Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2007, Side 44
föstudagur 19. október 200744 Ferðir DV
U m s j ó n : B a l d u r G u ð m u n d s s o n . N e t f a n g : b a l d u r @ d v . i s
Ganga á Plútó
Vísindamenn á Vísindavefnum hafa reiknað út hve lengi venjulegur maður
yrði að ganga á Plútó, það er að segja ef maður gæti gengið á himninum og í
sólkerfinu. ef göngumaðurinn gengur 5 kílómetra á klukkustund telja þeir að
ganga taki 584.200.000 klukkustundir, eða 66.700 ár. Þar er ekki gert ráð fyrir
neinni hvíld. Þeir vilja þó ítreka við hugsanlega göngumenn að vanda til
verka við útreikninga. ef Plútó væri nýfarinn framhjá áætluðum stað, þegar
göngugarpinn bæri að garði, yrðu það gífurleg vonbrigði.
Aðstæður til göngu sunnu-daginn 7. október voru eins og þær gerast bestar. Blankalogn, hiti við frost-
mark og glaðasólskin. Lagt var af
stað áleiðis upp Ytri-Súlur rétt fyr-
ir klukkan tíu að morgni og gengið
rösklega. Leiðin að Ytri-Súlum er
vinsæl gönguleið meðal Norðlend-
inga enda er leiðin upp á topp til-
tölulega auðveld yfirferðar. Topp-
urinn er í 1.213 metra hæð yfir
sjávarmáli en til samanburðar er
Esjan í 914 metra hæð.
Ferðin sóttist vel enda voru að-
stæður góðar og um klukkan 11.30
var toppnum náð og við blasti stór-
kostlegt útsýnið yfir Eyjafjörð. Þar
var stoppað stutt til að fá næringu
og kvitta fyrir komuna í gestabókina
á toppi fjallsins.
Minnti á þjóðsögur
Ferðinni var síðan heitið áfram
hrygginn sem liggur að Syðri-Súl-
um en gangan þangað tekur aðeins
um tuttugu mínútur. Frá Syðri-Súl-
um tók við ganga að litlum tindum
sem heita Stóri og Litli Krummi. Frá
þeim var gengið yfir sléttuna sem
liggur að fjallinu Bónda. Landslagið
á sléttunni er stórbrotið enda er út-
sýnið í allar áttir mikið og sést með-
al annars vel austur í Herðubreið-
arlindir. Stórir hamraveggir minna
á gamlar þjóðsögur um álfa og tröll
en fjöllin Bóndi og Kerling bera
nafn með rentu en þau standa nán-
ast hlið við hlið. Kerling er hæsta
fjall Norðurlands og stendur það í
1.538 metra hæð yfir sjávarmáli og
liggur aðeins fyrir innan Bónda.
Snarbrattar hlíðar
Eftir að hafa gengið yfir slétt-
una í átt að Bónda tók við krefj-
andi ganga upp á topp fjallsins.
Töluverður snjór hafði safnast í
brattar hlíðarnar sem gerði göng-
una erfiðari. Jarðvegurinn í hlíð-
um fjallsins var auk þess laus í sér
og því þurfti að huga vel að hverju
einasta skrefi. Ferðin upp á topp
gekk þó þrautalaust fyrir sig, þó
þreytan væri aðeins farin að segja
til sín. Klukkan var orðin 13.30 og
að toppi Kerlingar blasti við rúm-
lega klukkustundar löng ganga.
Það var sameiginleg ákvörðum
að ganga að Kerlingu, en í þetta
skiptið var ekki reynt við tindinn.
Í stað þess var gengið frá Bónda
upp Þríklakka og þaðan að hlíð-
um Kerlingar til að finna skikk-
anlegan stað til að hefja niður-
ferðina. Staðurinn sem varð fyrir
valinu verður seint verðlaunaður
fyrir að vera léttgengur. Á þess-
um tímapunkti voru blautir fæt-
ur og viðkvæmir ökklar farnir að
setja strik í reikninginn. Vegna
bleytunnar mynduðust slæmar
blöðrur á fótum sem virðast vera
óhjákvæmilegur fylgifiskur krefj-
andi gönguferða.
Ánægjuleg heimkoma
Gangan niður gekk þó áfalla-
laust fyrir sig en gengið var nið-
ur meðfram lækjarsprænu sem
sinnti vel því hlutverki að svala
brýnasta þorstanum. Eftir að hafa
endastungist í nokkur skipti nið-
ur í djúpan snjóinn og að launum
fengið götóttar buxur, var loksins
komið niður á jafnsléttu. Gangan
niður tók um eina og hálfa klukku-
stund en niðurferðin sóttist verr
en gert hafði verið ráð fyrir. Eft-
ir að komið var niður á jafnsléttu
var gengið að þjóðveginum og
tók það um klukkustund. Gengið
var yfir holótta móana sem voru
blautir eftir úrkomu haustsins og
því voru það ánægðir fætur sem
settust inn í bíl sem beið okkar á
áfangastað klukkan fjögur seinni-
part dags.
Göngunnar verður helst minnst
fyrir frábært veður og stórbrotið
útsýni í fallegum haustlitunum.
Ferda-
langur.net
Vefurinn ferdalangur.net er
heilmikill upplýsingabrunnur um
ferðalög. Margrét gunnarsdóttir,
fararstjóri, bókasafns- og
upplýsingafræðingur, hefur á
vefnum tekið saman verulega
mikið af upplýsingum um ferðalög,
mest í evrópu. Þar má finna
töluverðar upplýsingar um ein
fjórtán lönd en efnisflokkar
síðunnar eru á fimmta tug. Margrét
er, eins og gefur að skilja forfallinn
ferðalangur, eins og hún segir sjálf,
en tilgangur þessarar síðu er að
miðla fróðleik til sjálfstæðra
ferðalanga; þeirra sem hafa gaman
af að ferðast ódýrt um meginland
evrópu og njóta þess að lesa sér til
áður en haldið er af stað. óhætt er
að mæla með þessari síðu.
Flugvélaflök á
Fagradalsfjalli
Á sunnudaginn gefst áhugasöm-
um kostur á því að ganga undir
leiðsögn á fagradalsfjall á
reykjanesi. Þar má meðal annars
sjá þrjú flugvélaflök frá seinni
heimsstyrjöldinni. brottför verður
klukkan hálf ellefu frá bsÍ. frá
slögu liggur leiðin með austurhlíð
fagradalsfjalls um Nátthaga
norður með borgarfjalli. Á hægri
hönd er Langihryggur og síðan
stórihrútur en á hann verður
gengið ef aðstæður leyfa. svo
verður gengið á fagradalsfjall.
Vegalengd er 13 til 15 kílómetrar
en hækkun er þrjú til fjögur
hundruð metrar. Nánari upplýsing-
ar á utivist.is.
Göngugleði á
sunnudögum
Þótt síðustu sólargeislar sumarsins
séu kulnaðir er nóg framboð af
hvers kyns skipulögðum
gönguferðum. fjölmargir vefir eru
til þar sem hægt er að finna
upplýsingar um gönguferðir sem
opnar eru öllum. sumar kosta
örlítið en margar eru þátttakend-
um að kostnaðarlausu. ferðafélag
Íslands er gott dæmi um félag þar
sem alltaf er eitthvað um að vera.
Hvern einasta sunnudag efnir fÍ til
göngugleði og leggur af stað frá
Mörkinni 6 klukkan hálf ellefu. Þá
er ekið í einkabílum að upphafs-
stað og gengið í þrjár til sex
stundir, eftir aðstæðum. Þátttaka
er ókeypis en gott er að hafa með
sér nesti. Nánari upplýsingar á fi.is.
á ferðinni
Nánast öllum er fært að ganga á
Úlfarsfell, sem er sérstaklega vel í sveit
sett. Vissulega er það í landi Mosfells-
bæjar, en fyrir okkur sem búum í höf-
uðborginni eða næstu sveitarfélögum
skiptir svo sem engu til hvaða sveitar-
félags hvað og eitt tilheyrir. Þess vegna
er sagt hér að Úlfarsfell bjóði upp á
útivist, nánast í miðri borg.
Skemmtilegast er að ganga á Úlf-
arsfell þar sem Skógræktarfélag Mos-
fellsbæjar er með skógarlund í norð-
urhlíð fellsins, en komið er að hlíðinni
frá Vesturlandsvegi. Þaðan er gengið
til suðausturs upp háls og eftir stutta
göngu er gengið í norðaustur upp fell-
ið. Þessi ganga er skemmtilegri en sú
sem oftast er gengin, það er frá Haf-
ravatnsvegi. Sú leið sem hér er mælt
með er skemmtilegri þar sem hún er
ekki á akvegum eins og hluti þeirrar
leiðar sem farin er þegar farið er frá
Hafravatnsvegi.
Ganga á Úlfarsfell tekur ekki
lengra tíma en góð æfing í líkamsrækt
og því er ganga á fellið kjörin í há-
deginu, en enn heppilegri um helgar.
Ganga á Úlfarsfell er hverrar mínutu
og hvers metra virði. Gangan tekur
rúma klukkustund og Úlfarsfell er 295
metra hátt.
sme@dv.is
Enn á ÚlfarsfElli
Enn um sinn er rétt að dvelja aðeins lengur við Úlfarsfell. Í helgarblaði DV í síðustu viku
varð myndabrengl sem skaðaði greinina um Úlfarsfell. Hér verður leitast við að laga það
sem ekki var nógu gott og nýju bætt við. Upphafið Hér er skemmti-
legast að hefja gönguna.
Gestabókin Á toppi Úlfarsfells
er gestabók þar sem göngufólk
skrifar nafnið sitt.
Í nágrenni Akureyrar er fjöldinn allur af skemmtilegum og krefjandi gönguleiðum.
Sunnudaginn 7. október fóru þeir Einar Þór Sigurðsson, blaðamaður á DV, og
göngugarpurinn Brynjar Helgi Ásgeirsson í um tuttugu kílómetra göngu. Ferðin
hófst við rætur Ytri-Súlna og endaði við Finnastaði sem er um 15 kílómetrum sunn-
an Akureyrar.
Sex tinda ganga
í Eyjafirði
Kvittað fyrir komuna Hér
sést brynjar Helgi kvitta í
gestabókina í góða veðrinu.
Súlur Þarna sést í tind syðri-súlna sem
eru í 1.213 metra hæð yfir sjávarmáli. Í
baksýn skartar akureyri sínu fegursta.