Fréttatíminn - 25.04.2014, Qupperneq 24
VAKANDI!VERTU
blattafram.is VERNDARI BARNA Í 10 ÁR
Góð samskipti milli þín og barna
þinna er besta leiðin til að vernda
þau gegn kynferðislegu ofbeldi!
Í slendingar verða að velja um það hvort hér á að stunda hrefnuveiðar, sem skila engum arði, eða hvalaskoðun, sem er
vinsælasta afþreying ferðamanna hér við
land, veitir hundruðum vinnu og þjónustar
um 130.000 ferðamenn á ári.
Þetta tvennt fer ekki saman, segja þeir
tveir menn sem eiga meiri heiður að upp-
byggingu greinarinnar hér við land en flestir
aðrir.
100 ára saga
hvalafriðunar
Hvalafriðun Íslendinga á sér
um 100 ára sögu á Íslandi.
Árið 1913 bannaði íslenska
heimastjórnin hvalveiðar
hér við land og notaði til
þess nýfenginn og takmark-
aðan sjálfsákvörðunarrétt
þjóðarinnar. Norðmenn
höfðu veitt hvali hér við land
30 ár þar á undan og voru
nánast búnir að útrýma
stórhveli af miðunum við
Austfirði og Vestfirði þegar
heimastjórnin greip í taum-
ana.
Veiðibanninu var aflétt
árið 1928 og enn voru það
Norðmenn sem komu og
veiddu en þó í minna mæli
en áður. Hlé varð á veiðum
Norðmanna í seinni heims-
styrjöldinni en á sjötta
áratugnum gerði útfærsla
landhelginnar í 12 mílur svo
endanlega út um þær.
Íslendingar sjálfir hafa aðeins stundað
hvalveiðar í atvinnuskyni í um 40 ár. Þegar
best lét skiluðu hvalaafurðir innan við 2% af
útflutningstekjum þjóðarinnar. Mestallan
þennan tíma hafa miklar deilur staðið um
veiðarnar, rétt eins og um veiðar Norðmanna
á heimastjórnarárunum. Þetta voru stór-
Skoða eða skjóta?
Hvalaskoðun og hrefnuveiðar eru andstæður en hvalaskoðunin nær ekki eyrum stjórnvalda, segja
frumkvöðlar hvalaskoðunar á landinu. 130.000 ferðamenn fara í hvalaskoðun hér við land ár hvert.
Hrefnuveiðar styggja dýrin, hrekja þau frá skoðunarbátum og draga úr ánægju ferðamanna.
hvelaveiðarnar en hrefnuveiðar
eiga sér líka litla sögu hér við land,
eins og nánar verður vikið að hér
á eftir.
Hvalaskoðun helsta afþrey-
ingargrein ferðaþjónustunnar
Síðustu 20 ár hefur byggst upp
mikil atvinna tengd hvalaskoðun
hér við land. Ferðaþjónusta er nú
stærsta atvinnugrein landsmanna
og skilaði meiri gjaldeyristekjum
í þjóðarbúið á síðasta ári en allur
sjávarútvegurinn. Hvalaskoðun er
einn burðarása ferðaþjónustunnar
og stærsta greinin á sviði afþrey-
ingar fyrir ferðamenn hér við land.
Hörður Sigurbjarnarson á
Húsavík og Guðmundur Gestsson í
Reykjavík eru tveir af helstu frum-
kvöðlum hvalaskoðunar á landinu..
Hörður ásamt fjölskylu sinni og
Árna bróður sínum hóf útgerð á
gömlum eikarbát á Húsavík árið
1995 og reka fjölskyldurnar nú
Norðursiglingu sem er eitt stærsta
fyrirtæki landsins á þessu sviði.
Um svipað leyti fór Guðmundur
að gera út bát fyrir 40 farþega til
hvalaskoðunar á Faxaflóa og varð
fyrstur til að hefja starfsemi af því
tagi við Ægisgarð í Reykjavíkur-
höfn, þar sem nú er miðstöð hvala-
skoðunar og annarrar þjónustu við
ferðamenn á einu helsta vaxtar-
svæðinu í miðborg Reykjavíkur.
Alltaf útundan hjá
stjórnvöldum
Þeir félagar segja að starfsemi
þeirra hafi aldrei mætt neinum
skilningi af hálfu stjórnvalda hér
við land. Í fyrsta lagi hafi þau
aldrei fengist til að setja reglur um
framkvæmd og skipulag hvala-
skoðunar þar sem tekið er á því
hvernig báta megi nota í þessa
starfsemi og hvaða reglur hvala-
skoðunarmenn þurfi að virða í
umgengni sinni við dýrin.
Í annan stað segir sagan það að
hagsmunir hvalveiðimanna séu
teknir fram yfir þegar þeir rekast á
við hagsmuni hvalaskoðunarinnar,
jafnvel nú þegar hvalaskoðunin er
orðinn stóratvinnuvegur en hval-
veiðar jaðarsport fáeinna manna.
Besta og nýjasta dæmið um
skeytingarleysi stjórnvalda er
frá síðasta ári, segja þeir félagar.
Hvalaskoðunarmenn höfðu lengi
barist fyrir sérstöku griðasvæði
fyrir hvali á Faxaflóa og Skjálf-
anda. Rétt fyrir alþingiskosning-
arnar í fyrravor kom Steingrímur
J. Sigfússon, þáverandi sjávarút-
vegsráðherra, til móts við tillögu
nefndar sem átti að stuðla að sátt
milli hvalveiðimanna og hvalaskoð-
unarmanna og lýsti svæði frá Garð-
skaga að Skóganesi á Snæfellsnesi
sérstakt griðasvæði hvala á Faxa-
flóa en veiðar höfðu áður verið
bannaðar innan línu sem dregin er
milli Garðskaga og Akraness.
Þessi ákvörðun um griðasvæði
mætti strax mikilli andstöðu
hrefnuveiðimanna. „Öll okkar
plön fyrir sumarið og allt sem við
höfum lagt með í undirbúningi er
nú fyrir bí,“ sagði Gunnar Berg-
mann Jónsson, talsmaður hrefnu-
veiðimanna við fjölmiðla. Í raun
væri búið að banna hrefnuveiðar á
Faxaflóa.
Gunnar Bergmann er sá aðili
sem hefur staðið á bak við hrefnu-
veiðar hér við land síðustu ár á
nokkrum bátum sem gerðir hafa
verið út af nokkrum fyrirtækjum.
Um 15% af hverju dýri er nýtt og
kjötið af þeim er selt til nokkurra
veitingastaða og fáeinna mat-
vöruverslana sem bjóða það sem
grillkjöt yfir sumarið. Guðmundur
Gestsson segist hafa upplýsingar
um að arðsemi þessara veiða sé
svo lítil að aukinn olíukostnaður
eftir að griðasvæðið var stækkað
og sækja þurfti lengra en rétt út
fyrir Akranes hafi kippt fótum
undan veiðunum.
Eftir að ákvörðun Steingríms J.
um griðasvæðið lá fyrir urðu hvala-
skoðunarmenn varir við það að
hrefnuveiðimenn beittu stjórnvöld
miklum þrýstingi. Eftir úrslit þing-
kosninganna var ljóst að slagurinn
var tapaður fyrir hvalaskoðunina
og griðasvæðið á Faxaflóa. Guð-
mundur telur að einkum hafi Jón
Gunnarsson, formaður atvinnu-
veganefndar Alþingis, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins og faðir Gunn-
ars Bergmanns Jónssonar, beitt
sér í málinu. Að minnsta kosti var
það ein fyrsta ákvörðun Sigurðar
Inga Jóhannssonar, eftir að hann
settist í stól sjávarútvegsráðherra
og umhverfisráðherra, að fella úr
gildi ákvörðunina um að stækka
griðasvæði hvala á Faxaflóa.
„Það er mat ráðherra að með
þessari ákvörðun frá því í maí síð-
astliðnum hafi hvorki verið horft
til vísindalegra sjónarmiða né
hagsmuna hrefnuveiða á svæðinu,“
segir í frétt um þá ákvörðun.
Ráðherrann ákvað því að taka
stækkun griðasvæðisins til baka
og leyfa veiðar utan línunnar milli
Akraness og Garðskaga enda eigi
sú takmörkun á veiðunum sér stoð
í tillögum sem Hafrannsóknar-
stofnun hafði gert árið 2009.
Búbót og tómstundagaman
Aftur að sögu hrefnuveiða hér við
land. Frá fyrrihluta síðustu aldar
stunduðu fáeinir menn þær sem
búbót á eigin bátum á svæðinu
frá Ísafirði og austur á firði. Frá
1977-1985 var blómaskeið þessarar
starfsemi. Þá hafði verið fjárfest í
aðstöðu fyrir hvalskurð á Brjáns-
læk og eitthvað af kjöti var flutt til
erlendra kaupenda. Það stóð hins
vegar stutt því 1985 voru hvalveið-
ar hér við land bannaðar og lágu
þær niðri til ársins 2003 þegar
svokallaðar vísindaveiðar á hrefnu
hófust á vegum Hafrannsóknar-
stofnunar.
Yfirlýst markmið vísindaveið-
anna var að afla upplýsinga um
hlut hrefnu vistkerfi hafsins við
Ísland. Fljótlega kom hins vegar í
ljós, segja Guðmundur og Hörður,
að vísindaveiðarnar stóðu ekki
undir nafni. Nánast eingöngu var
veidd hrefna á slóðum hvalaskoð-
unarmanna Faxaflóa og í Skjálf-
anda, en ekki um allt land eins og
til hafði staðið.
Veiðar bannaðar vegna hags-
muna fjármálafyrirtækja
Alls voru 200 hrefnur skotnar í
þágu vísindanna á árunum 2003 til
2007. Hrefnuveiðar í atvinnuskyni
hófust á ný 2006 þegar Einar K.
Guðfinnsson, þáverandi sjávarút-
vegsráðherra, gaf út kvóta til veiða
á 9 langreyðum og 30 hrefnum en
hrefnuveiðimenn skutu 46 dýr það
ár. Engir kvótar voru gefnir út árin
2007 og 2008 og sagði ráðherrann
að það væri ekki þorandi vegna
viðskiptahagsmuna íslenskra
þjónustustofnana og fjármálafyrir-
tækja.
Almenningur vissi ekki á þeim
tíma að stjórnvöld voru að reyna að
afla sér erlendrar fyrirgreiðslu til
þess að koma í veg fyrir hrun fjár-
málakerfisins. Árið 2009 var hins
vegar allt fjármálakerfið hrunið
til grunna og kannski ekki miklu
að tapa lengur varðandi það álit
sem þjóðin naut á erlendum mörk-
uðum.
Að minnsta kosti lét Einar K.
Guðfinnsson, sá sami og hafði
bannað veiðar vegna annarra við-
skiptahagsmuna árin 2007 og
2008, það verða eitt sitt síðasta
verk í embætti sjávarútvegsráð-
herra, þann 27. janúar 2009, að
leyfa hvalveiðar á ný og gefa út
reglugerð um veiðiheimildir fyrir
hrefnu og langreyði til næstu fimm
ára.
Hrefnan er undirstaða hvala-
skoðunar
Hrefnan er sá stofn sem er undir-
staða hvalaskoðunar. Vegna henn-
ar eru góðar líkur á að ferðamenn
sem fara í hvalaskoðun sjái hval.
Stundum koma höfrungar eða
stærri hvalir, en það er bónus.
Hrefnan tryggir stöðugleikann.
Hörður Sigurbjarnarson
var frumkvöðull í hvala-
skoðun fyrir 20 árum. Í dag
er greinin stærsta afþrey-
ingagrein ferðaþjónust-
unnar og ferðaþjónustan er
orðin stærri atvinnugrein en
sjávarútvegurinn.
Um 130.000 ferðamenn fara árlega í hvalaskoðunarferðir; ýmist á Faxaflóa eða
norður á Skjálfandaflóa. Ferðaþjónusta er orðin stærsta atvinnugrein í landinu og
aflar nú meiri gjaldeyristekna en sjávarútvegur.
24 fréttaskýring Helgin 25.-27. apríl 2014