Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2007, Qupperneq 43

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2007, Qupperneq 43
Meistarinn Finnbogi Kristinsson Matgæðingurinn DV Helgarblað föstudagur 19. október 2007 43 „Þetta er súpa sem klikkar ekki. Og hún er einföld og góð,“ segir Finn- bogi Kristinsson, matgæðingur vik- unnar, sem gefur lesendum uppskrift að engifertómatsúpu og kjúklinga- rétti. Finnbogi fékk uppskriftina að súpunni í bók sem heitir Flavouring with Ginger fyrir fjórum árum. „Og ég hef notað hana mjög mikið síðan. Ég nota þessa súpu við öll tækifæri og oft þegar það koma gestir. Hún er svo- lítið öðruvísi en fólk er almennt mjög ánægt með hana.“ Finnbogi þvertekur ekki fyrir að hann sé mikill súpumaður. „Já, já, ég elda líka góða gúllassúpu og oft fiski- súpu. Súpur eru bara hluti af matseld- inni. Og engifertómatsúpan stendur sem heil máltíð. Ef það er gott brauð með henni þarftu ekkert annað.“ Kjúklingauppskriftina fann Finn- bogi á netinu. „Ég greip hana af net- inu fyrir einhverju síðan og þetta féll bara í góðan jarðveg. Þetta er léttur réttur til að redda sér á. Maður er allt- af að redda sér í tímahraki.“ Finnbogi segist eiginlega alveg sjá um matseldina á heimilinu. „Minn vinnutími er þannig að ég er yfirleitt kominn heim á undan og hef betri tíma til að stúdera hvað skal borða. Konan er ægilega ánægð með þessa tilhögun,“ segir Finnbogi kíminn. Engifer- og tómatsúpa með hvítlauk og cayennepipar 2 dósir kurlaðir tómatar 2 msk. olía 1 laukur fínt skorinn 2 hvítlauksgeirar kramdir 2 ½ sm ferskur engifer, fínsaxaður 600 ml kjúklingakraftur ½ tsk. púðursykur Cayennepipar á hnífsoddi sjávarsalt og nýmalaður svartur pipar ferskt rósmarín steytt Aðferð Hellið innihaldi tómatdósanna í pott. Bætið í hvítlauk, engifer, sykur, ceyennepipar, salti, pipar, rósmar- ín og kjúklingakrafti. Látið sjóða við vægan hita í um það bil 20 mínútur. Gott er að rífa ost og setja út í súpuna rétt áður en hún er borin fram. Uppskrift fyrir fjóra 4 kjúklingabringur 1 ½ msk. sítrónusafi ¼ tsk. tímían ½ tsk. rauð chillipiparkorn 1 hvítlauksrif, brytjað niður ¼ bolli ólífuolía ¼ tsk. salt ¼ tsk. nýmalaður svartur pipar Aðferð Setjið tímíanið, sítrónusafann, rauðu chillipiparkornin, hvítlauk- inn, ólífuolíuna, saltið og piparinn í skál og blandið vel saman. Þek- ið kjúklingabringurnar með blönd- unni. Steikið eða grillið kjúklinga- bringurnar í um það bil 10 mínútur á hvorri hlið, eða þar til þær eru til- búnar. Berið fram t.d. með góðu salati og basmati-hýðisgrjónum. Köld hvítlaukssósa 1 dós 5% sýrður rjómi 1 msk. ólífuolía ½ tsk. salt 2 geirar hvítlaukur 6 basillauf Aðferð Olía og salt sett í skál og hrært saman. Sýrða rjómanum bætt við, basil og hvítlaukur sett í gegnum hvítlaukspressu eða skorið smátt og blandað saman við, hrært vel sam- an. sem reddar sér „Ég skora á mág minn, Gunn- ar Örn Harðarson, að vera næsti matgæðingur. Hann er einstak- ur í sinni röð og allur fyrir smá- atriðin í matargerðinni.“ Riesling í Alsace riesling er fyrst getið í alsace 1477 þegar hertoginn af Lorraine fór um þrúguna fögrum orðum og í dag er yfir fimmtungur vínræktar- innar úr riesling. Vínin eru nokkuð ólík nágrönnum þeirra í Þýskalandi, aðal- lega vegna þess að jarðvegur- inn er kalkríkari og leir- kenndari. framleiðsluaðferðirnar eru „franskari“ og vínin yf- irleitt áfengari. eikartunn- ur eru ekki notaðar. Vínin geta geymst mjög vel, jafnvel í áratugi. Héraðið hefur ýmist verið undir þýsk-um eða frönskum yfirráðum. Þýskra áhrifa gætir víða. Þetta er eina héraðið í frakklandi sem framleiðir vín sem kennd eru við tiltekna vínþrúgu og ræktað- ar þrúgur eru yfirleitt þær sömu og í Þýskalandi. flokkunarkerfið er óvenju auðskilið í alsace, ólíkt því sem gerist í frakklandi al- mennt og ekki síður Þýskalandi. algengustu þrúgurnar í alsace eru riesling (22%), gewurztra- miner (18%) og Pinot gris (14%). Vín er ræktað á 15 þúsund hekturum í 119 þorpum í al- sace. Ársframleiðaslan er 150 milljónir flaskna og heildar- tekjur eru 45 milljarðar ís- lenskra króna. alsace er í norð-austur-horni frakk- lands, vestan rínar og undir Vosges- fjallgarðinum. Vestanvindar eru ríkjandi og fjöllin skýla alsace fyrir regni og svölu sjávarlofti. alsace er með þurrari stöðum frakk- lands og á haustin er þar oft jafnheitt og í búrgúndí. Þetta er þunn landræma vestan rínar, 170 kílómetra löng sem stundum er nefnd „route du Vin“. Héraðið virkar þýskt enda var það hluti Þýskalands til 1945. flöskurnar, húsin og maturinn minna á Þýska- land og þarna er töluvert drukkið af bjór. Pálmi jónAsson vínsérfræðingur DV Léon Beyer Riesling 2005 beyer-fjölskyldan hefur ræktað vín í eguisheim í alsace síðan 1580. emile beyer stofnaði Maison de Vin d´alsace árið 1867. Léon beyer tók við af föður sínum og alnafna árið 1959 og rekur nú fyrirtækið ásam Marc syni sínum. Þetta vín er með sterkri blómaangan, blandaðri með apríkósum, fáfnisgrasi (estragon), aspas og sítrus. sítrus og greip í munni með keim af ananas og apríkósum. ferskt og gott vín. best þessara þriggja riesling-vína frá alsace. 1.590 krónur. Hugel Riesling 2005 Vitað er að Hugel-fjölskyldan hefur búið í alsace og starfað við vínrækt frá 15. öld. Það var þó ekki fyrr en 1639 er Hans ulrich Hugel settist að í riquewihr að hún fór að framleiða vín í nafni fjölskyldunnar. Hugel-vín hefur verið framleitt allar götur síðan. Hugel riesling er með góðri liljuang- an, sítrónu, ananas og perum. sterkt greipbragð með grænum eplum og sítrónu. Létt og ferskt en jafnframt skraufþurrt. 1.490 krónur. Lucien Albrecht Riesling Réserve 2005 Lucien albrecht er fornt fjölskyldufyrirtæki frá orschwihr, syðst í alsace. af þessu riesling-víni er sterk eplalykt með límónuberki. græn epli, greip og sítrónubörkur í munni. ferskt og vel súrt, þótt þetta sé engin mysa. Passaði ágætlega með skinku og beikonsúrkáli (sauerkraut). Minnir helst á sítrónusorbet. fullmikið af því góða, sérstaklega fyrir þetta verð. 1.690 krónur. Einkunn í vínglösum: IIIII Stórkostlegt IIII Mjög gott III Gott II Sæmilegt I Slakt Súpumaður
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.