Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2007, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2007, Blaðsíða 17
DV Helgarblað föstudagur 19. október 2007 17 Ármúla 42 · Sími 895 8966 mánudaga - föstudaga 10-18 laugardaga og sunnudaga 12-16Opið Fjölbreyttir listmunir Frábært verð SvartStakkar í blíðu og Stríðu ekki söm. Það er því ekki mikið eftir af formlegri aðild vígslubiskupa að stjórnsýslunni.“ Þessu til viðbótar rifja menn upp gamlan vinskap Sigurður og Karls. Að engu sé líkara en þeir hafi gert einhvers konar samkomulag. „Þeir voru góðir vinir í guðfræðideild en slettist eðlilega upp á vinskapinn þegar báðir fóru að keppa að hinu sama, að verða biskup yfir Íslandi. Karl var kosinn í fyrstu umferð og líklega tapaði Sigurður vegna þeirra láta sem voru í kringum Geir. Menn töldu að Karl gæti lægt öldurnar og gert öll dýrin í skóginum að vinum.“ Af svartstökkum eru líklega áhrif Halldórs Gunnarssonar í Holti hvað mest er kirkjupólitísk áhrif varðar um þessar mundir. „Seigla hans er einstök, sem og áhugi hans og dugn- aður. Hann hefur mikla þekkingu á kirkjunni og stjórnsýslunni allri og hættir aldrei fyrr en mál er í höfn,“ segir prestur sem telur sig hafa ætíð staðið utan við fylkingar. Annar segir um Halldór að áhrif hans hafi aukist langt umfram þann stuðning sem hann njóti heima fyr- ir. „Honum er meira að segja úthýst meðal vina sinna, hestamanna.“ Þegar Karl Sigurbjörnsson varð biskup árið 1998 lýsti hann því yfir að hann yrði ekki lengur en 12 ár. Sumir töldu það nógu langan tíma og rifja upp yfirlýsingu hans í þeim efnum. „Það eru einungis tvö og hálft ár í að hann efni það loforð en engar lík- ur eru á því. Karl situr eflaust til sjö- tugs.“ Við og vér Á Kirkjuþingi um helgina er ekki búist við neinum stórbyltingum. Þar skiptast menn í hópa burtséð frá gömlum línum. Til dæmis er varðar kirkjulega vígslu samkynhneigðra. Eins má búast við sátt um nýju biblíuþýðinguna, sem var ásteyting- arsteinn um árabil, meðal annars vegna þess hvort segja ætti „vér“ eða „við“. Það er kannski dæmigert fyr- ir þær sættir sem ríkja innan kirkj- unnar að málamiðlunin fólst í því að segja „við“ á hversdagsstundu en „vér“ við hátíðleg tækifæri. Hommaumræðan skiptir kirkj- unnar mönnum heldur ekki eftir klárum fylkingum og gömlum lín- um. Fyrir Karl biskup hefur málið ekki verið einfalt úrlausnar, meðal annars vegna skýrrar afstöðu föður hans, Sigurbjörns Einarssonar bisk- ups. Hins vegar stefnir allt í ásættan- lega niðurstöðu fyrir presta á Kirkju- þingi. Þar láta menn ljós sitt skína eftir persónulegum sjónarmiðum. Svartstakkar eru ekki í forystu í andmælum gagnvart vígslu samkyn- hneigðra. Það virðist engin sérstök riðlaskipting lengur í þessum efn- um innan klerkastéttarinnar og ekki hægt að benda á svartstakkana sér- staklega. Nú er talað um samvisku- frelsi og að hver og einn prestur eigi að meta það fyrir sitt leyti hvort hann vígi samkynhneigða eða ekki. Á lok- aðri spjallrás presta á netinu er ekki annað að sjá en útrétta sáttahönd. Áhrifamestur í dag séra Halldór gunnarsson þykir áhrifamestur svartstakkanna í dag. Barátta við svartstakka Miklar deilur geisuðu innan kirkjunnar í biskupstíð ólafs skúlasonar og beitti séra geir Waage sér sérstaklega gegn honum. Þegar leitað er skýringa á því hvers vegna svart- stakkar halda sig meira til baka nú en áður koma fram ýmsar skýringar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.