjum. Ágóðinn renn ur óskiptur til líknarmála. Fimmtíu til sjötíu manns í biðröð „Smávaran er sá vöruflokk- ur sem ég held að sé vinsælastur. Húsgögn og raftæki eru líka vin- sæl og fara fljótt út. Annars er þetta óskaplega jafnt. Það selst eiginlega allt sem hingað kemur inn.“ Þetta segir Anna Jakobsdóttir, verslun- arstjóri í Góða hirðinum. „Það eru mjög margir sem hugsa til okkar þegar þeir eru að endurnýja hús- gögn og húsmuni og koma hlut- unum stráheilum til skila í endur- vinnslustöðvar Sorpu. Þar erum við með gáma sem við fáum svo senda á hverjum degi. Við tæm- um gámana, yfirförum það sem í þeim er og seljum á vægu verði hér í Góða hirðinum,“ segir Anna. Gríðarlegt magn Hún segir umfangið sífellt fara vaxandi. „Það er ótrúlegt hvað við Framhald á næstu síðu Anna Jakobsdóttir Segir aðsóknina hafa aukist mikið. fáum mikið af vörum til okkar. Við losum að jafnaði þrjá 20 feta gáma á dag. Í fyrra tókum við 800 tonn í búðina okkar. Þessi 800 tonn hefði annars þurft að urða. Við erum því að stuðla að minni sorplosun og betri nýtingu þeirra hluta sem við kaupum okkur. Hér getur fólk komið og keypt húsgögn, leikföng, bækur eða skrautmuni sem aðrir hafa ekki þörf fyrir lengur.“ Anna segir ástandið á vörunum alla- jafna gott. „Bæði þeir sem velja að setja húsmunina í gámana okkar og þeir sem þar vinna kappkosta að fallegir hlutir verði ekki fyrir hnjaski. Það er algjör undantekn- Umsjón Baldur Guðmundsson Myndir Ásgeir Mikael Einarsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.