Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2007, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2007, Blaðsíða 4
föstudagur 19. október 20074 Fréttir DV Sandkorn n Meðal þeirra blaðamanna sem fallið hafa í þá gryfju að fjalla ekki hlutlaust um uppákomur í borginni er Andrés Magnússon, fyrrver- andi blaðamaður á Blaðinu, sem gætir vandlega hagsmuna Kjartans Magnússon- ar, bróð- ur síns og borgar- fulltrúa, í ræðu og riti. Einhverjir telja að Kjartan vilji halla sér að talíbönum Gísla Marteins Baldurssonar í slagnum og afneita klofningn- um innan Sjálfstæðisflokks- ins sem óneitanlega hlýtur að skrifast á Björn Bjarnason dómsmálaráðherra. n Lítið hefur farið fyrir Ólafi F. Magnús- syni, leið- toga frjáls- lyndra eða öllu heldur Íslands- hreyfing- arinnar, í borgarstjórn. Hann reyndi að mynda meirihluta með Vilhjálmi Þ. Vilhjálms- syni en varð af sælunni þegar Björn Ingi Hrafnsson náði samstöðu með sjálfstæðis- mönnum. Ólafur hvarf af sjónarsviðinu skömmu síðar. Séð og heyrt upplýsir að hann hafi átt við erfið veikindi að stríða í kjölfar þess að hann skildi við eiginkonu sína. Ólaf- ur er ásamt Alfreð Þorsteins- syni talinn vera guðfaðir nýja meirihlutans. n Eyjan.is segir frá því að fjöl- skylda Dorritar Moussaieff hafi á dögunum keypt heimsins dýrasta demant á uppboði sem haldið var í Hong Kong. Dýrgripur- inn er blár og kostaði tæpan hálf- an milljarð króna. Fyrra hæsta verðið var frá árinu 1987, þá seldist demanturinn, Hanckock Red, í New York fyrir mesta fé sem greitt hafði verið fyrir demant. Moussaieff-fjöl- skyldan kann greinilega gott að meta, en forsetafrúin vann frá 14 ára aldri sem gimsteinasali. n Ekki var hægt að sjá margt jákvætt við leik íslenska karla- landsliðsins í knattspyrnu gegn Liechtenstein í fyrradag. Leik- mennirnir voru gjörsamlega úti á þekju og áttu hreinlega skilið að vera rassskelltir eins og raunin varð af sprækum heima- mönnum. Þó má kannski tína til einn jákvæðan punkt, eitt jákvætt sandkorn í þeirri eyði- mörk niðurlægingar sem blasti við íslensku þjóðinni í leiknum: Eiður Smári virtist vera með á hreinu á móti hverjum leikurinn var. Það virtist ekki vera raunin í leiknum gegn Lettum um síð- ustu helgi því í viðtali eftir þann leik talaði hann nefnilega um „latneska liðið“. Líklega var þó um mismæli að ræða því eftir því sem DV kemst næst er ekki til land sem heitir Latína, hvað þá Latínuland. Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi á miðvikudag karlmann til að greiða fjórfalt með- lag með syni sínum. Upphæðin nemur því rúmum 73 þúsund krónum á mánuði. Björn Jóhannesson, lögmaður föðurins, er ekki sáttur við dóminn og segir að leggja þurfi til grundvallar hver raunveruleg framfærsluþörf sé. Hilmar Björgvinsson, forstjóri Innheimtustofnunar sveitarfélaga, telur að dómurinn sé einsdæmi. ÞARF AÐ GREIÐA FJÓRFALT MEÐLAG Karlmaður var á miðvikudaginn dæmdur í Héraðsdómi Reykjavík- ur til að greiða barnsmóður sinni fjórfalt meðlag með syni þeirra, eða upphæð sem svarar rúmum 73 þúsund krónum á mánuði. Lög- bundnar meðlagsgreiðslur eru 18.274 krónur á mánuði. Háar tekj- ur föðurins og lágar tekjur móður- innar urðu þess valdandi að hann þarf að greiða konunni fjórfalt meðlag næstu þrettán árin. Hilmar Björgvinsson, forstjóri Innheimtu- stofnunar sveitarfélaga, segist ekki vita til þess að viðlíka dómur hafi fallið áður. Sömdu eftir sambandsslit Fólkið hóf sambúð í maí árið 2002 og ári síðar eignuðust þau saman dreng. Vorið 2004 slitnaði upp úr sambúð þeirra og í kjöl- farið var gerður samningur um skiptingu eigna við sambúðarslit- in. Í honum sagði meðal annars að faðirinn myndi greiða móður- inni fimm milljónir króna til kaupa á íbúð. Greiðslan var einnig ætluð til framfærslu fyrir son þeirra og vegna þeirrar greiðslu var gerður samn- ingur um að kon- an myndi ekki óska eftir aukinni með- lagsgreiðslu. Samn- ingurinn var þó ekki staðfestur af sýslu- manni. Stuttu eftir að samningurinn var gerður, eða þann 24. ágúst, mætti maður- inn á skrifstofu sýslu- manns í Hafnar- firði. Hann óskaði eftir því að hann fengi forræði yfir barninu og að það hefði lögheimili hjá sér. Þann 24. ágúst 2005 þegar málið var tekið fyrir hafnaði konan kröfum mannsins. Hún krafðist þess að hún fengi forræði yfir barninu og lögheimili þess yrði hjá henni. 125 milljónir í tekjur Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjaness í febrúar í fyrra. Það var hins vegar fellt niður þar sem sam- komulag tókst með þeim þann 7. mars árið 2006. Samkomulagið fól í sér að forsjá barnsins skyldi vera sameiginleg en lögheimili þess yrði hjá móðurinni. Samið var um að maðurinn greiddi henni þre- falt meðlag frá 1. mars 2006. Sam- komulagið var ótímabundið en átti að endurskoðast 1. septemb- er 2009, þegar skólaganga barns- ins hæfist. Þann 21. mars var sam- komulagið staðfest af sýslumanni. Málið sem dæmt var í á mið- vikudag snýr að kröfum konunn- ar um auknar meðlagsgreiðslur frá manninum. Konan fór fram á það að meðlagsgreiðslurnar skyldu endurskoðaðar. Á því var byggt að fjárhagur mannsins hefði ver- ið með þeim hætti að hann hefði fjárhagslegt bolmagn til að greiða hærra með lag. Samkvæmt skattframtölum námu fjármagnstekjur föðurins árið 2005 125 milljónum króna en árið 2006 tæpum 50 milljónum króna. Tekj- ur móðurinnar árið 2005 námu 678 þúsund krónum en tæplega 1.500 þúsundum árið 2006. Eignir henn- ar í árslok 2006 voru samkvæmt skattframtali 700 þúsund krón- ur en skuldir 668 þúsund. Kon- an gerði á það kröfu að hún hefði fullt forræði yfir barninu auk þess sem hún krafðist þess að meðlags- greiðslurnar yrðu hækkaðar. Móð- irin fékk einnig forsjá yfir barninu. Greiðir fjórfalt meðlag Faðirinn vildi að samningurinn frá árinu 2004 sem gerður var vegna sambúðarslitanna fengi að standa. Samkvæmt honum myndi konan ekki gera kröfu á auknar meðlags- greiðslur. Það var hins vegar niðurstaða dómsins að sá samningur væri ekki gildur, á þeim grund- velli að hann hefði ekki ver- ið staðfestur af sýslumanni. Dómurinn taldi eðlilegast að meðlags- greiðslurnar hækkuðu í samræmi við breytta forsjá en hún var ekki lengur sameiginleg. Hann var því dæmdur til að greiða fjórfalt með- lag á mánuði frá 12. febrúar á þessu ári og 240 þúsund krónur í máls- kostnað sem renna í ríkissjóð. Björn Jóhannesson er verjandi mannsins og finnst honum dóm- urinn vera fullharður. Hann segir að ekki hafi verið tekin ákvörðun um hvort dóminum verði áfrýj- að. Björn segir að grunnurinn eigi að snúast um framfærslu barnsins og tekjurnar eigi því ekki að skipta máli. Hann segir að leggja þurfi til grundvallar hver raunveruleg framfærsluþörf er, en hún eigi ekki að snúast um tekjur annars for- eldris. Einsdæmi „Þetta er alveg einsdæmi, að sjá svona háar meðlagsgreiðslur,“ segir Hilmar Björgvinsson, forstjóri Innheimtustofn- unar sveitarfélaga. Hilmar segir að dæmi séu til um eitt meðlag til viðbótar og einstaka dæmi um tvö meðlög. Þrjú meðlög hafi hann þó aldrei séð áður. Innheimtustofnun sveitar- félaga sér um að innheimta meðlög frá skuldurum og heldur utan um skuldastöðu einstaklinga. Hann segir að stofnunin sjái aðeins um innheimtu á einu meðlagi og komi til þess að rukka þurfi vegna aukameð- laga sé það á hönd- um ein- staklings- ins sem á kröfuna að innheimta það. Einar þór SiGurðSSon blaðamaður skrifar: einar@dv.is „Þetta er alveg einsdæmi, að sjá svona háar með- lagsgreiðslur.“ Fjórfalt meðlag dómur í máli föðurins féll á miðviku- daginn. Hann þarf að greiða móðurinni fjórfalt meðlag. Fulltrúar allra deilda DV eru í dag að hefja hringferð um landið til að hitta fólk og ræða stefnu blaðsins í nútíð og framtíð. Lýður Árnason, kvikmyndaleikstjóri, tónlistarmaður og læknir, hefur tekið að sér að vera atburðastjóri á fundum DV um allt land. Ferðin hefst með stefnumóti við Vestfirðinga í Edinborgarhúsinu í kvöld klukkan 20. Ritstjórar blaðsins, Reynir Traustason og Sigurjón Magn- ús Egilsson, ræða þar um DV og hlýða á sjónarmið fólks. DV mun skemmta Vestfirðingum með tónlist og spurn- ingakeppni. Soffía Vagnsdóttir, for- seti bæjarstjórnar Bolungarvíkur, og Grímur Atlason bæjarstjóri takast á við Birnu, forseta bæjarstjórnar, og Halldór Halldórsson, bæjarstjóra Ísafjarðarbæjar, í spurningakeppni þar sem sigurvegarinn velur sér bar- áttusamtök gegn fíkniefnum sem verðlaunaféð, 100.000 krónur, renn- ur til. Við lok hringferðarinnar verð- ur valið eitt sigurlið sem fær að auki milljón krónur til að berjast gegn fíkniefnavandanum. Elín Ragnars- dóttir, framkvæmdastjóri Birtíngs og DV, verður dómari í keppninni og af- hendir verðlaunaféð. Hljómsveitin Grjóthrun (í Hóls- hreppi) úr Bolungarvík mun koma fram og halda uppi stemningu. Miðvikudaginn 24. október mun DV með veglegu sérblaði um Vestfirði berast í hvert hús á Vestfjörðum. Í framhaldi af Vestfjarðaheimsókninni verður haldið til Austfjarða til stefnu- móts við heimamenn og síðan í fram- haldinu á Akureyri og þéttbýlisstaði á Suðurlandi. Sérblað um viðkomandi svæði mun fylgja DV í hverju tilviki. DV hefur hringferð um landið til að ræða við almenning: Á stefnumóti á Ísafirði Frá Ísafirði Hringferð dV um landið hefst með borgarafundi og skemntun á Ísafirði í kvöld.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.