Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2007, Síða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2007, Síða 27
Spark í raSSinn á röppurum fimmtudagur 11. október 2007DV Bíó 27 Arthúr www.fjandinn.com/arthur Í mynd með Kidman Allt lítur út fyrir að leikkon- an Julia Roberts muni bætast við rómantísku gamanmyndina Monte Carlo sem skarta mun Nicole Kidman í aðalhlutverki. Myndin er byggð á skáldsögunni Headhunters eftir Jules Bass sem fjallar um þrjár kennslukonur sem þykjast vera ríkar konur þegar þær eru í fríi. Tom Bezucha, sem gerði myndina The Family Stone, mun leikstýra myndinni en búist er við einni þungavigtarleikkonu í við- bót til að leika þriðja kennarann. Þrjár myndir áfram Græna ljósið átti þrjár kvik- myndir á Alþjóðlegu kvikmynda- hátíðinni í Reykjavík sem lauk um síðustu helgi og hefur verið ákveðið að sýna þær myndir áfram. Um er að ræða myndirnar 4 Months, 3 Weeks & 2 Days, Edge of Heaven og Aleksandra. Allar hafa myndirnar fengið frábæra dóma en sýningar á þeim hefjast aftur á morgun og eru myndirnar aðeins sýndar í Regnboganum. Endurgerð The Killer Ákveðið hefur verið að endur- gera hina sögufrægu hasarmynd The Killer frá árinu 1989 eftir John Woo. Myndin kom bæði leikstjór- anum á kortið í Hollywood sem og gæðaleikaranum Chow Yun- Fat sem fór með aðalhlutverkið. Það er John H. Lee sem mun leik- stýra endurgerðinni en hún mun gerast í Los Angeles en ekki Hong Kong eins og sú fyrri. Ljóst er að Yun-Fat mun ekki snúa aftur í að- alhlutverkið heldur einhver yngri og ferskari. Airwaves á Akureyri Í fyrsta skipti verður hald- ið Airwaves-kvöld á Akureyri á meðan á hátíðinni stendur. Kvöld- ið verður haldið á Græna hattinum laugar- daginn 20. október og kostar 2.500 krónur inn. Þau sem koma fram eru kanadíski tónlistarmaðurinn Buck65, kan- adíska tríóið Plants and Animals og íslensku hip-hop-sveitirnar Forgotten Lores og Audio Improv- ement. Kvöldið er afurð samstarfs Herra Örlygs og AIM-tónleika. „Þetta verkefni er alveg á fleygiferð,“ segir Þor- finnur Guðnason kvikmyndagerðarmaður um heimildamyndina Draumalandið. Myndin er unnin í samstafi við Andra Snæ Magnason og gerð eftir samnefndri bók hans sem naut mik- illa vinsælda á síðasta ári. Draumalandið er hnitmiðuð ádeila á stóriðjustefnu Íslendinga og ýmsar ákvarðanir sem stjórnvöld hafa tekið undanfarin ár og áratugi. Erlendir framleiðendur sýna áhuga „Myndin er bara á klippiborðinu núna og við búumst við því að hún verði tilbúin skömmu eftir áramót,“ segir Þorfinnur sem efast ekki um ágæti myndarinnar. „Myndin er ferðalag í gegnum Íslandssöguna og hvar við stöndum í dag. Myndin er byggð á pælingum sem koma úr hausnum á Andra en hann er mjög frumlegur og fær. Þetta verður ein stærsta heimildamynd Íslandssögunnar,“ segir Þorfinnur og spaugar með að heimsfrægð bíði hans og Andra þegar myndin er komin út. „Við verðum jafnfrægir og Balti,“ segir Þorfinnur hress en hann hefur áður meðal annars gert heimildamyndina um Lalla Jones sem vakti mikla at- hygli. „Við erum samt ekki að reyna hræða neinn með myndinni og hún er mjög skemmtileg. Engu að síður tel ég að hún eigi eftir að reynast mjög mikilvæg.“ Þorfinnur segir kostn- aðinn við myndina vera töluverðan og vandað sé til verks. „Hún er til dæm- is tekin upp á 35 mm filmu.“ Þeir sem framleiða myndina eru Sigurður Gísli Pálmason, Hrönn Kristinsdóttir og Þórir Snær Sig- urjónsson en Þorfinnur segir að erlendir fram- leiðendur hafi einngi sýnt myndinni mikinn áhuga. „Við vorum að koma af ráðstefnunni Nordic Panoram í Finnlandi og þar hittum við meðal annars framleiðandann Bart Simpson sem framleiddi myndina The Corporation,“ en hún kom út árið 2003 og vakti mikla athygli. Myndin segir frá starfsemi stórfyrirtækja og þróun þeirra. Samningaviðræður um sýningar Þorfinnur segir að samningaviðræður standi yfir við fjórar af þeim sex evrópsku sjón- varpsstöðvum sem voru á ráðstefnunni og að mik- ill áhugi sé fyrir mynd- inni. „Meðal þeirra sjón- varpsstöðva sem verið er að ræða við og hafa sýnt myndinni mikinn áhuga er Arte,“ en það er frönsk/þýsk sjónvarpsstöð sem sérhæfir sig í menningu og listum. „Hún er ein sú stærsta sinnar tegundar í Evrópu,“ en Þorf- innur segir að einnig séu samningaviðræður í gangi við sjónvarpsstöðvar í Noregi, Svíþjóð og Finnlandi. „Þessi mynd fær okkur til þess að velta fyrir okkur spurningunni hvort við höfum gengið til góðs götuna fram eftir veg,“ segir Þorfinnur að lokum um Draumalandið. asgeir@dv.is Heimildarmyndin Draumalandið eftir Þorfinn Guðnason sem er byggð á sam- nefndri metsölubók eftir Andra Snæ Magnason er komin vel á veg. Samninga- viðræður um sýn- ingu hennar á fjórum stórum evrópskum sjónvarpsstöðvum standa nú yfir. Þorfinnur GuðnASon Segir erlendar sjónvarps- stöðvar og framleiðendur þegar sýna myndinni mikinn áhuga. Andri Snær MAGnASon Heldur áfram að vekja athygli með drauma- landinu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.