Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2007, Blaðsíða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2007, Blaðsíða 38
föstudagur 19. október 200738 Helgarblað DV ég horfi á... Sjónvarpið skipar stóran sess í lífi margra og eru þær ófáar klukkustund- irnar sem meðalmaðurinn ver fyrir framan sjónvarpsskjáinn. DV leitaði til nokkurra landsþekktra einstakl- inga og spurði þá út í hver væri uppá- haldssjónvarpsþátturinn þeirra. Svör- in voru fjölbreytt. Ilmur StefánSdóttIr, mynDliStarkona „Þarf hann að vera á dagskrá? Ef hann þarf þess ekki, þá er það Húsið á sléttunni. Þessi þáttur er bara eitthvað svo skemmtilega syndug minning, svona blanda af nostalgíu og írskri klisju. Svo var hann líka bara skemmtilegur.“ húsið á sléttunni SteInþór HelgI, Fjölmiðla- maður „Ég verð að viðurkenna að ég hef gríðarlega lítið horft á sjónvarp undanfarið ár. Helst hef ég þó dott- ið inn í massífu snilldina The Office. Ég á þá þætti á DVD og horfi reglulega á þá. Ég hef líka dottið inn í Næturvaktina, sem er eitt besta sjónvarpsefni síð- an Fóstbræður voru sýndir. Þeir eru að stela miklu frá The Office og jafnvel líka Arrested Development sem er þáttur sem ég dett inn í. Ég hlakka líka til að Gray�s Anatomy byrji í lok október vegna þess að ég er búinn að bíða spenntur síðan síðustu seríu lauk. Ég horfði á lokaþáttinn með mömmu og vinkonu hennar og þegar honum lauk stóð ég upp og öskraði: Getur ekkert í þessum þáttum endað vel?“ gray‘s anatomy getur ekki endað vel „Ég horfi á alla þætti sem ég kem fram í sjálfur og það segir sig sjálft hvers vegna það er! Little Britain er óborganleg- ur og svo datt ég inn í að horfa á Prison Break sem er mjög vandaður þáttur. Hins vegar má almennt segja að vanda- málið með góða framhalds- þætti sé það að þeir enda á að verða ömurlegir. Ef menn lenda á einhverju góðu er það blóð- mjólkað. Þannig enduðu eigin- lega bæði Prison Break og Lost á að verða alveg „lost“! Sá þátt- ur sem ég horfi nánast alltaf á er Spaugstofan og mér finnst Sigurður Sigurjónsson bera af. Hann er svo heimilisleg- ur, hefur þennan afdalaþokka sem fáir sem búa á höfuðborg- arsvæðinu hafa. Afdalaþokki er sveitamannslegt yfirbragð og náttúruleg fegurð og mér finnst afdalaþokki vanmetinn. Á mínu heimili tíðkast það að hafa smá tilstand þegar fjöl- skyldan sameinast fyrir framan sjónvarpið og þannig var til dæmis að þegar Idol- og X- Factor-þættirnir voru sýndir var alltaf höfð pitsa. Af íslenskum þáttastjórnendum finnst mér Sigmar Guðmundsson bera af. Hann er góður í hverju sem er og getur talað um hvað sem er. Sem spyrill held ég að enginn skáki honum eins og er.“ afdalaþokki vanmetinn gíSlI eInarS- Son, Sjón- VarpS- maður sjónvarpsþáttafíkill forfallinn gunnar HanSSon, leikari erlendar fréttaskýringar „Ég er forfallinn sjónvarpsþ áttafíkill. Það er því mjög h eppilegt hvað það er mikið af góðum þáttum í gangi núna. Ég vinn reyn dar mikið á kvöld- in svo ég missi af mörgu í s jónvarpi en ég tek upp þæt ti auk þess sem ég kaupi þá á DVD. Mér finn st líka skemmtilegra að ho rfa á marga þætti í einu. Einn er ekki nóg fy rir mig, ég er það langt le iddur. Ég er mik- ill aðdáandi þáttanna Stud io 60. Það er reyndar hætt að framleiða þá. Því miður eru oft frábærir þ ættir teknir úr framleiðslu í Bandaríkjunum. Þættir sem Ameríkaninn v irðist hreinlega ekki skilja. Annað dæmi um það eru hinir frábæru þæt tir Arrested Development. Af þáttum sem er verið að sýna núna verð ég að nefna Californication. Ég þoldi ekki Dav- id Duchovny í The X-Files en hann er mjög góður í þe ssum þáttum. Það svo auðvitað ekki hægt að miða neitt við Sigtið. Svo er að byrja spurn- ingaþáttur á SkjáEinum á sunnudagskvöldið. Það er þáttur sem verður eflaust einn af mínum upp áhaldsþáttum.“ „Minn uppáhaldssjónvarpsþáttur er ek ki enn kom- inn á dagskrá sjónvarpsstöðvanna en það er frétta- skýringaþáttur um erlend málefni. Við vinnslu þátt- arins myndi ég vilja að sjónvarpið tefld i fram sínum bestu mönnum og leitaði fanga sem víð ast. Fyrir langa löngu sinnti ég þessu hlu tverki ásamt Boga Ágústssyni. Hann er enn til staðar og þar er því vanur maður á ferð með mikla reynslu a ð baki. Síðan gæti hann fengið sé félaga til samstarfs í þættinum. Í rauninni er ég alveg gáttaður á að ekki sé boðið upp á slíkan þátt þar sem fjallað er um erl end málefni. Þar hefði meðal annars mátt sýna þá u mræðu sem átt hefur sér stað um allan heim um ásó kn markaðs- aflanna inn í almannaþjónustu, ekki s íst hjá fátæk- um ríkjum. Þessi umræða hefur komis t í útvarp hér á landi en ekki í sjónvarp.“ Ögmundur JónaSSon, alþingiSmaður
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.