Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2007, Qupperneq 56
AIRWAVES
föstudagur 19. október 200756 Helgarblað DV
TónlisT
Single Drop
á NASA
Hljómsveitin single drop steig á svið á
Nasa klukkan 20.15 síðastliðinn
miðvikudag en single drop sendi frá
sér samnefnda plötu fyrr á árinu.
sveitina skipa þau birkir rafn gíslason,
Ásta sveinsdóttir, egill örn rafnsson,
Leifur Jónsson og ragnar Zolberg
rafnsson. Ásta sveinsdóttir söng af
mikilli innlifun við samræmdan og
kröftugan undirleik. tónlistin fangaði
strax athygli mína og upplifði ég þó
nokkur gæsahúðaaugnablik. Lagið
ocean hljómaði einstaklega vel sem og
síðasta lagið I Will follow sem náði
kröftugu risi undir lokin og verð ég að
viðurkenna að ég hefði alveg verið til í
að hlusta á nokkur lög til viðbótar.
Utandagskrártónleikar á Airwaves!
föstudagur kl. 17.15: 12 tónar – singapore sling
föstudagur kl. 18.00: skífan – Jenny Wilson
Laugardagur kl. 15.00: smekkleysa – bloodgroup
Laugardagur kl. 16.00: kaffibarinn – bedroom Community
Laugardagur kl. 19.10: skífan – Motion boys
Grasrætur á
Grand Rokk
blús-rokkhljómsveitin grasrætur
spilaði á grand rokk klukkan 21 á
miðvikudaginn og stóð sig með prýði.
undirrituð hafði einungis heyrt eitt lag
frá sveitinni og líkað það vel og fannst
því full ástæða til að skella sér á
hljómleikana. Mikilla doors-áhrifa
gætti í lögunum og mátti jafnvel sjá
örlitla Jim Morrison-takta hjá
söngvaranum. sveitin stóð sig vel og
spilaði sækadelískt blús-rokk sem hélt
mér vel við efnið í fyrstu en náði þó
ekki að halda athygli minni út
tónleikana. Í heildina séð stóð
grasrætur sig vel en undir blálokin var
mér farið að finnast lögin frekar einsleit
og það var eitthvað örlítið sem vantaði
upp á til að mig langaði að heyra
meira. Ég efast hins vegar ekki um að
grasrætur sé komin til að vera og eigi
bara eftir að verða betri með tímanum.
Smoosh á NASA
bandaríska krútthljómsveitin smoosh
náði að troðfylla Nasa á miðvikudag-
inn en hljómsveitin samanstendur af
þremur systrum á aldrinum ellefu til
fimmtán ára. Þessar ungu stelpur
semja allt sitt efni sjálfar. Meirihluta
tónleikanna voru einungis tvær
systranna á sviðinu, þær Chloe sem
spilaði á trommur og alya á hljómborði
auk þess að syngja. Yngsta systirin
spilaði svo með þeim á bassa í
nokkrum lögum og var eitthvað allt of
krúttlegt við þessa pínulitlu stelpu
plokka bassann af ákafa. Ég verð að
viðurkenna að ég varð mjög svo
impóneruð yfir trommuleiknum en
Chloe er gríðarlega hæfileikarík miðað
við aldur. smoosh náði að halda uppi
miklu stuði á Nasa og var mjög
skemmtilegt að sjá þær kovera bloc
Party-slagarann this Modern Love.
Það virðist alltaf vera sami hausverkurinn að reyna að sjá allar sínar uppáhaldssveitir
á jafnveglegri tónlistarhátíð sem Iceland Airwaves þar sem nóg er um að vera á skömm-
um tíma. Við hjá DVsettum hins vegar saman leiðarvísi með því sem okkur fannst bera
hæst sem vonandi auðveldar ykkur valið í ár.
Föstudagur
Það er langt kvöld fram undan og eins
gott að koma sér strax í stuð. Mr. silla
er með íðilfagra rödd og syngur meðal
annars með múm en hér er hún ásamt
hinum eiturhressa Mongoose en
útkoman er lágstemmd og seiðandi
elektrótónlist með blúsívafi sem er góð
byrjun á góðu kvöldi.
Nasa Mr.Silla & Mongoose
NASA kl.20.00 Hér erum við hins vegar komin í smá bobba því við viljum líka sjá skakkam-
anage á Nasa á sama tíma og
trentemöller á Listasafninu. enda er
skakkamanage alveg hrikalega
kraftmikil sveit sem gaman er að sjá á
tónleikum.
Skakkamanage
NASA kl.21.30
breskir indírokkarar sem hljóma eins
og blanda af dimmum Joy division-
slögurum og melódískri Cure-klassík.
Hér er á ferðinni eðalindírokk sem er
gott að heyra svona rétt aðeins til að
hressa sig við eftir langa og stranga
dagskrá kvöldsins hingað til.
Computerclub
Lídó kl.01.15 Þú hefur ágætis tíma til að taka röltið
upp á Lídó eftir deerhoof-tónleikana ef
þú ætlar að sleppa of Montreal og ættir
meira að segja að ná að fá þér einn öl
áður en hinir ofursvölu rokkabillíblús-
töffarar John spencer og Matt Verta-ray
stíga á svið en þeir eiga pottþétt eftir að
skapa tryllta stemningu.
Heavy Trash
Lídó kl.00.15
enn einu sinni er erfitt að velja hvert sé
best að fara en það lítur allt út fyrir það
að valið standi á milli bandarísku
sveitanna of Montreal og Heavy trash
en sú fyrrnefnda spilar í Hafnarhúsinu á
miðnætti. of Montreal spilar indípopp
og hefur sveitin oft verið dásömuð fyrir
frábæra frammistöðu á tónleikum.
Of Montreal
ListasafnRvk.kl.24.00
danski raftónlistarsnillingurinn
trentemöller er hefur getið sér gott orð
undanfarið en nú er hann ásamt
tónlistarmönnunum Henrik Vibskov og
Mikael simpson í tónleikaferðalagi til
að fylgja eftir plötunni the Last resort
sem fékk víðast hvar einróma lof
gagnrýnenda.
Trentemöller
ListasafnRvk.kl.21.30
Það er úr miklu að velja klukkan ellefu
en eftir miklar vangaveltur er stefnan
tekin á gaukinn að sjá bandarísku
indírokksveitina deerhoof enda segja
kunnugir að sveitin sé mögnuð á
tónleikum. tónlist deerhof er erfitt að
skilgreina á einhvern einn ákveðinn
hátt svo mættu bara á gaukinn og við
lofum góðum tónleikum og einstakri
upplifun.
Deerhoof
Gaukurinn kl.23.00
Nú er kominn tími til að færa sig yfir á
gaukinn sem er mjög hentugt hvort
sem þú varst á Nasa eða Listasafninu.
Það eru engir aðrir en hinir útúrrokk-
uðu og svölu drengir í reykjavík! sem
ætla að fara úr að ofan og trylla lýðinn.
Reykjavík!
Gaukurinn kl.22.15
Laugardagur
Johnny & The Rest
Það er um að gera að starta laugar-
dagskvöldinu á nettu blúspartíi og fara
á grand rokk og sjá eina efnilegustu
blúsrokkara landsins í dag í þrusugóð-
um gír. strákarnir unnu í hljómsveita-
keppninni krúnk sem get rVk stóð
fyrir í vor og ekki að ástæðulausu.
GrandRokkkl.20.45
Ms John Soda
eftir blúsinn á grand rokk er málið að
rölta niður í Iðnó og sjá þýsku
elektrópopparana í Ms John soda.
Hljómsveitin spilar lágstemmt
elektrónískt popp við íðilfagran söng
sem nær svo sannarlega að fanga
athygli þína.
Iðnókl.21.30
Chromeo
ef þú ætlar ekki á bloc Party, þá
eiginlega bara verður þú að sjá
Chromeo. Chromeo er brjálaður
partídúett sem spilar elektró-fönk sem
fær þig til að vilja hoppa upp á borð og
byrja að dansa enda með dansvænstu
hljómsveitum nútímans.
Gaukurinnkl.24.00
Radio LXMBRG
Nú er laugardagskvöld og þess vegna
ætlum við að reyna að dansa sem allra,
allra mest og því er tilvalið að enda
kvöldið í heitu elektró-grúvi frá
svíþjóð. Hljómsveitin gaf nýlega út
sína aðra breiðskífu, trivial Matters,
sem er alveg hrikalega hress og fönkí.
Lídókl.01.15
Bloc Party
Nú eru aftur komið að erfiðu vali en
bæði bloc Party og Chromeo spila
klukkan tólf. bloc Party er ein heitasta
indí-popp-rokk hljómsveit bretlands
og hefur nýjasta plata hennar a
Weekend in the City víðast hvar fengið
gríðarlega góða dóma.
ListasafnRvk.kl.24.00
Ra Ra Riot
Hér er á ferðinni kraftmikið indírokk-
popp sem fær þig til að dilla þér og
dansa eins og brjálæðingur. ra ra riot
kemur frá bandaríkjunum og er þekkt
fyrir hressandi sviðsframkomu og
líflega tónleika.
NASAkl.23.00
Strigaskór nr. 42
Nú er kominn tími til að byrja að rokka
og þess vegna er stefnan tekin á organ
til að sjá langþráða endurkomu
þessarar hrikalega hressu rokksveitar
sem hefur fyrir löngu getið sér gott orð
innan íslensku rokksenunnar.
Organkl.22.00
Bonde do Role
Nú fara leikar að æsast því klukkan
ellefu er nóg að gerast á sama tíma og
er það undir þér komið hvort þú ferð
að sjá brasilíska þríeykið bonde de
role spila klikkað partífönk með star
Wars-effektum eða skellir þér á ra ra
riot á Nasa.
Gaukurinn kl.23.00
Leyninúmerið á airwaves í ár er
stórsveitin the Magic Numbers
frá englandi en hljómsveitin
mun ljúka hátíðinni í ár. sveitin
hóf störf árið 2002 og hefur
vakið mikla athygli víðast hvar
og má því með sanni segja að
þú ættir að skella þér á Nasa í
kvöld og binda enda á frábæra
hátíð með stæl. Það er hin
breska sveit Horsebox sem
hefur leikinn í kvöld en kl. 22.15
stígur the Magic Numbers á
svið.
NASA kl.22.15
Magic Numbers
Sunnudagur
AIRWAVES-LEIðARVíSIR
Ari Þorgeirsson
Chromeo
FM Belfast
Magic Numbers
Block Party
Bonde do Role
Skakkamanage
Mr. Silla & Mongoose
Deerhoof
Heavy Trash
Krista Hall kíkti á Airwaves
HHHH
HHH
HHHH
DV Myndi: Kristinn
DV Myndi: Kristinn
DV Myndi: Kristinn