Fréttatíminn - 25.04.2014, Síða 8
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjórar: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is og Sigríður Dögg
Auðuns dóttir sigridur@frettatiminn.is. Fréttastjóri: Höskuldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is. Framkvæmda- og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson valdimar@
frettatiminn.is. Útgáfustjóri: Teitur Jónasson teitur@frettatiminn.is . Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti.
S Sumardagurinn fyrsti var í gær. Íslendingar fögnuðu sumarkomunni að vanda á frídegi. Það er prýðilegur siður eftir langan vetur á norðlægum slóðum. Þessi frídagur rifjar hins
vegar enn og aftur upp umræðu sem
staðið hefur árum saman, með nokkr
um hléum, um svokölluð fimmtu
dagsfrí að vori, frí sem brjóta upp
vinnuvikuna. Vikan sem
nú er að líða er stutt og
slitrótt. Hún hófst á með
mánudagsfríi annars
páskadags og fimmtu
dagsfríið á sumardaginn
fyrsta fylgdi í kjölfarið.
Í næstu viku hittist svo
á að verkalýðsdaginn, 1.
maí, ber upp á fimmtu
dag – og enn eitt fimmtu
dagsfríið er svo síðar í
þeim mánuði, 29. maí, á
uppstigningardegi.
Sjálfsagt er að fagna sumarkomu
með fríi – og hið sama á við um upp
stigningardag. Fráleitt er síðan að
amast við fríi á verkalýðsdeginum
– en frídagar í miðri vinnuviku eru
óhagkvæmir fyrir flest fyrirtæki – og
nýtast almenningi heldur ekki sem
skyldi. Því mæla öll rök með því að
færa þessa frídaga að helgarfrídögum.
Með slíku verður meiri samfella í
vinnu – og löngum helgum fjölgar.
Á þetta var minnt í helgarpistli
í Fréttatímanum fyrir ári – á tíma
fimmtudagsfríanna – þar sem sagði
meðal annars: „Hvaða máli skiptir það
þótt frí vegna sumarkomunnar sé flutt
af fimmtudegi yfir á föstudag? Ná
kvæmlega engu.“ Í sama pistli var rætt
um fimmtudagsfrí uppstigningardags,
en sá dagur, 40 dögum eftir páska, er
einn af helgidögum þjóðkirkjunnar og
meðal 15 lögbundinna frídaga alman
aksársins. Minnast menn þá himnafar
ar Krists en engu ætti að breyta hvort
frídagur af því tilefni er á fimmtudegi
eða föstudegi.
Þar var líka á það bent að Samtök
atvinnulífsins og launþegahreyfingin
hefðu um árabil rætt um að flytja
þessa frídaga að helgi og við lá að sam
komulag næðist þar í kjarasamningum
árið 1988. Þar var gert ráð fyrir að
fimmtudagsfríin, vegna sumardagsins
fyrsta og uppstigningardags, færðust
yfir á næsta mánudag.
Á síðu Samtaka atvinnulífsins í maí í
fyrra sagði, að loknum fimmtudagsfrí
um sumardagsins fyrsta og upps
tigningardags: „Samtök atvinnulífsins
hafa lengi talað fyrir tilfærslu þessara
daga en með því mætti auka hagræði
í rekstri fyrirtækja og stofnana og
bæta framleiðni og afköst. Margoft
hefur komið fram að slíkar tillögur
njóta mikils stuðnings almennings
og atvinnulífsins. Til dæmis leiddi
könnun SA meðal félagsmanna fyrir
nokkrum árum í ljós að 80% forsvars
manna fyrirtækja töldu að tilfærsla
frídaganna yfir á heppilegri tíma stuðl
aði að hagræði í rekstri og því liggur
fyrir afgerandi vilji atvinnulífsins til
breytingar og hagræðingar á þessu
sviði. Þá má nefna að fyrir Alþingi
liggur þingsályktunartillaga þess
efnis að þessir frídagar verði færðir að
nærliggjandi helgum. Önnur útfærsla
á tilfærslu þessara frídaga gæti verið
lenging orlofs gegn niðurfellingu
fimmtudagsfrídaganna.“
Þingsályktunartillagan sem nefnd
var í fyrra á síðu SA er tillaga sem
Róbert Marshall alþingismaður lagði
fram á löggjafarþinginu 20122013
um færslu frídaga að helgum þar sem
sagði í 1. kafla um breytingu á lögum
um 40 stunda vinnuviku: „Við 6. gr.
laganna bætist ný málsgrein, svohljóð
andi: Veita skal frídaga vegna upp
stigningardags og sumardagsins fyrsta
næsta föstudag eftir þann dag sem þá
ber upp á, nema um annan hátíðisdag
sé að ræða og skal þá veita frí miðviku
daginn á undan. Beri jóladag, annan í
jólum, nýársdag og 17. júní upp á helgi
skal veita frídag næsta virkan dag á eft
ir. Þá skal halda 1. maí hátíðlegan sem
frídag verkamanna fyrsta mánudag í
maí, sbr. lög um almennan frídag vegna
frídags verkamanna 1. maí.“
Þetta náði ekki fram að ganga en
engin ástæða er til þess að láta málið
liggja í dvala. Fimmtudagsfríin nú
minna okkur enn og aftur á óhag
kvæmina sem þeim fylgir. Það er
flestum í hag að flytja þessa frídaga til
– en til þess þarf lagabreytingu.
Fimmtudagsfrí og fleiri frí í miðri vinnuviku
Frídagar flytjist að helgum
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
Fæst án lyfseðils.
Lesið leiðbeiningar í fylgiseðli vandlega fyrir notkun.
20% afsláttur
Fimmtudagsfríin nú minna okkur enn og aftur á óhag-
kvæmina sem þeim fylgir. Það er flestum í hag að flytja
þessa frídaga til – en til þess þarf lagabreytingu.
fermingar
veisluna
Allt fyrir2014
Nóatún býður upp á
úrval af hlaðborðum fyrir
fermingarveisluna!
sjá www.noatun.is
H a m r a b o r g – N ó a t ú n 1 7 – H r i n g b r a u t – A u s t u r v e r – G r a f a r h o l t
Nærandi nammigott
Engi
viðbæur
sykur!
Fararstjóri: Þóra Valsteinsdóttir
Sumar 15 16. - 23. ágúst
Vilníus & Riga
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790
bokun@baendaferdir.is
Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Spennandi vikuferð til Eystrasaltsríkjanna Litháen og Lettlands.
Upplifum Vilníus í Litháen og Riga í Lettlandi, en báðar
borgirnar eiga það sameiginlegt að elsti hluti þeirra er kominn
á skrá UNESCO. Skemmtileg ferð með blöndu af menningu,
söfnum og glæsilegum byggingum.
Verð: 173.700 kr. á mann í tvíbýli.
Mjög mikið innifalið!
Sp
ör
e
hf
.
8 viðhorf Helgin 25.-27. apríl 2014