Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2007, Síða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2007, Síða 18
þriðjudagur 9. október 200718 Sport DV í dag 07:00 CoCa-Cola Championship 16:20 CoCa-Cola Championship 18:00 premier league World Heimur úrvalsdeildarinnar Nýr þáttur þar sem enska úrvalsdeildin er skoðuð frá ýmsum óvæntum hliðum. 18:30 CoCa Cola mörkin Farið yfir öll mörkin og helstu atvikin í leikjum síðustu umferðar í Coca Cola deildinni. 19:00 liverpool - ToTTenham enska úrvalsdeildin 20:40 arsenal - sunderland enska úrvalsdeildin 22:20 english premier league ensku mörkin Ný og hraðari útgáfa af þessum vinsæla þætti þar sem öll mörkin og helstu atvik umferðarinnar eru sýnd frá öllum mögulegum sjónarhornum. 23:15 man. CiTy - middlesbrough enska úrvalsdeildin ÍÞRÓTTAMOLAR Fh-ingar ósáTTir við siim dennis Siim, leikmaður FH, fór inn í klefa áður en leik FH og Fjölnis lauk. Hann mætti ekki til verðlaunaafhend- ingar til þess að taka við sigurverð- launum liðsins í bikarkeppni kSÍ. FH-ingar eru mjög gramir út í Siim fyrir hegðun hans eftir leikinn en Siim kom ekki inn á í leiknum og var ósáttur við þá ákvörðun þjálfarans. Siim er samningslaus en vitað er af áhuga FH-inga á að halda leikmanninum á næsta leiktímabili. TindasTóll Fær leikmann tindastóll hefur fengið til sín leikstjórn- anda í stað Mike Wiatre sem ákvað að semja ekki við liðið. Sá er Serbinn Samir Shaptahovic sem samdi upphaflega við kr en er nú á leið til tindastóls. Shaptahovic er 26 ára bakvörður sem er 174 sentímetrar að hæð og 78 kíló að þyngd. Shapta-hovic hefur leikið í kósóvó undanfarin ár og er góður vinur edmons azemi sem lék með kr eftir áramótin. Hann er öflugur varnarmaður og leikur sem leikstjórnandi. birgir leiFur keppir á spáni birgir Leifur Hafþórsson er á meðal kylfinga á Madridar-mótinu sem hefst á fimmtudaginn á Spáni. Hann hefur ekki leikið á mótaröðinni frá því í september og þarf á góðum árangri að halda til að eiga möguleika á því að vera á meðal þeirra 115 efstu á peningalist- anum en ef það tekst fær hann keppnisrétt á næsta tímabili. Sem stendur er hann í 190. sæti. birgir var fjórði á biðlista á mótinu og komst hann því inn á mótið á síðustu stundu. eggerT gunnþór gerir það goTT hjá hearTs eggert gunnþór jónsson, leikmaður Hearts, fær mikið lof fyrir frammistöðu sína með Hearts sem vann Falkirk 4-2 í skosku úrvalsdeildinni á sunnudag. eggert átti þátt í þremur mörkum Hearts í leiknum. Á vefsíðu Hearts var hann valinn maður leiksins og sérstak- lega tekið fram hversu góður hann sé að brjóta niður sóknir andstæðinganna á miðj-unni. Hearts er á hvínandi siglingu í skosku deildinni og hefur unnið 6 af síðustu sjö leikjum. Liðið er í 5. sæti deildarinnar. Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari kvennalandsliðsins í knattspyrnu, sækir nú um stundir þjálfaranám- skeið á vegum Knattspyrnusam- bands Evrópu. Þegar hann lýkur námskeiðinu mun hann bera UEFA PRO-gráðu og verður hann annar þjálfarinn hér landi á eftir Teiti Þórð- arsyni til þess að bera þessa þjálfara- gráðu. Sigurður er fræðslustjóri KSÍ og stefnt er að því að haldið verði sér- stakt UEFA PRO-námskeið á Íslandi undir handleiðslu Sigurðar. „Á þessu námskeiði kemur sam- an hópur manna sem er saman í eitt ár. Það eru símafundir einu sinni í viku þar sem þátttakendur þurfa að vera með efni tilbúið og kynna fyrir hinum. Við erum úr öllum heims- hornum á fundunum en síðan þarf ég að fara til útlanda og kynna mér aðstöðu þjálfara í atvinnumennsku. Á námskeiðinu er heilmikið lesefni og verkefni sem við þurfum að leysa úr.“ með roy keane í hópi Margir af fremstu þjálfurum heims leitast eftir því að fá UEFA PRO-gráðu. „Með mér á námskeið- inu eru Roy Keane, Gary Ablett og fleiri vel þekkt nöfn í knattspyrnu- heimunum. Það er gaman að segja frá því að allir þurfa að leysa verkefni. Allir sem eru í þessu eru mjög upp- teknir í vinnu og þó Keane sé fram- kvæmdastjóri í úrvalsdeildinni lætur hann sig aldrei vanta. Engu að síður vinna framkvæmdastjórar í úrvals- deildinni um 80 til 100 tíma á viku.“ houllier og Capello á ráðstefnu með sigurði „Ég fór á ráðstefnu þar sem með- al annarra Gerrard Houllier og Fabio Capello héldu fyrirlestur. Þeir voru að tala um sína reynslu sem þjálfarar. Þetta með Cappello var meira í við- talsformi en Houllier hélt fyrirlest- ur. Houllier-fyrirlesturinn var mjög áhugaverður og hann gaf mun meira af sér en Capello. Hann var með praktísk og góð ráð. Til dæmist talar Houllier um að mikilvægasti fund- urinn sem maður heldur er blaða- mannafundurinn strax eftir leikinn því maður getur verið viss um að all- ir fylgist með því, bæði leikmenn og fjölskylda. Því er mikilvægt að huga að því hvað maður segir í þessu við- tali. Hann sagði einnig að mikilvæg- asti leikurinn væri alltaf næsti leikur en ekki sá síðasti. Lítið fæst með því að benda mönnum á það sem þeir gerðu illa í síðasta leik, miklu betra er að einbeita sér að styrkleikunum því þeir vinna leiki en ekki veikleik- arnir.“ raunhæft verkefni Eitt verkefnanna sem Sigurð- ur þarf að leysa úr hljómar svona: Leeds Utd. á móti Sheffield Wednes- day í umspili um sæti í efstu deild. Þú ert Sheffield Wednesday og ert 2- 1 undir eftir fyrsta leikinn. Þú ert án aðalsóknarmanns þíns fyrir seinni leikinn þar sem hann var sendur af velli í fyrri leiknum. Hvernig myndir þú setja leikinn upp og hvaða leikaðferð myndir þú nota varnarlega og sóknarlega? „Maður þarf mikið að segja sína skoðun á málunum sem tengjast þjálfun og hvernig maður ætlar að koma sinni hugmyndafræði frá sér. Eins er skoðað hvernig maður kem- ur reynslunni af sínum ferli frá sér. Það eru engin rétt og röng svör en námskeiðið er að miklu leyti uppsett til þess að fá mann til að hugsa um það sem maður er að gera og hvern- ig maður kemur þessu frá sér. Þetta er frábært tækifæri að vera þarna því maður er að vinna með gæjum sem eru fremstir á sínu sviði í heimin- um.“ ueFa pro-námskeið í íslandi Sigurður er fræðslustjóri hjá KSÍ og stefnir hann að því að halda UEFA PRO-námskeið á Íslandi. UEFA PRO- námskeið er lokastigsnámskeið á eftir UEFA B-prófi og UEFA A-prófi. „UEFA skrifaði KSÍ bréf og benti á það að heppilegt sé að fræðslustjóri hafi þetta PRO-skírteini. Með það í höndunum getur fræðslustjórinn skipulagt slíkt námskeið á Íslandi. Menn hjá KSÍ hvöttu mig í kjölfarið til þess að taka þetta námskeið og ég gerði það. Nú er hugmyndin í kjölfar- ið að kanna hvort þetta veiti vettvang fyrir því að halda slíkt námskeið hér á landi undir minni handleiðslu. Önn- ur leið er að fara í samstarf við enska knattspyrnusambandið og gefa þjá- furum tækifæri á því að fara þangað. Það mun nýtast knattspyrnuhreyf- ingunni í heild að ég sé á þessu nám- skeiði. Sumt sem kennt er á námskeið- inu staðfestir einfaldlega það sem maður er að gera og veitir manni vissu um að maður sé á réttri leið. Annað hjálpar manni á annan hátt en öll menntun er af hinu góða og það eru mjög mikil gæði á þessu námskeiði.“ mikil fagmennska „Eitt hefur komið mér nokkuð á óvart. Ég var í viku á ráðstefnu með þjálfurum sem allir eru gríðarlega uppteknir á undirbúningstímabil- inu. Það kom aldrei einn einasti maður of seint og það var mikill agi á öllu. Það er ólíkt því sem er að ger- ast á Íslandi þar sem alltaf eru ein- hverjir sem mæta of seint. Ég hef haldið meira en hundrað námskeið á Íslandi og það eru alltaf einhverj- ir sem þurfa frí til að stjórna æfingu eða eitthvað annað. Úti eru hins vegar þjálfarar sem stjórna stórum liðum en þeir hafa alltaf tíma til þess að mæta á þessi námskeið. Jafnvel þótt þar séu und- irbúningstímabil í fullum gangi og menn að leita sér að leikmönnum.“ ekki á leið í þjálfun í lands- bankadeildinni „Ég hef mjög lengi stefnt að því að fara út í þjálfun og menntaði mig lengi. Ég er íþróttafræðingur auk þess að vera með masters-gráðu í íþróttasálfræði. Eins hefur það ver- ið frábær skóli að vera fræðslustjóri í um fimm ár. Maður veit aldrei hvort maður fari utan að þjálfa. Núna er ég mjög einbeittur að því að þjálfa kvenna- landsliðið. Okkur langar mikið að verða fyrsta liðið frá Íslandi til þess að komast í lokakeppni Evrópumóts- ins. Við eigum fína möguleika á því og það væri stórkostlegt að ná því. Ég er ekkert búinn að útiloka það að þjálfa félagslið bæði hérlendis og erlendis. Ég er núna með þetta PRO- skírteini og hef komið mér upp fullt af samböndum erlendis. Eins og staðan er núna þjálfa ég kvennalandsliðið og ég hugsa að ég myndi ekki gefa það starf upp á bátinn ef lið í Landsbankadeildinni myndi falast eftir mínum starfskröft- um.“ sigurður ragn- ar eyjólfsson sækir nú UEFA PRO Licence- námskeið á vegum Knatt- spyrnusam- bands Evrópu. Meðal annarra er roy keane á námskeiðinu með Sigurði en aðeins Teitur þórðarson hefur þessa þjálfaramennt- un hér á landi. sigurður ragnar eyjólfsson er á þjálfaranámskeiði sem margir af fremstu þjálfurum heims fara á. viðar guðjónsson blaðamaður skrifar: vidar@dv.is Á ÞjÁLfARAnÁMskeiði Með ROy keAne

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.