Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2007, Síða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2007, Síða 27
Skipta um gír Bandaríska sveitin Green Day er langt frá því að vera dauð úr öll- um æðum og á í vanda með að velja milli laga fyrir væntanlega plötu sína. Billie Joe Armstrong, forsprakki sveitarinnar, segir að þeir séu búnir að semja um 45 ný lög og eigi í erfiðleikum með að sigta þar út. „Þetta er óttalegt reiðuleysi og við erum ekki alveg vissir hvenær platan kemur út,“ segir Billie en megnið af lögunum sem sveitin hefur samið nýlega hefur verið á píanó í stað gítars eins og hún er vön. Framhald aF Crank Staðfest hefur verið að gert verð- ur framhald af spennumynd- inni Crank frá 2006 sem skartaði Jason Statham í aðalhlutverki. Þetta kemur nokkuð á óvart þar sem myndin endaði þannig að persóna Statham féll til jarðar úr þyrlu og dó að því virtist. „Crank 2 mun byrja nákvæmlega þar sem sú fyrri endaði. Þetta er alvöru framhald. Statham mun leika aðalhlutverkið aftur. Hann mun ekki leika bróður hans eða neitt þannig. Við ætlum að gera helm- ingi öflugri mynd,“ segir aðstoð- arleikstjórinn Brian Taylor um Crank 2 en fyrri myndin var mjög hröð og gróf. BætiSt við the Code Leikkonan Radha Mitchell er nýjasta viðbótin við spennu- myndina The Code. Hún skartar þeim Morgan Freeman og Ant- onio Banderas í aðalhlutverkum. Mitchell leikur konu sem á í ástar- sambandi við þjóf sem er leikinn af Banderas. Hún reynir að kom- ast upp á milli þjófsins og vinnu- félaga hans og lærimeistara sem er leikinn af Morgan Freeman. Hann er einnig guðfaðir konunn- ar. Tökur hefjast í lok mánaðarins í New York en Mimi Leder leik- stýrir myndinni. Megas heldur tónleika um helgina þar sem nýja platan hans verður seld í fyrsta skipti: Tónleikar og ný plaTa Goðsögnin lifandi, Megas, held- ur tónleika í Laugardalshöllinni á laugardaginn kemur ásamt Senu- þjófunum. Meðan á tónleikun- um stendur verður nýjasta plata Megasar og Senuþjófanna seld en hún heitir Hold er mold og er ekki væntanleg í verslanir fyrr en mánu- daginn 15. október. Platan Hold er mold er önn- ur platan sem Megas sendir frá sér ásamt Senuþjófunum en í júlí gaf hann út plötuna Frágangur sem fékk frábæra dóma og hefur notið töluverðra vinsælda. Hold er mold var tekin upp samhliða Frágangi og inniheldur 16 ný lög. Tónleika- gestum á laugardaginn gefst því einstakt tækifæri til þess að festa kaup á plötunni áður en hún fer í al- menna sölu. Megas mun flytja nýtt efni í bland við gamalt á tónleikun- um og ættu því Megasar-aðdáend- ur frá hinum ýmsu tímabilum að fá eitthvað fyrir sinn snúð. Miðasala á tónleika Megasar er enn í fullum gangi og er einungis selt í sæti á tónleikunum. Miði í sæti í sal kostar 6.900 krónur en miði í stúku kostar 5.900 krónur en um 2.500 miðar eru í boði á tónleikana. Hægt er að kaupa miða á midi.is, í verslunum Skífunnar og BT á lands- byggðinni. asgeir@dv.is þriðjudagur 9. október 2007DV Bíó 27 HálfgerT Trúboð „Þetta hefur gengið vonum framar,“ segir Gylfi Blöndal rekstrarstjóri um ganga mála á skemmti- og tónleika- staðnum Organ. „Ég er með starfs- titilinn organæser en ég sé um dag- legan rekstur staðarins ásamt Ingu Sólveigu, eiganda Organs.“ Gylfi seg- ir tilkomu Organs hafa verið nauð- synlega fyrir íslenskt tónleika- og skemmtanalíf en þó megi gera enn betur. „Það var vitað hvernig ástand- ið í tónleikamálum var áður en við fórum út í að gera þennan stað. Enda hefur það sýnt sig að við erum rétt að skrapa yfirborðið með þess- um fernum tónleikum á viku,“ segir Gylfi glaður í bragði. Fjölnota næturklúbbur Gylfi bendir þó á að þótt Org- an hafi blásið nýju lífi í tónleika- hald í miðborginni sé staðurinn ekki bara tónleikahús. „Við lítum á okkur sem fjölnota næturklúbb. Þó svo að markmiðið hafi verið að gera óað- finnanlegan tónleikastað varðandi hljóðkerfi, aðstöðu og annað erum við einnig öflugur skemmtistaður.“ Gylfi segir hugmyndafræðina bak við Organ vera þá að gestir geti kom- ið snemma kvölds og hlýtt á tón- leika. Að tónleikunum loknum geti fólk svo setið áfram fram eftir kvöldi og skemmt sér eða stigið dans. „Þeg- ar tónleikunum lýkur erum við svo alltaf með plötusnúða,“ og seg- ir Gylfi að reynt sé að spila tónlist sem fylgi tónleikunum sem á undan voru. „Meðal þeirra sem hafa verið að þeyta skífum hjá okkur eru Jack Schidt eða Dj Margeir, Maggi Legó, Gísli Galdur, Dj Lazer eða Jón Atli úr Hairdoctor og Andrea Jónsdóttir.“ Organ hefur einnig hýst erlenda plötusnúða sem er til marks um það hversu fjölbreytt tónlistarflóra stað- arins í raun og veru er. Airwaves og spennandi tónleikar Organ kemur sterkt inn sem eitt af aðaltónleikahúsunum á komandi Airwaves-hátíð sem verður haldin dagana 17. til 21.október. „Við verð- um með mjög þétta dagskrá meðan á hátíðinni stendur og verður eitt- hvað að gerast alla dagana eða frá miðvikudegi fram á sunnudag,“ seg- ir Gylfi en hann er sjálfur að spila á Organ á fimmtudeginum með hljómsveitinni Kimono. Þó svo að Airwaves sé vissulega stærsti bitinn í íslensku tónlistarlífi á næstunni verður engu að síður nóg að gerast á Organ á komandi vik- um og mánuðum. Núna á fimmtu- daginn eru hinar goðsagnakenndu Dúkkulísur með tónleika og svo á föstudaginn er Skakkamanage með tónleika. Á laugardaginn verður svo 80´s poppskotna gleðisveitin Mot- ion Boys með tónleika, „Á eftir þeim tekur svo Dj Lazer við og breytist þá staðurinn í fyrsta flokks nætur- klúbb,“ segir Gylfi hress. Gylfi mælir einnig með væntan- legum tónleikum með þeim Ólöfu og Ólafi Arnalds. „Ólafur er hústækni- maðurinn hjá okkur og er frændi Ólafar Arnalds sem flestir ættu að kannast við. Hann er mikill tónlist- armaður eins og frænka hans og er tónlist hans best lýst sem eins kon- ar nýklassík,“ segir Gylfi að lokum og hvetur alla til að kíkja við á Organ hvort sem er til að hlýða á tónleika eða til að kíkja á góðan skemmtistað. asgeir@dv.is ekki baraTónleikasTaður Skemmtistaðurinn Organ hefur verið gríðarlega öflugur í tónleikhaldi undanfarna mánuði og mun halda því áfram. Gylfi Blöndal rekstrar-stjóri segir Organ líka vera öflugan skemmtistað. Gylfi Blöndal organæser Segir organ vera fjölnota næturklúbb auk þess að vera öflugt tónleikahús. Stuð á Organ Staðurinn hefur blásið nýju lífi í tónleikahald í miðborginni. Megas og Senuþjófarnir Halda tónleika á laugardaginn og selja plötuna Hold er mold á undan útgáfu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.