Fréttatíminn - 25.04.2014, Page 2
LEIÐIN TIL HOLLUSTU
Skyr.is drykkirnir standast þær ströngu kröfur
sem gerðar eru til matvæla sem merktar eru
Skráargatinu. Þú getur treyst á hollustu Skyr.is.
www.skyr.is
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
Heimsmet í taubleiuskiptum
Eftir stóðu
þrjár túrb-
ínur að
verðmæti
15 milljarða
króna sem
Orkuveitan
hafði skuld-
bundið sig
til að kaupa.
O rkuveita Reykjavíkur (OR) hefur greitt þrjá milljarða króna til að losna út úr skuldbindingum vegna
kaupa á þremur túrbínum vegna kaup-
samnings sem gerður var rétt fyrir hrun.
Af þeim þremur milljörðum má draga 400
milljónir sem eru verðmæti íhluta sem OR
hefur fengið afhenta í túrbínurnar.
Snemmsumars árið 2008 gerði Orku-
veitan 25 milljarða króna samning við fyr-
irtæki í Japan um kaup á fimm túrbínum
sem ætlunin var að nota í virkjanafram-
kvæmdir. Fjórar átti að nota í virkjanir í
Hverahlíð og Bitru sem sjá áttu nýju álveri
í Helguvík fyrir rafmagni og ein til við-
bótar var keypt án þess að ákveðið hefði
verið hvar ætti að nota hana. Hver túrbína
kostar fimm milljarða króna.
Tvær túrbínur komu til landsins árið
2011 og voru notaðar í nýja stöð í Hellis-
heiðarvirkjun, Sleggjuna, því hætt hafði
verið við virkjun í Bitru og Hverahlíð.
Túrbínurnar tvær kostuðu tíu milljarða
króna. Eftir stóðu þrjár túrbínur að
verðmæti 15 milljarða króna sem Orku-
veitan hafði skuldbundið sig til að kaupa.
Á undanförnum árum hafa stjórnendur
Orkuveitunnar átt fjölmarga fundi með
fulltrúum japanska fyrirtækisins, bæði
hér á landi, í Þýskalandi og í Japan, í því
skyni að reyna að semja sig frá samningn-
um. Á síðasta ári tókst að semja um frest-
un á staðfestingu á afhendingu tveggja
túrbína til 1. júní 2016 sem þýddi að þær
kæmu til afhendingar á árinu 2019 og
skuldbindingunni var aflétt. Einnig tókst
að semja um afpöntun á þriðju túrbínunni.
Kostnaður vegna þessa nemur þremur
milljörðum króna.
Í byrjun ársins fékk Orkuveitan afhenta
íhluti í túrbínurnar þrjár að verðmæti 400
milljarða króna. Um er að ræða íhluti sem
framleiðendur hafa fengið afhenta frá
undirverktökum sínum enda hefur Orku-
veitan greitt inn á túrbínurnar samkvæmt
samningi þar um. Að teknu tilliti til verð-
mæti íhlutanna, sem Orkuveitan telur sig
geta notað sem varahluti í þær túrbínur
sem þegar eru í notkun, hefur Orkuveitna
greitt um tvo og hálfan milljarð króna til
að losna undan skuldbindingum vegna
túrbínukaupanna. Að sögn Eiríks Hjálm-
arssonar, upplýsingafulltrúa Orkuveit-
unnar, munu þessir þrír milljarðar ganga
upp í kaupverðið á túrbínunum tveimur
sem eftir eru í Japan, muni aðstæður hér
breytast með þeim hætti að þörf verði
á því að nýta þær til frekari virkjana á
næstu árum.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir
sigridur@frettatiminn.is
Orkuveitan keypti fimm túrbínur rétt fyrir hrun
Orkuveita Reykjavíkur keypti vorið 2008 fimm túrbínur sem ætlunin var að nota í virkjanafram-
kvæmdir. Ekki hafði verið ákveðið hvar átti að nota allar túrbínurnar. Tvær eru komnar til lands-
ins og voru nýttar í Hellisheiðarvirkjun. Þrjár eru enn í Japan og eru að verðmæti 15 milljarða
sem Orkuveitan hefur ítrekað reynt að semja sig frá. Á síðasta ári tókst það og hefur Orkuveitan
greitt þrjá milljarða til að losna undan samningunum.
Greiddi milljarða til að
losna undan samningum
Orkuveita Reykjavíkur hefur þurft að greiða háar fjárhæðir til þess að losna undan skuldbindingum vegna túrbínukaupa.
Þeir sem tau-
bleiu geta valdið
eru hvattir til að
taka þátt í að slá
heimsmet í fjölda tau-
bleiuskipta á sólarhring
næsta laugardag. Ísland
var eitt 15 landa sem tóku
þátt í fyrra og var þá
slegið met ársins
þar á undan og það
skilmerkilega fært
í heimsmetabók
Guinness þegar
skipt var á 8.301 barni á
heimsvísu.
Benedikta Valtýsdóttir,
einn skipuleggjenda við-
burðarins á Íslandi, fékk
fyrst áhuga á því að nota
taubleiur fyrir son sinn því
henni fannst þær svo fal-
legar en þegar hún fór að
skoða málið betur gerði
hún sér grein fyrir að þær
eru bæði umhverfisvænar
og mun ódýrara að nota
þær en bréfbleiur.
Þetta árið fær
hópurinn inni í fjöl-
skyldumiðstöðinni Lygnu
í Síðumúla 10 og í öllum
þátttökulöndum, sem í ár
eru 23, hefst viðburðurinn
klukkan 11.00 að staðar-
tíma en Lygna opnar
45 mínútum fyrr.
Tekið skal fram að
til að þátttaka í að slá
heimsmetið sé gild fyrir
Guinness þurfa börnin
sem skipt er á að vera
undir einum metra á hæð
og þeir sem skipta á þeim
þurfa að vera orðnir 18
ára.
Hugmyndina að við-
burðinum, sem á ensku
kallast The Great
Cloth Diaper Change,
fékk bandarísk móður í
tengslum við dag Jarðar-
innar og umhverfisvernd.
Að loknum bleiu-
skiptunum í Lygnu verður
happadrætti fyrir þátt-
takendur þar sem í vinnig
eru vörur frá ýmsum sem
framleiða fyrir börn. -eh
Vill lög um
rétt barna
geðsjúkra
Gunnlaug Thorla-
cius, félagsráðgjafi
á geðsviði LSH,
er nýr formaður
Geðverndarfélags
Íslands en dr. Eydís
K. Sveinbjarnardóttir geðhjúkrunarfræðingur er
hætt formennsku eftir 15 ára starf í þágu félagsins.
Gunnlaug segir að verkefni nýrrar stjórnar verði að
leggja enn meiri áherslu en fyrr á forvarnarstarf,
sérstaklega með börnum geðsjúkra foreldra. Félagið
muni einnig að beita sér í búsetumálum geðfatlaðra
sem séu í hnút; framboð á húsnæði fyrir þennan
hóp mjög takmarkað. Eins sé mikilvægt að bæta
réttarstöðu barna sem eiga foreldra sem glíma við
alvarlega geðsjúkdóma og bjóða börnum úrræði sem
draga úr áhrifum veikinda foreldranna á andlega
líðan barnanna. „Við verðum að huga að slíkri löggjöf
hér,“ segir Gunnlaug.
Lítil gæði
– hátt verð
Íslendingar eru vinalegir en
gæðin í íslenskri ferðaþjónustu
eru lítil og hér fá ferðamenn
minna fyrir peninginn en í flest-
um helstu ferðamannaborgum.
Þetta er niðurstaða könnunar
sem Renato Gruenenfelder,
framkvæmdastjóri Ferðaskrif-
stofu Guðmundar Jónassonar,
hefur gert. Þar kemur fram
að þriggja stjörnu gisting í
Reykjavík kostar svipað og
gisting á fimm stjörnu hóteli
á Manhattan í New York og
3ja stjörnuhótelið íslenska
er dýrara en 5 stjörnu hótel
í Dubaí. Heildareinkunn sem
viðskiptavinir gefa íslenskum
hótelum er líka lægri en gerist
og gengur erlendis.
Gunnlaug Thorlacius.
Guðni Ágústsson mun ekki leiða lista Framsóknarflokks-
ins í borgarstjórnarkosningunum í vor. Ljósmynd/ Hari
framsóknarflOkkurinn Guðni Gefur ekki kOst á sér í reykjavík
Ný kona á lista mun leiða flokkinn
Guðni Ágústsson, fyrrverandi formaður
Framsóknarflokksins, þingmaður og ráð-
herra, tilkynnti í gær að hann gæfi ekki kost
á sér til þess að leiða lista flokksins í Reykja-
vík í komandi borgarstjórnarkosningum.
Nánast hafði verið gengið út frá því sem
vísu að Guðni tæki slaginn en hart var lagt
að honum að gera það eftir að Óskar Bergs-
son, efsti maður á lista Framsóknarflokks-
ins í Reykjavík, sagði sig frá forystunni.
Í tilkynningu í gær sagði Guðni: „Að vel
hugsuðu máli þá hef ég tekið ákvörðun í
samráði við fjölskyldu mína að gefa ekki
kost á mér til að leiða lista framsóknar-
manna í Reykjavík. Ég óska félögum mínum
góðs gengis og trúi því og treysti að flokkur-
inn nái saman um sterka frambjóðendur og
framboðslista í Reykjavík á næstu dögum.
Málefnastaða Framsóknarflokksins er sterk
bæði á landsvísu og í borginni og standa
verður vörð um flugvöllinn í Vatnsmýrinni
því hann gegnir lykilhlutverki í flugi og
öryggismálum landsins.
Ég þakka það traust sem mér hefur verið
sýnt úr ólíkum áttum í samfélaginu og
stuðningurinn hefur hlýjað mér um hjarta-
ræturnar en jafnframt veit ég að allir virða
ákvörðun mína.“
Aukakjördæmisþingi kjördæmissam-
bands Framsóknarflokksins, sem halda átti
í gær, var frestað til næstkomandi þriðju-
dags. Þá verður nýr listi og nýr oddviti
flokksins í Reykjavík kynntur. Fram kom
í gær hjá Þóri Ingþórssyni, formanni kjör-
dæmissambands Framsóknarflokksins, að
listinn væri tilbúinn. Stokkað verður upp
á honum, að því er Ríkisútvarpið greindi
frá en þar staðfesti Þórir að ný kona á lista
muni skipa oddvitasætið. Ljóst er, sagði þar,
að Guðrún Bryndís Karlsdóttir, sem vermir
annað sæti núverandi lista, mun ekki leiða
flokkinn í borginni.
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
2 fréttir Helgin 25.-27. apríl 2014