Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2007, Síða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2007, Síða 31
DV Sport föstudagur 19. október 2007 31 Spennan nær hámarki í braSilíu © GRAPHIC NEWS Yngstu F1 meistararnir Ef Lewis Hamilton nær að tryggja sér sigur í heimsmeistarakeppni ökumanna í kappakstrinum í Brasilíu, þá verður McLaren ökumaðurinn yngsti heimsmeistari í sögu Formúlu 1 - aðeins 22 ára og 285 daga. Fernando Alonso Emerson Fittipaldi Michael Schumacher Niki Lauda Jacques Villeneuve Jim Clark Jochen Rindt Ayrton Senna James Hunt Nelson Piquet 5824 - 27325 - 31425 - 19726 - 20026 - 18827 - 16928 - 22328 - 5629 - 6129 SPÁ BRA ÞÝS AUS KAN SKO AUS BRA ENG BRA - Aldur þegar titilinn vannst (ára - daga) Mynd: Getty Images Heimild: Infostrada Sports í dag 17:30 Reading - deRby 19:10 Fulham - PoRtshmouth 20:50 PRemieR league WoRld Heimur úrvalsdeildarinnar Nýr þáttur þar sem enska úrvalsdeildin er skoðuð frá ýmsum óvæntum hliðum. 21:20 PRemieR league PRevieW Leikir helgarinnar Vikulegur þáttur þar sem hitað er upp fyrir leiki helgarinnar. 21:50 Pl ClassiC matChes bestu leikir úrvalsdeildarinnar Hápunktarnir úr bestu og eftirminnileg- ustu leikjum úrvalsdeildarinnar. 22:20 Pl ClassiC matChes bestu leikir úrvalsdeildarinnar Hápunktarnir úr bestu og eftirminnileg- ustu leikjum úrvalsdeildarinnar. 22:50 goals oF the season 2001- 2002 öll glæsilegustu mörk hverrar leiktíðar Úrvalsdeildarinnar frá upphafi til dags- ins í dag. 23:50 PRemieR league PRevieW Leikir helgarinnar Vikulegur þáttur þar sem hitað er upp fyrir leiki helgarinnar. laugaRdaguR 08:25 PRemieR league WoRld Heimur úrvalsdeildarinnar Nýr þáttur þar sem enska úrvalsdeildin er skoðuð frá ýmsum óvæntum hliðum. 08:55 Pl ClassiC matChes bestu leikir úrvalsdeildarinnar Hápunktarnir úr bestu og eftirminnileg- ustu leikjum úrvalsdeildarinnar. 09:25 Pl ClassiC matChes bestu leikir úrvalsdeildarinnar Hápunktarnir úr bestu og eftirminnileg- ustu leikjum úrvalsdeildarinnar. 09:55 goals oF the season 01-02 öll glæsilegustu mörk hverrar leiktíðar Úrvalsdeildarinnar frá upphafi til dags- ins í dag. 10:55 PRemieR league PRevieW Leikir helgarinnar Vikulegur þáttur þar sem hitað er upp fyrir leiki helgarinnar. 11:25 eveRton - liveRPool 13:45 aRsenal - bolton 16:00 aston villa - man. utd 18:10 4 4 2 19:30 4 4 2 20:50 4 4 2 22:10 4 4 2 23:30 4 4 2 sunnudaguR 09:10 middlesbRough - Chelsea 10:50 4 4 2 12:10 CoCa-Cola ChamPionshiP 14:10 PRemieR league WoRld Heimur úrvalsdeildarinnar Nýr þáttur þar sem enska úrvalsdeildin er skoðuð frá ýmsum óvæntum hliðum. 14:40 West ham - sundeRland 17:15 aston villa - man. utd 18:55 eveRton - liveRPool enska úRvalsdeildin 20:35 4 4 2 22:00 aRsenal - bolton forystan Þrátt fyrir áfall og bilaðan bíl í Kína er stöðugleiki lykillinn að árangri á tímabilinu og hann þarf fæst stig í Brasilíu til að tryggja sér sigur. Pressa Sigri Hamilton verður hann fyrstur nýliða til þess. Tapi hann, verður þetta samt sem áður besta ár nýliða í sögu Formúlu 1. Ef Alonso eða Räkkönen vinna bíður hann lægri hlut fyrir einum af bestu ökumönn- um samtímans. Liðsandi Enginn heldur því fram að McLaren komi jafnt fram við öku- menn og Hamilton veit að flestir liðs- menn McLaren vilja frekar að hann vinni titilinn. Það gefur Hamilton for- skot, sér í lagi þar sem helsti keppi- nautur hans er samherji hans hjá McLaren. Lewis Hamilton „Kappaksturinn í Kína var mik- ilvæg lexía fyrir mig og atvik sem ég mun læra af og reyna að bæta mig sem ökumaður. Ég hætti fljótlega að hugsa um þetta atvik og frá því ég fór frá Kína hefur ég einbeitt mér al- farið að Brasilíu. Interlagos er ein af þessum brautum sem allir tala um. Mér skilst að andrúmsloftið hér sé frábært, stuðningsmennirnir elska íþróttina og brautin býður upp á frá- bæran kappakstur. Þetta er enn ein ný braut fyrir mér og margir hafa talað um hversu erf- itt er að aka á henni. Því lít ég á þetta sem sérstaka áskorun fyrir mig. Ég hef átt nokkrar frábærar keppnir með mínu liði á þessu ári og ég von- ast eftir einni slíkri á Interlagos. Þrátt fyrir að ég sé enn í forystu er heimsmeistarakeppnin enn mjög opin. Ég mun gera allt sem ég get til að fá þau stig sem ég þarf, og annað er ekki í okkar höndum.“ sagt fyrir kePPni kostir+ gaLLar- reynsLuLeysi Alonso og Räikkön- en eiga reynslu að baki í toppbar- áttu. Hamilton er hins vegar nýliði. Hann hefur að vísu unnið titla áður, en aldrei undir álíka pressu og fjöl- miðlaumfjöllun og fylgir Formúlu 1. Eru mistök hans í Kína fyrstu merki þess að hann sé að bugast? Þar fyrir utan hefur hann aldrei keppt á braut- inni í Brasilíu. Pressa Á vissan hátt er Hamilton ekki undir neinni pressu. Ekki er þó hægt að líta framhjá því að einhver pressa er til staðar. Hún kemur úr öll- um áttum, hvort sem hún er bein eða óbein, frá keppinautum, McLaren eða fjölmiðlum um allan heim, sem margir hverjir vilja sjá ævintýri Ham- iltons rætast. MótLæti Það dylst engum að Alonso er töluvert einangraður hjá McLaren og fáir búast við því að hann haldi áfram hjá liðinu. Halda mætti að sú staða dragi úr ökumönn- um, en í þessu tilfelli virðist Alonso hreinlega þrífast á stöðunni. ÁHættusaMur Hugsanlega lítur Hamilton svo á stöðuna að hann hafi engu að tapa og keyri djarft, bæði inni á brautinni og í kænsku utan brautar. Ef hann nær að fara í taug- arnar á Hamilton og nær að sann- færa sitt lið um að hann muni ekki sættast á neinar málamiðlanir veit Alonso að hann hefur reynsluna af því að sigra. fernando alonso „Ég á margar stórkostlegar minn- ingar frá Interlagos, því ég hef unn- ið báða mína heimsmeistaratitla á brautinni. Þetta voru mjög ólíkir kappakstrar. Brautin er mjög ójöfn, þú þarft að hafa gott jafnvægi sem leyfir þér að aka hratt án þess að líða óþægilega. Það eru nokkrar frábærar beygjur þar sem hægt er að sækja á andstæðinginn og allur hæðarmun- urinn gerir brautina áhugaverða fyrir ökumenn. Ég er viss um að við förum til Brasilíu með sanngirni í liðinu og tvo bíla sem færir eru um að berj- ast til sigurs. Þrátt fyrir að ég sé að- eins fjórum stigum á eftir Lewis þarf ég að treysta á að margt, gangi mér í hag ef ég á að vinna heimsmeistara- titil ökumanna. En auðvitað mun ég gera allt sem ég get til að ná sigri. Ég þarf að vinna mína vinnu og vona að allt annað gangi mér í hag.“ sagt fyrir kePPni kostir+ gaLLar- Hann er ekki í forystu Alonso hefur aldrei þurft að sækja titil í síð- ustu keppni tímabilsins, ef svo má að orði komast. Árið 2005 var Alonso með gott forskot á Räikkönen allt tímabilið. Mótið var meira spenn- andi á síðasta ári, þegar hann var jafn Michael Schumacher að stigum fyrir síðustu keppni tímabilsins. Schuma- cher komst hins vegar aldrei upp fyr- ir Alonso að stigum. Hann Hefur þegar taPað McLar- en hefur komist að því að Alonso læt- ur illa að stjórn. Ef Alonso trúir virki- lega að Hamilton sé ætlað að vinna titilinn, getur þá verið að Alonso sé nú þegar búinn að gefast upp? Hann hefur nokkrum sinnum gefið það í skyn að úrslitin séu nú þegar ráðin. aLLt er þegar þrennt er Räikk- önen hefur verið í þessari stöðu áður. Hann hefur þó aldrei unnið titilinn, en hann hefur tvisvar endað í öðru sæti, 2003 og 2005. Árið 2003 endaði hann aðeins tveimur stigum á eftir Michael Schumacher eftir æsilega keppni allt til loka. Hann býr að þessari reynslu og fastlega má gera ráð fyrir að hann leggi allt í sölurnar. Räikkönen líður líka vel þegar hann þarf að sækja. LiðsféLagi Hans Þar sem Massa á ekki möguleika á titlinum má gera ráð fyrir að Ferrari setji það sem að- alverk hjá Massa að hjálpa Räikkön- en í baráttunni um heimsmeistaratit- ilinn. Klárlega munaður sem Alonso og Hamilton munu ekki hafa gaman af. kimi räikkönen „Við förum til Brasilíu í þriðja sæti. En eins og við sáum í Kína fyr- ir tveimur vikum getur allt gerst. Við munum leggja allt í sölurnar. Það er mikil pressa á báðum liðum. Þeir eru með tvo ökumenn sem berjast um titilinn. Vonandi vinnur það okkur í hag. Á Interlagos þurfum við sterka heild, vélin þarf að virka sérlega vel í löngu, beinu brekkunum. Ég hef lesið fregnir um að ofurm- júku dekkin ættu að koma sér betur fyrir andstæðinga okkar. Það má vera að svo hafi verið fyrr á tímabilinu en við höfum bætt okkar uppsetningu. Við verðum bara að sjá til hvað ger- ist í Brasilíu. Ég hef verið nálægt því að vinna á Interlagos, en það hefur ekki enn gengið upp. Ég sagði það sama fyrir tveimur vikum og í ár vann ég þar.“ sagt fyrir kePPni kostir+ gaLLar- ÁreiðanLeiki Miðað við McLaren hefur Ferrari verið veikari aðilinn á þessu tímabili og eitt vandamál til viðbótar, annaðhvort í tímatöku eða keppni, gæti gert út um vonir Räikk- önen. Hann Á of Langt í Land Räikkön- en er sjö stigum á eftir Hamilton og þremur stigum á eftir Alonso. Það þýðir að Räikkönen þarf ekki aðeins að vinna í Brasilíu, hann þarf einn- ig að treysta á að keppinautar hans geri alvarleg mistök. Ef hann vinnur, Massa endar í öðru og Alonso í þriðja þarf Räikkönen að treysta á að Ham- ilton endi ekki ofar en í sjötta sæti til að tryggja sér titilinn. svo skyldi fara að þessir þrír öku- þórar endi með 107 stig, verður það Finninn Kimi Räikkönen sem hrósar sigri, því hann hefur unn- ið flestar keppnir af þeim þrem- ur. Räikkönen hefur unnið fimm keppnir á tímabilinu á meðan þeir Alonso og Hamilton hafa að- eins unnið fjórar. Felipe Massa á ekki lengur möguleika á að vinna titilinn en hann er á heimavelli um helgina og vill eflaust sýna hvað í honum býr. Hann þarf hins vegar ekkert að sanna fyrir Ferrari því hann skrifaði í vikunni undir nýjan samning til ársins 2010. Með sigri verður Lewis Ham- ilton yngsti heimsmeistari í sögu Formúlu 1, 22 ára. Árið 2005 varð Fernando Alonso yngsti ökumað- urinn til að vinna heimsmeistara- titilinn, 24 ára og 59 daga. Interlagos-kappaksturinn hefst klukkan 16:00, en bein útsending í Sjónvarpinu hefst klukkan 15:30. Þetta er kappakstur sem áhuga- menn mega hreinlega ekki láta framhjá sér fara.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.