Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2007, Síða 18
Framherji frá Barcelona, tveir varnarmenn úr ensku úrvals-deildinni og sá þriðji sem er
orðaður við ítalskt stórlið. Ann-
ar maður sem leikur með ítölsku
liði og einn í viðbót sem leikur í 1.
deildinni, auk nokkurra annarra at-
vinnumanna í útlöndum. Svona var
hópurinn sem tapaði fyrir lands-
liði Liechtenstein, samansafni lágt-
skrifaðra atvinnumanna og áhuga-
manna.
Hvað er Liechtenstein? Ein-hverju sinni var ríkinu (ef ríki skyldi kalla) lýst sem
hálfum dal í Austurríki - höfundar-
réttinn af því á Eiríkur Bergmann
Einarsson sem gerði lítið úr örrík-
inu þegar stjórnvöld þar settu sig
upp á móti einhverjum breytingum
á samskiptum EFTA og ESB. Liecht-
ensteinar sýndu svo sem þá að þeir
gætu gert mönnum erfitt fyrir en
hvernig átti manni að detta í hug
að íslenska landsliðið gæti tapað
tvisvar, ég endurtek tvisvar fyrir
því liechtensteinska?
Reyndar ættum við ekki að gera lítið úr hinu hugdjarfa
landsliði Liectenstein.
Menn hafa meira að
segja séð ástæðu til að
skrifa bækur um landslið-
ið. Eða kannski er réttara að
segja bók sem Axlar-Björn er svo
lánsamur að eiga. Charlie Conn-
elly fylgdist með gengi liðsins
í forkeppni heimsmeistara-
mótsins 2002, fór á alla leiki
liðsins og kortlagði hvort
tveggja liðið og landið. Þetta
gerði hann til að fá svar við
spurningu sem hafði vafist
fyrir honum. Hvað fær þrjátíu
þúsund manna og ellefu þorpa
þjóð til að taka þátt í keppni þar sem
landsliðið er næsta öruggt um að
tapa flestum eða öllum leikjum
sínum?
Svarið er fundið. Sennilega hélt fólk í vonina um
að bæta árangurinn. Sá
fram á betri tíð. Nú er
hún komin, þökk sé Ís-
landi. Nú hafa Liechtenstein-
ar unnið tvo leiki í sömu forkeppn-
inni, báða gegn Íslandi. Nú hafa
þeir unnið stærsta sigur sinn í
forkeppni Evrópumóts lands-
liða, gegn Íslandi. Við skul-
um hins vegar ekki gleyma
því að þetta er ekki stærsti
sigur sem Liechtenstein
hefur unnið. Stærsti sigur
þeirra er gegn San Marínó.
...og vaknar þá spurningin: Hvað
er San Marínó?
föstudagur 19. október 200718 Umræða DV
Útgáfufélag: Dagblaðið-Vísir útgáfufélag ehf.
Stjórnarformaður: Hreinn loftsson
framkVæmDaStjóri: Elín ragnarsdóttir
ritStjórar:
reynir traustason og Sigurjón m. Egilsson ábm.
fulltrÚi ritStjóra: janus Sigurjónsson
fréttaStjóri: Brynjólfur Þór guðmundsson
auglýSingaStjóri: Valdimar Birgisson
Umbrot: dV. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur.
dV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
aðaLnúmer 512 7000, ritstjórn 512 7010,
Áskriftarsími 512 7080, augLýsingar 512 70 40.
Hvað er LiecHtenstein?
AxlAr-Björn
ReyniR TRausTason RiTsTjóRi skRifaR Það er nauðsynlegt fyrir íslenskt samfélag að eyða öllum vafa um heiðarleika yfirvalda.
Einkavætt réttlæti
leiðAri
Björgólfur Guðmundsson og aðr-ir þolendur í Hafskipsmálinu ætla að láta rannsaka alla atburðarás-ina sem varð áður en Hafskip varð
gjaldþrota og forráðamenn þess hlutu fang-
elsisdóma. Lengi hefur leikið á því grunur að
stjórnmálamenn og embættismenn hafi mis-
farið með vald sitt og félagið hafi ekki raun-
verulega verið gjaldþrota. Það er mikið al-
vörumál ef á daginn kemur að eitthvað annað
en leitin að réttlæti hafi ráðið för þegar félag-
ið komst í þrot og forráðamenn þess hlutu fangelsisdóma. Það er
grafalvarlegt mál að svipta menn frelsi sínu og æru. Þar að baki
er þjáning fjölda vina og ættingja sem ganga í gegnum sannkall-
að helvíti. Í ljósi efasemdanna sem uppi eru varðandi framgang
réttvísinnar hefði verið eðlilegt að samfélagið sjálft stæði fyrir ít-
arlegri rannsókn á öllu málinu og þá ekki síst framgöngu stjórn-
málamanna þess tíma og forsvarsmanna samkeppnisfélagsins,
Eimskips. Björgólfur Guðmundsson er svo stálheppinn að hafa
fjárhagslega burði til að standa undir rannsókn af því tagi en litli
maðurinn í samfélaginu á ekki sömu möguleika. Einkarannsókn
af því tagi verður véfengd og kallar því á fagmennsku allra sem
að henni koma. Rýnt verður í hvert smáatriði og minnsti feill
verður allri rannsókninni að falli. Jóhannes
Jónsson í Bónus hefur boðað svipaða rann-
sókn á tilurð og framgangi Baugsmálsins.
Það mál gefur fullt tilefni til rannsóknar eins
og Hafskipsmálið en víst er að hvert smátriði
í niðurstöðum verður grandskoðað af þeim
sem hafa uppi efasemdir um að þolendur
málanna fjármagni sjálfir rannsókn.
Bæði Hafskipsmálið og Baugsmálið eru
þannig vaxin að fullkomlega eðlilegt væri að
óháð rannsóknarnefnd færi yfir alla mála-
vöxtu og yfirheyrði þá sem gegndu lykilhlutverkum. Því miður
virðist ekki vera áhugi á því að efna til slíkrar opinberrar rann-
sóknar sem öðrum þræði beindist auðvitað að því að hreinsa
æru þeirra sem taldir eru hafa misbeitt valdi sínu.
Björn Bjarnason dómsmálaráðherra ætti að beita sér fyrir slíkri
rannsókn á sjálfum sér, lögregluyfirvöldum og Davíð Oddssyni,
fyrrverandi forsætisráðherra. Í Hafskipsmálinu gæti hann beitt
sér fyrir rannsókn á þætti ráðherranna Jóns Baldvins Hannibals-
sonar og jafnvel Ólafs Ragnars Grímssonar. Ef einkavædd rann-
sókn er eina úrræðið verður svo að vera. Það er nauðsynlegt fyrir
íslenskt samfélag að eyða öllum vafa um heiðarleika yfirvalda í
þessum málum.
Dómstóll götunnAr
Á Ólafur ragnar að halda Áfram sem forseti?
„Ég hef nú ekki mikla skoðun á þessu.
mér finnst hann samt alveg mega vera
áfram því hann er búinn að standa sig
vel.“
Ísak Einarsson, 15 ára nemi
„já, alveg hiklaust. Hann er búinn að
standa sig vel og er verðugur forseti
þessa lands.“
Heiðar Ragnarsson,
57 ára sjómaður
„já, alveg endilega. Hann er búinn að
standa sig ágætlega og er fínn náungi.“
Grétar Sigurðarson, 15 ára nemi
„já, alveg eins. mér finnst hann hafa
staðið sig ágætlega. Það væri samt líka
allt í lagi að fá einhvern nýjan því hann
er búinn að vera það lengi. annar
mætti hann alveg vera áfram.“
Telma Björk Sigurðardóttir,
29 ára kennari
sAnDkorn
n Séra Þórir Jökull Þorsteins-
son, prestur Íslendinga í Kaup-
mannahöfn, er á meðal þeirra
sem teljast
til svart-
stakka innan
Þjóðkirkj-
unnar. Þórir
var lengi
sóknar-
prestur á
Selfossi þar
sem hann
naut vinsælda. Framan af ferli
hans þar þóttu ræður hans
vera fremur langar og var hann
þá kallaður Þórir Langjök-
ull. Kennimaðurinn heyrði af
þessu og stytti ræðurnar mjög.
Þá tók ekki betra við því þá
breyttist bara eftirnafnið og
sóknarbörn kölluðu hann Þóri
Skriðjökul.
n Það er í tísku þessa dagana
að tala um þekkingarþorp.
Húmoristar
í Kópavogi
Gunnars I.
Birgisson-
ar bæjar-
stjóra halda
því fram
að sá bær
standi undir
því að vera
þeirrar gerðar. Ástæðan sé sú
að í Kópavogi þurfi menn að
þekkja einhvern til að fá út-
hlutað lóð eða öðrum opin-
berum gæðum.
n Byltingarleiðtoginn og græn-
jaxlinn Svandís Svavarsdótt-
ir segir sögu sína í viðtali við
tímaritið
Mannlíf en
hún leiddi
uppreisn
gegn meiri-
hluta borg-
arstjórnar
sem kikn-
aði und-
an álaginu
og sprakk að lokum. Þá gerir
Svandís upp við föður sinn,
Svavar Gestsson sendiherra og
fyrrverandi formann Alþýðu-
bandalagsins, og ræðir móður-
missinn, en móðir hennar var
viðstödd fæðingu allra barn-
anna hennar. Þá telur Svandís
ákveðinn lögskilnað hafa orðið
á milli Samfylkingarinnar og
vinstri grænna eftir að fyrr-
nefndir gengu í sömu sæng og
Sjálfstæðisflokkurinn í lands-
pólitíkinni.
n Össur Skarphéðinsson,
ráðherra og valdamesti mað-
ur Samfylkingarinnar, dreg-
ur fátt undan á heimasíðu
sinni og heggur þar mann og
annan. Hann tekur fyrir nú
blaðamenn sem ganga erinda
stjórnmálaflokka: „Það er
hættulegt þegar valdamikl-
ir blaðamenn fá einstaklinga
eða stjórnmálaflokka á peruna
og virðast hvorki geta lifað í
vökunni né bylt sér í svefni án
þess að hrakyrða þá. Agnes
Bragadóttir, pólitískur penni
Morgunblaðsins, er í þessum
hópi. Hún er með Samfylking-
una á perunni, og skirrist ekki
við að níða niður einstaklinga
innan hennar sem ekkert hafa
til saka unnið annað en vera
sjálfum sér trúir...“