Fréttatíminn - 25.04.2014, Side 35
gænn lífsstíll 35Helgin 25.-27. apríl 2014
Efnamóttakan hf. býður fyrirtækjum og stofnunum þjónustu sem tryggir öryggi
og hámarksendurvinnslu ýmissa efnaflokka er falla til á skrifstofum.
Trúnaðarskjöl
Trúnaðarskjölum er safnað í sérstök
læst ílát. Gögnin eru síðan tætt og fyllsta
trúnaðar og öryggis er gætt.
Rafhlöður og lítil raftæki
Útvegum hentug ílát fyrir rafhlöður, sem
ekki mega blandast öðrum úrgangi.
Í sömu ílát má setja farsíma og önnur lítil
raftæki.
Stór raftæki
Sækjum stór raftæki og tryggjum að þau
komist til öruggrar endurvinnslu.
Trúnaðargögnum á tölvum er eytt.
Prenthylki
Notuðum heilum prenthylkjum er hentugt
og hagkvæmt að safna í sérstök ílát.
Með því móti er endurnýting þeirra tryggð.
Umhverfislausnir
fyrir skrifstofur
Sími 559 2200 • soludeild@efnamottakan.is • www.efnamottakan.is
VIÐ SÆKJUM!VIÐ SÆKJUM!
m
ag
gi
os
ka
rs
.c
om
/1
1.
00
6
H úsfélag og húseigendur í fjöleignar-húsum bera ábyrgð á sameiginleg-um kostnaði og þar með kostnaði sem
hlýst af rangt flokkuðum úrgangi, enda heyrir
sorpgeymsla almennt undir sameign. Ef panta
þarf aukalosun á sorptunnum eftir að tunna
er ekki tæmd vegna rangrar flokkunar, svo
sem að pappír er settur í gráa tunnu fyrir al-
mennt sorp, fellur sá kostnaður á húsfélagið.
Á vefnum „Pappír er ekki rusl“ kemur fram að
sannist að einn eigandi sé að valda húsfélag-
inu kostnaði með því að flokka ekki úrgang-
inn getur húsfélagið endurkrafið hann um
kostnaðinn, samkvæmt almennum reglum
kröfuréttar.
Sífellt fleiri sveitarfélög gera þá kröfu að
íbúar flokki sorp og eru tunnur ekki tæmdar
nema sorp sé rétt flokkað. Í Reykjavík kostar
aukalosun 3.480 krónur fyrir eina tunnu og
480 krónur fyrir hverja tunnu til viðbótar. Auk
þessa kostnaðar getur
það haft óþægindi í för
með sér ef ekki allir íbú-
ar fjölbýlishúsa leggjast
á eitt um flokkun sorps.
Samkvæmt lögum um
fjöleignarhús geta hús-
félög einnig sett hús-
reglur sem ná til flokk-
unar á sorpi. Þar sem
slíkar reglur eru við
lýði og sannast að einn
eigandi í fjölbýlinu fari
ítrekað ekki eftir reglunum getur húsfélagið
lagt bann við búsetu eða dvöl hans í húsinu.
Þó þarf að veita viðkomandi tækifæri á bót
og betrun, en hægt er að fá álit kærunefndar
húsamála um ágreining sameigenda á túlkun
eða fara með málið fyrir dómstóla.
Reykjavíkurborg setti upp vefinn „Pappír
er ekki rusl“ í tengslum við það að frá októ-
ber síðastliðnum var óheimilt að henda pappír
í gráar tunnur. Í fjöleignarhúsum gildir sú
regla að meirihluti eigenda getur pantað bláa
tunnu þar sem fjölgun eða fækkun á tunnum
hefur áhrif á sorphirðugjöld íbúa hússins. Í
smærra fjölbýli þar sem ekki er starfandi hús-
stjórn dugar þó tölvupóstur íbúa um að þeir
séu sammála um að fá sér bláa tunnu.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Sorpflokkun MeiriHluti íbúa fjölbýliSHúSa getur ákveðið að panta bláa tunnu
Sameiginleg
ábyrgð á sorp-
flokkun í fjölbýli
Í fjöleignarhúsum fellur kostnaður af rangt flokkuðu sorpi á
húsfélagið og þannig eru allir íbúar ábyrgir fyrir því að rétt
sé flokkað. Húsfélög geta sett sér reglur um sorpflokkun og
ef sannast að einn eigandi brýtur ítrekað reglurnar getur
húsfélag lagt bann við búsetu hans í húsinu.
Eigendur í fjölbýli bera sameiginlega ábyrgð á því að flokka sorp og ef kostnaður hlýst af rangri flokkun leggst hann jafnt á alla
eigendur. Ljósmynd/Hari