Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2007, Side 11

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2007, Side 11
DV Helgarblað föstudagur 19. október 2007 11 Syrgir bróður Sinn Brynjar K. Guðmundsson, bróðir Guðjóns, hefur komið á fót minn- ingarsíðu fyrir bróður sinn á slóð- inni http://www.myspace.com/ binni78. Hann vonast til þess að rannsókn leiði endanlega í ljós hvað raunverulega varð til þess að Guðjón fannst látinn í klefa sínum í Kaupmannahöfn. Brynj- ar segir bróður sinn hafa verið glaðari úti en oft áður þar sem hann hafði dóttur sína hjá sér og var búinn að koma sér þar fyrir. Hann bendir á að líkur voru á því að refsivist Guðjóns yrði stytt frá upphaflegum dómi og því hafi andlátið verið reiðarslag fyrir fjölskylduna. „Þetta kom mér mjög á óvart. Hann var búinn að eiga erfiða ævi en um það leyti sem hann dó var útlitið bjart hjá honum. Mamma og pabbi voru á leiðinni í heimsókn til hans, þannig að þetta leit allt saman ágætlega út,“ segir Brynjar. Viðamikil rannSókn Samkvæmt dönskum lög- um ríkir mikill trún- aður yfir vistun fanga og fyrir vikið fengust takmarkaðar upp- lýsingar frá dönskum fangelsismálayfirvöld- um um atburðinn. Finn O. Frisdahl, deildarstjóri danska ríkisfangelsisins, segir atburðinn afar sorglegan og rannsókn miði að því að finna út hvort gæslu- hlutverk fangelsisins hafi brugð- ist með einhverjum hætti. Hann segir allt benda til að um sjálfsvíg hafi ver- ið að ræða. „Viðamikil rannsókn stendur yfir, bæði á því hvað átti sér stað og hvort eitthvað hafi brugðist í fangels- inu. Fanginn var nýbyrjaður að hefja afplánun. Að svo stöddu lítur út fyrir að viðkomandi hafi svipt sig lífi og það er mjög sorg- legt,“ segir Frisdahl. arvistina í danska fangelsinu. Allan tímann náði Guðjón aðeins að skrifa þeim tvö bréf, það síðara nákvæm- lega mánuði áður en hann lést. „Þeg- ar ég hugsa til baka og fer yfir bréfið sem hann sendi okkur mánuði áður en hann fyrirfór sér, þá sé ég miklu glöggar hvað hann var orðinn von- laus á þeim tímapunkti. Ég þarf ekki annað en skoða betur rithöndina til að sjá það, hún var orðin eins og rithönd gamalmennis,“ segir Guð- mundur. Slæm vist Guðmundur segir vistina í danska fangelsinu til þess eins fallna að yfir- buga menn og þannig hafi farið fyr- ir syni hans. Hann segir Guðjón hafa kvartað sáran undan meðferðinni. „Hann fékk ekki að heyra í þeim sem honum þótti vænt um, fékk ekki nóg að borða og var í einangrun nánast allan tímann. Málið er að það þarf ekki barsmíðar til því andleg kúgun er ekkert skárri,“ segir Guðmundur. „Á þessu langa einangrunartíma- bili fékk Guðjón að hringja tvisvar í okkur foreldrana og í hvort skipti mjög stutt. Skeiðklukkan var ein- faldlega sett í gang um leið og hann hringdi. Á öllu tímabilinu fékk hann ekki að hringja oftar og hann kvart- aði yfir því við okkur. Allt tímabilið fengum við tvö bréf frá honum þar sem berlega kom í ljós angist hans og depurð. “ Svangur að sofa Skömmu fyrir andlátið var Guð- jón dæmdur í tveggja ára fangelsi og var þá færður á almennan gang í fangelsinu. Hann fannst látinn í klefa sínum og öll ummerki gáfu til kynna að hann hefði svipt sig lífi. Viðamikil rannsókn stendur yfir hjá dönskum fangelsismálayfirvöldum til að skera úr um ástæður andlátsins og kanna til hlítar hvort kerfið hafi brugðist. „Hann sagði vistina algjörlega ömurlega í fangelsinu og að hann fengi ekki einu sinni nægjanlega mikið að borða. Hvert einasta kvöld fór hann svangur að sofa. Við náðum stöku sinnum að koma til hans aurum í gegnum sendiráðs- prestinn í Kaupmannahöfn. Við erum þakklát prestinum fyrir hans stuðning,“ segir Guðmundur. Tekinn af lyfjum Guðmundur segir engan vafa leika á að kerfið hafi brugðist syni hans og bugað hann andlega. Hann segir Guðjón hafa þjáðst af þung- lyndi og að hann hafi verið tekinn af lyfjum í fangelsinu. „Ég er eiginlega hissa á því hversu lengi honum tókst að þrauka. Ég hélt að dönsk fangelsi væru betri en þetta. Fjandakornið, ég sé ekki að norrænu fangelsin séu eitthvað skárri en til dæmis fangelsin í Brasilíu,“ segir Guðmundur. Ásta tekur í sama streng og skil- ur ekki hvers vegna sonur hennar fékk ekki þau lyf sem hann þarfnað- ist. „Það má furðu sæta að Guðjón var sviptur öllum lyfjum í langtíma- gæsluvarðhaldinu og einangrun. Það er skelfilegt að hugsa til þess að menn haldnir þunglyndi séu sviptir lyfjum sínum og fái ekki einu sinni að tala við foreldra sína,“ segir Ásta. Mannréttindi brotin Aðspurður segist Guðmundur mest hafa verið í sambandi við ís- lenska sendiráðið til að fá upplýs- ingar. Hann er virkilega reiður yfir samskiptum sínum við dönsk fang- elsismálayfirvöld. „Ég reyndi ítrekað að vera í sambandi við aðila sem hafði með málefni sonar míns að gera. Ég veit ekki hvort viðkomandi var lengstum í sumarfríi en aldrei tókst mér að ná tali af honum. Starfs- mennirnir voru mjög ókurteisir og til dæmis var skellt á mig þegar ég leit- aði svara,“ segir Guðmundur. Ásta segir öll samskiptin við fang- elsið hafa verið slæm og sú var líka upplifun skyldmenna þeirra. „Ókurt- eisin var með ólíkindum, að koma svona fram við foreldra fanga sem vistaður er í fangelsinu. Við hljótum að eiga þau sjálfsögðu mannréttindi að geta verið í sambandi við son okk- ar,“ segir Ásta. Sárt að tapa baráttunni Aðspurð segir Ásta erfitt að rifja upp sögu sonar síns í ljósi þess að ekki reyndist unnt að hjálpa honum. Hún segir hann ávallt hafa komið vel fram við alla. „Guðjón var mjög glaðlyndur, góðhjartaður og hjálp- legur. Þannig minnumst við hans. Við börðumst alla leið og trúðum því ávallt að hann gæti einhvern veginn rifið sig upp úr þessu. Hann glímdi við þunglyndi og var sviptur lyfjum sínum í einangrun. Það er algjör hryllingur að gera þetta svona,“ seg- ir Ásta. Guðmundur tekur í sama streng. Hann segir son sinn hafa fengið gott uppeldi og haft alla burði til þess að ná langt. „Guðjón var verulega skarp- ur og góður drengur. Við getum þó huggað okkur við það að við gerðum allt í þessari veröld til þess að reyna að hjálpa honum. Það er hryllilegt að hafa tapað þessari baráttu á endan- um,“ segir Guðmundur. Hræðileg upplifun Ásta segir afar erfitt að takast á við sonarmissinn. Hún segir Guð- jón hafa verið á réttri leið og að hann hafi meðal annars verið laus við eit- urefnin í rúm fjögur ár. „Það var al- veg hræðilegt að upplifa það að fá tíðindin af sonarmissinum. Guðjón var virkilega vel gefinn strákur og menntaður og hann var búinn að halda sig frá eiturefnum í tæp fjögur ár. Meðal annars útskrifaðist hann úr tölvunarfræði með 9,5 í einkunn. Hann var að koma undir sig fótun- um á nýjan leik og var að finna gleð- ina aftur,“ segir Ásta. Aðspurður veit Guðmundur ekki hvort hægt sé að grípa til einhverra aðgerða varðandi langa einangr- unarvist sonar hans. „Ég veit ekki hvað við getum gert varðandi þessa slæmu meðferð úti. Að minnsta kosti erum við verulega reið og afar ósátt við bæði íslensk og dönsk fangelsis- málayfirvöld. Það er mjög mikilvægt að opna umræðuna um fangavist og betrun fanga. Guðjón okkar þurfti á hjálp að halda sem hann ekki fékk.“ bugaðir einStaklingar Þórir Jökull Þorsteinsson, sendiráðsprestur í Danmörku, heimsótti Guðjón reglulega í sumar og reyndi að veita honum stuðning. Hann segir ríka þörf fyrir slíkan stuðning því föngum líði iðulega illa. „Þetta er virki- legur sorgaratburður sem þarna átti sér stað og ég er að reyna að veita þeim sem eiga um sárt að binda stuðning. Ég hafði verið honum innan handar í fangels- inu í sumar því yfirleitt er þar að finna bugaða einstaklinga. Það líður engum vel í fangelsi,“ segir Þórir Jökull. Syrgjandi foreldrar guðmundur og Ásta fréttu af láti sonar síns þegar lögregluþjónn og prestur bönkuðu á dyr á heimili þeirra og færðu þeim tíðindin. Myndarlegur Guðjón heitinn uppáklæddur á góðri stund. Söknuður guðjón var lífsglatt barn og bræðurnir samrýmdir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.