Fréttatíminn - 25.04.2014, Qupperneq 47
MÚSIKEGGIÐ
tryggir að þú fáir eggið þitt
soðið eins og þú vilt hafa það.
Þú setur það með eggjunum
í pottinn við suðu, og þegar
eggin eru linsoðin heyrist:
„Killing me softly“
og harðsoðin:
„Final Countdown“
Skólavörðustíg 12 • sími 578 6090 www.minja.is • facebook: minja
K
raftaverk
Bráðnauðsynlegt fyrir tónlistarunnendur og þá sem vilja hafa eggin sín rétt soðin :-)
Músikeggin (EggStream) er samstarfsverkefni þýska
hönnunarteymisins „Brain Stream“ Verð aðeins 5.500 kr.
ókeypis aðgangur
GARÐABÆJAR 24.-26. apríl 2014
www.gardabaer.is
Bjössi spilar Bítlana
agnar spilar ellington
kvartett Hauks
gröndal
íslandstríó
ricHard
andersson
sveiflukvartett
reynis
sigurðssonar
kvennakór garðaBæjar og Band Bræðranna
Sjá dagskrá á www.gardabaer.is
24. apr kl. 20:30
Kirkjuhvoli, Vídalínskirkju
25. apr kl. 20:30
Kirkjuhvoli
26. apr kl. 17:00
Haukshúsi, Álftanesi
26. apr kl. 14:00
Jónshús, Strikið 6
26. apr kl. 20:30, Kirkjuhvoli, Vídalínskirkju
Milljónir komu
í kassann og
ferðaskuldirnar
borguðust upp á
skömmum tíma.
Rófuuppskeran haustið 1980 skilaði Karlakór Reykjavíkur milljónum króna. Eldri
kórfélagar, sem margir sungu með kórnum þá, halda tónleika í Seltjarnarneskirkju
á sunnudaginn.
E ldri félagar í Karlakór Reykjavíkur halda sína ár-legu vortónleika og að þessu
sinni í Seltjarnarneskirkju klukkan
16 næstkomandi sunnudag, 27.
apríl. Sérstakur gestakór verður
Breiðfirðingakórinn og fer vel á því,
þar sem í ár verða liðin 100 ár frá
fæðingu Breiðfirðingsins og Dala-
mannsins, Jóns Jónssonar frá Ljár-
skógum. Hann lést um aldur fram
en var landsþekktur fyrir að syngja
með MA-kvartettinum og fyrir ljóð
sín. Hann söng í nokkur ár með
Karlakór Reykjavíkur. Efnisskrá
tónleikana á sunnudaginn verður
fjölbreytt og vorleg. Ljóðlínur Jóns
frá Ljárskógum eiga því vel við –
Kom vornótt og syng.
Margir þeirra sem nú syngja í
með eldri kórfélögum Karlakórs
Reykjavíkur fóru í frægðarför
fyrir 35 árum en haustið 1979 fór
Karlakór Reykjavíkur í söngför til
Kína, skömmu eftir að Maó for-
maður var allur. Kórinn mun hafa
verið fyrsti kór frá Vesturlöndum
sem heimsótti Kína enda landið
lengstum lokað.
„Þótt kórinn væri í Kína í boði
stjórnvalda, kostaði ferðin sitt og
því þurfti að hafa allar klær úti til
að afla fjár,“ segir Reynir Ingibjarts-
son, einn kórfélaga sem þá söng
með Karlakór Reykjavíkur en syng-
ur nú með eldri félögum kórsins.
Hann minnist sérstakrar fjáröflun-
ar kórfélaganna eftir Kínaferðina.
„Á vordögum 1980 fæddist sú
brjálæðislega hugmynd að finna
land til að sá í rófufræi og bíða svo
uppskeru að hausti. Landið fannst
uppi í Mosfellsdal neðan Gljúfra-
steins og þegar leið að hausti, brá
mönnum heldur betur í brún. Við
blasti rófukál næstum eins langt
og augað eygði. Nú varð ekki aftur
snúið og á næstu vikum mættu
kórmenn með mökum og börnum
og tóku upp tugi tonna sem rötuðu
greiðlega til neytenda, þar sem
nokkrir kórmenn stjórnuðu stórum
matvöruverslunum.
Milljónir komu í kassann og
ferðaskuldirnar borguðust upp á
skömmum tíma. Þetta ævintýri
úr Mosfellsdalnum, að ógleymdri
Kínaferðinni, er mönnum ennþá
ferskt í minni.“
Breiðfirðingakórinn var stofn-
aður 1939 en löngum hafa verið
góð tengsl milli hans og Karlakórs
Reykjavíkur. Kórnum stjórnar Juli-
an Hewlett. Þrettán hjón syngja í
kórnum – um helmingur kórfélaga.
Stjórnandi kórs eldri félaga er
Friðrik S. Kristinsson. Hann stjórn-
ar einnig Drengjakór Reykjavíkur
auk Karlakórs Reykjavíkur. „Það
má telja einstakt að einn og sami
maður stjórni þremur kynslóðum
karlkyns söngvara,“ segir Reynir.
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
Rófuuppskera
borgaði Kínaferðina
Margir sem nú syngja með eldri félögum Karlakórs Reykjavíkur
minnast ferðar kórsins til Kína og sérstakrar fjáröflunarleiðar
fyrir nær 35 árum.
TónlEikar Eldri félagar syngja
Helgin 25.-27. apríl 2014