Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2007, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2007, Blaðsíða 16
Þrír leikmenn í íslenska landslið- inu spila með norska liðinu Brann sem er við það að landa sínum fyrsta meistaratitli. Brann lagði Lyn 3-1 í 23. umferð norsku úrvalsdeildarinn- ar í knattspyrnu og hefur 9 stiga for- skot á Stabæk, sem er í 2. sæti, og er með hagstæðan markamun upp á tólf mörk en þrjár umferðir eru eft- ir. Ef fer sem sýnist verður þetta fyrsti meistaratitill Brann í 44 ár en liðið er þekkt fyrir eldheita stuðningsmenn og mikinn áhuga samfélagsins á lið- inu. Kristján Örn Sigurðsson og Ólaf- ur Örn Bjarnason hafa leikið flesta leiki með liðinu á leiktíðinni en Ár- mann Smári Björnsson hefur verið inn og út úr liðinu. Kristján Sigurðs- son hefur leikið afar vel í vörn Brann og hafa fjölmiðlar ausið yfir hann lofi fyrir frammistöðuna á leiktíðinni. Í umsögn um Kristján í Aftonbladet er hann sagður vafalítið besti miðvörð- ur norsku deildarinnar og að hann hafi ríkt sem kóngur í vörn Brann á leiktíðinni. Allir að tala um fótbolta í bænum Ármann Smári Björnsson hefur leikið vel fyrir Brann en hann kom til liðsins frá FH fyrir leiktíðina í norska boltanum. „Það er svakalega góð stemmning í bænum og ég hef aldrei kynnst öðru eins. Það hafa all- ir áhuga á fótbolta á þessari stundu, alveg sama á hvaða aldri fólkið er. Maður finnur ekki alveg fyrir pressu þegar þetta er eiginlega komið en það var mikil pressa í sumar og þjálf- arinn gaf það út strax í fyrsta leik að við ætluðum að taka gullið. Við erum með níu stig og tólf mörk í plús og við þurfum að spila mjög illa ef þetta á ekki að takast. Sjálfur hef ég verið ánægður með frammistöðu mína. Ég hef bæði ver- ið frammi og í vörn og jafnvel spilað meira en ég bjóst við svona á fyrsta ári. Ég er mjög sáttur við veru mína þarna og ætla mér að halda áfram með liðinu. Ég er með samning út 2009 og ég ætla að virða hann en við sjáum til hvað gerist eftir það. Þetta er gaman og það verður fínt að taka fjórða titilinn í röð,“ segir Ármann Smári en hann vann þrjá Íslands- meistaratitla í röð með FH á Íslandi áður en hann hélt til Noregs. Ólafur Örn mögulega á förum Ólafur Örn Bjarnason hefur spilað við hlið Kristjáns Arnar í vörn Brann og staðið sig vel. Hann segir ekki ljóst hvort hann verði áfram hjá félaginu en hann á marga valkosti í stöðunni. „Ég veit ekki alveg hvernig framtíðin verður. Mér stendur til boða að vera í Brann áfram í að minnsta í tvö ár í viðbót. Einnig eru önnur lið í Noregi inni í myndinni. Svo er það náttúr- lega Ísland líka. Ég tek enga ákvörð- un fyrr en eftir tímabilið og ef þetta er ágætt sem er í boði og mér líst vel á þetta þá er aldrei að vita nema mað- ur verði áfram. Ég hef alltaf ætlað mér að spila á Íslandi eitthvað áður en ég hætti en hvort það verður núna eða eftir tvö ár er erfitt að segja. Það eru einhverjar þreifingar í gangi bæði frá Noregi og öðrum löndum en það er ekkert sem ég vil tala um núna. Ef ég kæmi heim get ég ekkert endilega sagt að Grindavík væri lík- legra en eitthvað annað. En ég get ekki neitað því að ef maður kæmi heim myndi maður vilja vera í liði sem er í titlabaráttu og eins og stað- an er núna er Grindavík kannski ekki alveg á leiðinni í titlabaráttu. Maður yrði að skoða það betur þegar maður kemur heim,“ segir Ólafur. fimmtudagur 11. október 200716 Sport DV Owen tilbúinn fyrir landsliðið Michael Owen er búinn að jafna sig endanlega af nárameiðslum sem hafa hrjáð hann að undanförnu og mun hann spila fyrir england gegn eistlend- ingum á laugardag. Hann kom inn á sem varamaður gegn everton um síðustu helgi og skorði mark en hann virðist ekki getað komið inn á knattspyrnuvöll nú um stundir án þess að skora mark. „mér líður vel og aðgerðin sem ég fór í heppnaðist fullkomlega,“ segir owen. Newcastle- menn hafa áhyggjur af því að owen sé of fljótur að reyna mikið á sig en owen er ekki sammála því. „aðalmálið er að komast í gegnum sársaukann sem fyrst eftir aðgerðina og ef eitthvað er set ég klúbbinn fram yfir landsliðið“, segir owen. Mark Mcfadden á safn mark James McFadden gegn frökkum í landsleik Skota og frakka í síðasta mánuði verður til sýnis á safni sem tileinkað er knattspyrnu á Hampden- vellinum í glasgow. myndin verður í anddyri safnsins en markið tryggði Skotum sigur í leiknum fræga í París. mcfadden spilar fyrir enska úrvalsdeild- arliðið everton en hann hefur gert það að vana sínum að skora falleg mörk þó hann sé ekkert sérstaklega oft á skotskónum. mark hans fyrir everton gegn Charlton í fyrra var valið fallegasta mark tímabilisins af áhorfendum Sky Sports-sjónvarpsstöðvarinnar. richards að seMja við city Micah Richards varnarmaður úr manchester City er við það að skrifa undir nýjan samning við liðið. Þessi efnilegi varnarmaður hefur spilað vel það sem af er leiktíðar og hefur hann meðal annars unnið sér fast sæti í enska landsliðinu. Stórliðin höfðu flest sýnt honum áhuga og í vikunni sagði hann í viðtali að hann gæti vel hugsað sér að spila fyrir arsenal. Hann segir hins vegar að hann sé ánægður hjá City og viðtalið sem hafi birst við hann hafi verið gamalt og tekið úr samhengi. enski bOltinn Logi Ólafsson líklega næsti þjálfari KR og Stefán Logi hefur KR sem sinn fyrsta kost: Stefán og Logi líklega áfram í KR Logi Ólafsson verður líklega áfram þjálfari KR en samningaviðræður eru langt komnar á milli hans og for- ráðamanna KR. Stefán Logi Magn- ússon, markvörður úr KR, á í samn- ingaviðræðum við Vesturbæjarliðið en áhugi er meðal liða í Skandinavíu á að fá hann til sín. Miklar líkur eru á því að gengið verði frá ráðningu Loga Ólafssonar á næstu dögum og mun hann skrifa undir samning við liðið fljótlega. „Það er aldrei neitt öruggt í þessum efnum en það lítur afskaplega vel út eins og staðan er núna,“ segir Logi. Hann tók við liðinu í lok júlí en und- ir hans stjórn fékk liðið 9 stig úr sjö leikjum í Landsbankadeildinni. En fyrri hluta sumars fékk KR 7 stig úr 11 leikjum. Einhverjar breytingar verða á leikmannahópi KR en vitað er af því að félagið er á eftir Grétari Sigfinni Sigurðssyni sem lék í Víkingi í sum- ar og Guðjóni Baldvinssyni Stjörnu- manni. Stefán Logi Magnússon mark- vörður telur KR vera sinn fyrsta kost þó lið í Skandinavíu og Englandi hafi sýnt honum áhuga. „Ég veit af áhuga erlendis frá þótt ég hafi ekki rætt við neinn formlega. Hins vegar er KR minn fyrsti kostur. Áhuginn erlend- is er aðallega frá Skandinavíu en eitt- hvað frá Englandi líka. Ef ég myndi fara út þyrfti það að vera rétt lið sem hentaði mér. Ég er búinn að prófa atvinnumennskuna og ég myndi ekki fara út bara til að fara út. Maður þarf hins vegar að vera vit- laus til þess að skoða ekki hvað er í boði erlendis. En eins og staðan er núna vona ég að samkomulag náist við KR. Ég er ekki með umboðsmann til þess að fara með mín mál. Ég hef ákveðið það að hafa bara menn í mínum málum sem ég treysti og sambönd mín eru frá því ég var úti,“ segir Stefán. vidar@dv.is Logi Ólafsson mun áfram þjálfa lið kr ef að líkum lætur. í dAg 17:20 ARSenAL - SundeRLAnd enska úrvalsdeildin 19:00 engLiSh PReMieR LeAgue ensku mörkin 20:00 PReMieR LeAgue WORLd Heimur úrvalsdeildarinnar Nýr þáttur þar sem enska úrvalsdeildin er skoðuð frá ýmsum óvæntum hliðum. 20:30 PL CLASSiC MAtCheS bestu leikir úrvalsdeildarinnar Hápunktarnir úr bestu og eftirminnileg- ustu leikjum úrvalsdeildarinnar. 21:30 gOALS OF the SeASOn goals of the Season Öll glæsilegustu mörk hverrar leiktíðar Úrvalsdeildarinnar frá upphafi til dagsins í dag. 22:30 4 4 2 Þáttur sem er ekkert minna en bylting í umfjöllun um enska boltann á Íslandi. 23:55 COCA COLA MÖRkin farið yfir öll mörkin og helstu atvikin í leikjum síðustu umferðar í Coca Cola deildinni. Allt snýst um fótboltA í bergen ViðAR guðJÓnSSOn blaðamaður skrifar: vidar@dv.is Íslensku landsliðsmennirnir kristján Örn Sigurðsson, Ármann Smári Björnsson og Ólafur Örn Bjarnason leika allir með norska úrvalsdeildarliðinu Brann sem er við það að tryggja sér sinn fyrsta meistaratitil í 44 ár. Þeir segja mikla eftirvæntingu ríkja í borginni og að hver maður sé með fótbolta á heilanum í Bergen. Kristján Örn Sigurðs- son hefur fengið mikið lof í fjölmiðlum. í norska boltanum félagarnir þrír úr brann, kristján Örn Sigurðsson, ólafur Örn bjarnason og Ármann Smári björnsson, eru hér ásamt gunnari Heiðari Þorvaldssyni leikmanni Våleringa á landsliðsæfingu í gær. í háloftunum Ármann Smári björnsson er hér í baráttunni í evrópukeppni félagsliða en þar lagði liðið Club brugge að velli í tveimur leikjum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.