Fréttatíminn - 25.04.2014, Page 25
Hollir
ávaxta- og grænmetisdrykkir
með safapressunni frá SOLIS
SOLIS
SAFAPRESSAN
VINSÆLA
AEG TÖFRASPROTI
MEÐ AUKAHLUTUM
Dásamlegt verkfæri
í öll alvöru eldhús
EÐAL POTTAR OG PÖNNUR
ACTIFRY
Tryggir holla og næringaríka
eldamennsku
Nýtt snilldartæki í eldhúsið
Fallegur borðbúnaður
Hnífaparasett úr burstuðu stáli
FÆST Í ÁTTA LITUM
Ankarsrum® Original
matvinnsluvélin - er lífstíðareign
TÖKUM VEL Á MÓTI
VÆNTANLEGUM
BRÚÐHJÓNUM
OG STOFNUM
BRÚÐARGJAFALISTA
Í ÞEIRRA NAFNI
Frábært
úrval AEG
heimilistækja
Jamie Oliver ÍTALSKT ESPRESSÓ
Beint í bollann og ilmandi ferskt
TÆR
SNILLD
Hágæða
stálhnífar
í eldhúsið
– úrval af
úrvalshnífum
Gjafakort frá Ormsson
er mjög góð gjöf! LÁGMÚLA 8 · REYKJAVÍK · SÍMI 530 2800 · www.ormsson.isV ER S L A N I R O G U M B O Ð S M E N N U M L A N D A L LT
Ferskt á hverjum degi
565 6000 / somi.is
Salatið okkar
er eitthvað
ofan á brauð.
Áratuga reynsla af samlokugerð skilar sér til þín
í ferskara og ljúffengara salati. Þú getur treyst
á ferskt og vel útilátið gæðahráefni sem breytir
venjulegri brauðsneið í veislu.
Veiðar á langreyði, eins og þær
sem Kristján Loftsson í Hval
stundar, hafa ekki bein áhrif á
hvalaskoðun. Þær hafa óbein áhrif
á orðspor Íslands erlendis, draga
úr eftirspurn eftir fiski og geta
haft möguleika á markaðssetn-
ingu landsins í ferðaþjónustu eins
og á öðrum sviðum. Þær fara hins
vegar fram á úthafinu, fjarri hvala-
skoðunarslóðunum á Faxaflóa og í
Skjálfanda.
Hrefnuveiðarnar eru hins vegar
mikil ógnun við hvalaskoðun hér
við land. Á sama tíma og ferða-
mönnum fjölgar ár frá ári eru
hrefnuveiðarnar að draga úr gæð-
um vinsælustu afþreyingarinnar
sem ferðamönnum stendur til
boða hér á landi. Hörður segir að
neikvæð áhrif af veiðum undanfar-
inna ára séu strax komin fram og
gætu orðið alvarleg fyrir atvinnu-
greinina innan fárra ára.
Þótt ráðherra vísi til þess að
vísindalegar sannanir fyrir þessari
staðhæfingu skorti eru hvala-
skoðunarmenn ekki í vafa um að
þær hrefnur sem voru kallaðar
„skoðarar“ séu ekki lengur til.
Þetta voru forvitnu, „úthverfu“
dýrin sem syntu á móti hvalaskoð-
unarbátunum og virtu fyrir sér bát
og ferðamenn og gerðu eftirminni-
lega ferð ógleymanlega. Þegar
farið var að stunda hrefnuveiðar
á skoðunarslóðum komu „skoðar-
arnir“ til að skoða bátana og fólkið.
Þess vegna voru verðmætustu
hrefnurnar fyrir hvalaskoðunina
skotnar fyrst.
Hin dýrin urðu ennþá styggari
en áður eftir að veiðarnar hófust.
Þær skynja hættuna, færa sig
utar en áður og hafa meiri vara
á sér þegar bátar nálgast. Þess
vegna verða færri skoðunarferðir
ógleymanlegar fyrir ferðamenn-
ina en áður. Það spyrst út og hefur
áhrif á orðsporið á nokkrum árum.
Það er bót í máli á Skjálfanda-
flóa að þar hefur stórhveli fjölgað
síðustu ár, bæði hnúfubak og
steypireyði en flóinn er nú kominn
í röð þriggja bestu skoðunarsvæða
fyrir steypireyði í heiminum. Það
er hins vegar happdrættisvinn-
ingur sem kemur á besta tíma
fyrir hvalaskoðunina á Húsavík,
segir Hörður, og getur horfið eins
skyndilega og hann birtist.
Hrefnan er og verður grund-
völlur þess að hvalaskoðun verði
lífvænleg atvinnugrein í landinu
til lengri tíma, segja frumkvöðl-
arnir tveir. Hundruð manna hafa
atvinnu af hvalaskoðun og hagn-
aður þjóðarbúsins er óumdeildur.
Hagnaðurinn af hrefnuveiðunum
virðist hins vegar lítill, a.m.k. þarf
stöðugt að skipta um kennitölur á
þeim fyrirtækjum sem stunda þá
starfsemi.
Pétur Gunnarsson
petur@frettatiminn.is