Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2007, Síða 32
„Vissulega hef ég verulegar
áhyggjur,“ segir Kristján Gunnars-
son, formaður Starfsgreinasam-
bandsins. „Mér skilst að húsnæð-
isliðurinn sé enn að hækka þannig
að spennan á byggingamarkaði er
greinilega mikil.“
Hann segist vita til þess að hag-
fræðingar spái því að húsnæðis-
verð fari brátt lækkandi. „Þá fer ég
að hafa áhyggjur af þeim sem þegar
hafa keypt sér húsnæði með háum
lánum. Það getur hreinlega leitt til
eignaupptöku hjá þeim sem eru að
berjast við að fá sér þak yfir höfuð-
ið,“ segir Kristján sem telur að við
séum hvað veikust fyrir þegar kem-
ur að fasteignamarkaðinum.
Verðbólgan er 4,5 prósent og
hækkaði um 0,51 prósent frá sept-
embermánuði.
Hjördís Vilhjálmsdóttir hjá grein-
ingardeild Glitnis segir að hækkun-
in hafi þær afleiðingar að öll verð-
tryggð lán hækki sem þessu nemur.
Verðbólga jókst mun meira í síð-
asta mánuði, eða um 1,3 prósent.
Hjördís segir það skýrast að miklu
leyti af útsölulokum og hækkandi
fasteignaverði. Matvöruverð hef-
ur einnig hækkað lítillega, aðal-
lega vegna verðhækkana erlend-
is. Hveiti hækkaði mikið nýlega og
muna margir eftir kröftugum mót-
mælum Ítala sem í kjölfarið neituðu
að kaupa pasta. Sú hækkun er nú að
ganga til baka og ef áframhaldandi
lækkun verður á heimsmarkaði má
búast við því að það skili sér til ís-
lenskra neytenda.
Hjördís spáir að í næsta mánuði
hækki verðbólga um 0,3 prósent og
0,2 í mánuðinum þar á eftir. „Þetta
eru litlar hreyfingar,“ segir hún.
Kristján bendir á að kjarasamn-
ingar losna brátt og að farið verði í
viðræður við vinnuveitendur strax
í næsta mánuði. Hann segir áfram-
haldandi hækkanir ekki gott innlegg
í þær.
Nú er svo komið, vegna verð-
bólgu, að nýja krónan sem var tekin
í gagnið í ársbyrjun 1981 er aðeins
3,7 aura virði miðað við verðmæti
hennar þegar hún var tekin upp.
Verðmesti seðillinn í þá daga var
500 króna seðillinn sem nú væri átj-
án og hálfrar krónu virði þegar mið
er tekið af verðbólgu.
erla@dv.is
„Þetta var alltaf vitað því þetta stóð í
samningum,“ segir Þórólfur Árnason,
fyrrverandi forstjóri Icelandic Group.
Icelandic Group er skylt að gera
kaupréttarsamning við Þórólf Árna-
son, fyrrverandi forstjóra fyrirtækisins
og borgarstjóra Reykjavíkur. Héraðs-
dómur Reykjavíkur komst að þess-
ari niðurstöðu í gær. Þórólfur var ráð-
inn sem forstjóri fyrirtækisins þann
30. maí árið 2005 en ráðning hans var
ótímabundin. Í ráðningarsamningi
sem Þórólfur gerði við fyrirtækið voru
ákvæði um að fyrirtækið gerði kaup-
réttarsamning um hlutabréf við Þórólf
ekki síðar en 30 dögum frá undirritun
ráðningarsamningsins. Samningurinn
átti auk þess að endurspegla sambæri-
lega samninga hjá forstjórum stærri
fyrirtækja á Íslandi.
Þórólfur segir að það sé honum
og öðrum óskiljanlegt hvernig stjórn-
endur Icelandic Group hafi haldið að
þeir kæmust upp með að uppfylla ekki
samninginn. „Það verður að spyrja þá
að því en það sem stendur upp úr er að
ég hrósaði sigri, enda kom aldrei neitt
annað til greina.“
Var sagt upp störfum
Þórólfi var sagt upp störfum þann
13. október 2005 en þá hafði ekki enn
verið búið að ganga frá umræddum
kaupréttarsamningi. Þann 19. októ-
ber fór lögmaður Þórólfs fram á það
við forsvarsmenn Icelandic Group að
fyrirtækið uppfyllti samninginn. Hann
fékk neikvætt svar tæpum mánuði síð-
ar en rökin fyrir þeirri neitun voru þau
að vegna uppsagnarinnar væri réttur
Þórólfs til endurgjalds í formi kaup-
réttarsamnings fallinn niður vegna
brostinna forsenda. Þórólfur ákvað því
í kjölfarið að höfða mál á hendur Ice-
landic Group.
Fyrir dómi bar lögmaður Þórólfs
því við að ein af meginforsendum þess
að Þórólfur þáði starfið í upphafi hefði
verið sú að umræddur kaupréttar-
samningur var innifalinn. Lögmaður
Icelandic Group krafðist sýknu í mál-
inu á þeim grundvelli að Þórólfur bæri
sjálfur ábyrgð á því að ekki var gerður
við hann kaupréttarsamningur í sam-
ræmi við ákvæði ráðningarsamnings-
ins.
Skylt að uppfylla samninginn
Héraðsdómur Reykjavíkur féllst á
kröfu Þórólfs í málinu og er Iceland-
ic Group því skylt að gera við hann
umræddan kaupréttarsamning. Þó
að Þórólfi hafi verið sagt upp störf-
um rúmum fjórum mánuðum eftir
að hann var ráðinn átti hann inni tólf
mánaða uppsagnarfrest án vinnu-
skyldu. Þá féllst dómur ekki á þau rök
að forsendur kaupréttarsamningsins
væru brostnar. Icelandic Group var
einnig gert að greiða Þórólfi sex hundr-
uð þúsund krónur í málskostnað.
Aðspurður hvort hann muni ganga
að samningaborði með Iceland-
ic Group segir Þórólfur að það sé allt
óljóst. „Við verðum bara að sjá til. Ég
treysti því að það muni ganga eðlilega
fyrir sig.“
fimmtudagur 11. október 2007 n Dagblaðið vísir stofnað 1910
FréttaSkot
5 1 2 7 0 7 0
DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til frétta.
Fyrir fréttaskot sem verður aðalfrétt á forsíðu greiðist 25.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskot vikunnar greiðist allt að 50.000 krónur.
Alls eru greiddar 100.000 krónur fyrir besta fréttaskot hvers mánaðar.
Borgaði sig að hætta
hjá Borginni...?
ÞÓRÓLFUR FAGNAR SIGRI
Þórólfur Árnason vann mál gegn Icelandic Group vegna vangoldins kaupréttarsamnings:
Landsliðsmenn taka á Íslensku landsliðsmennirnir í fótbolta reyndu á sig á æfingu á Leiknisvelli í Breiðholti í gær. Æfingin er
hluti undirbúnings fyrir landsleikinn við Lettland á Laugardalsvelli á laugardag. DV-MYND ÁSGEIR
Hækkun verðbólgu veldur hækkunum á verðtryggðum lánum:
Eignarnám hjá íbúðakaupendum
Löggur í nýjum
hlutverkum
Varsla gæsluvarðhaldsfanga á
Lögreglustöðinni við Hverfisgötu
veldur auknu álagi á lögreglumenn.
Vaninn er að fangar dveljist aðeins
á stöðinni í nokkrar klukkustund-
ir og eru það mikil viðbrigði fyrir
starfsmenn að veita þjónustu sem
þeir eru annars óvanir að sinna.
Fangarnir eru vistaðir þarna þar sem
Fangelsismálastofnun hefur engin
önnur úrræði fyrir þá.
Varðstjóri hjá lögreglunni segir
að þetta sé ásættanlegt á virkum
dögum en mjög erfitt um helgar
þegar fangageymslur fyllast öllu
jöfnu.
Einar þór SigurðSSon
blaðamaður skrifar: einar@dv.is
Fær kaupréttarsamning Þórólfur fór í mál gegn Icelandic Group því fyrirtækið vildi
ekki gera við hann kaupréttarsamning eftir að búið var að segja honum upp.
Var með snák
innanklæða
Lögreglumenn fundu ekki
aðeins fíkniefni í fórum ungra
manna sem þeir
höfðu afskipti af í
Hafnarfirði
heldur var
einn þeirra
með rúmlega
eins metra
langan snák
á sér innan-
klæða.
Ungi maðurinn
með snákinn var einn
þriggja einstaklinga um tvítugt
sem lögreglan hafði afskipti
af. Einn var með fíkniefni á
sér og annar með snákinn.
Ekki er ljóst hvaða tegund-
ar snákurinn var eða hversu
gamall. Hann fékk hins vegar
húsaskjól hjá lögreglu yfir nótt
eða þar til farið var með hann
að Keldum og hann aflífað-
ur. Piltarnir sluppu hins vegar
betur, þeim var sleppt eftir yf-
irheyrslur.
Verulegar áhyggjur Kristjáni
Gunnarssyni líst ekki á blikuna.
Jóhanna heimsótti
geðfatlaða
Jóhanna Sigurðardóttir félags-
málaráðherra heimsótti í gær fimm
íbúa í nýjum íbúðum fyrir geðfatlaða
einstaklinga sem hafa verið teknar í
notkun í Reykjavík. Með þessu sagð-
ist Jóhanna vilja óska íbúunum til
hamingju með nýtt heimili og einnig
vekja athygli á alþjóðlega geðheil-
brigðisdeginum sem var í gær jafn-
framt því að lýsa samstöðu með
þeim sem búa við geðröskun.
Íbúðirnar voru tilbúnar í lok júní
og flutt var inn í þær í júlí.
Íkornar í frystinum
Englendingurinn Paul Parker
hefur skotið yfir tvö þúsund gráa
íkorna á síðustu 10 mánuðum.
Hann hefur lagt nótt við dag í því
skyni að útrýma þessum kvikindum,
eins og hann kallar þá. Paul er öllu
hrifnari af rauðum íkornum. „Ég lít
ekki á mig sem tortímanda grárra
íkorna heldur vin og verndara þeirra
rauðu,“ segir Paul. Flestir dauðu
íkornarnir enda í ruslinu en Peter er
þó með 300 stykki í frystinum heima
hjá sér. „Ég ætla að athuga hvort vin-
ur minn vill nota skottin við flugu-
veiðar,“ segir hann.