Fréttatíminn - 30.05.2014, Síða 66
66 menning Helgin 30. maí-1. júní 2014
Þ etta byrjaði árið 2010 þegar ég fór að velta því fyrir mér að framtíðin væri í fortíð-
inni,“ segir Hulda Rós Guðnadóttir
sem hefur búið og starfað í Berlín
undanfarin ár. „Ég var búin að
vera í stórborginni og spá í hrunið
í síðasta verki en langaði allt í einu
að skoða ræturnar. Svo ég ákvað að
elta bara innsæið og fara á æsku-
slóðir ömmu, vestur á Bíldudal. Þar
eyddi ég nokkrum tíma, kannaði
staðinn, tók myndir, sneri öllu við
og gerði vidjóverk þar sem ég setti
mig í stellingar frystihúsaverka-
mannsins. Í verkinu er ég frosin
við færibandið og í stað fersks
fisks koma tilbúnar neysluvörur
niður færibandið, en á Bíldudal
er ekki hægt að kaupa ferskan
fisk og í búðinni eru mestmegnis
niðursuðuvörur,“ segir Hulda en
afrakstur þessarar vinnu er upphaf-
ið að Keep Frozen seríunni, „Keep
Frozen part zero“.
Rannsókn á menningu hafsins
„Keep Frozen“ er verk í vinnslu,
þar sem verkið sjálft er ekki endi-
lega markmið í sjálfu sér, heldur
frekar sjálft sköpunarferlið. „Þetta
er innsetning í mörgum pörtum og
hver einasta innsetning hefur áhrif
á þá næstu. Ég lít á mína vinnu sem
listrannsókn. Ég geri rannsókn á
ákveðnu viðfangsefni með tækjum
myndlistarinnar og afrakstur
rannsóknarinnar set ég svo fram
í formi myndlistar,“ segir Hulda
sem ákvað að halda áfram að skoða
tengsl mannsins við hafið. „Mig
langaði að setja verkið í víðara sam-
hengi og einblína ekki bara á mig
og mínar æskuminningar.“ Hulda
fór til Essaouira í Marokkó þar sem
rannsóknin fór að taka á sig fleiri
lög. „Essaouira er forn portúgölsk
verslunarhöfn en þar var ég í tvo
mánuði, spjallaði við sjómennina
og eldaði mjög mikið af fiski,“ segir
Hulda og hlær. „Það sem stakk mig
sérstaklega þarna var ströndin sem
var marglit vegna allra plastþráð-
anna sem lágu þarna í sandinum
eftir að hafa skolast á land. Mér
fannst þetta heillandi á einkenni-
9. maí – 31. maí 2014
TVEIR HRAFNAR
listhús, Art Gallery
Baldursgata 12 101 Reykjavík
+354 552 8822 +354 863 6860 +354 863 6885
art@tveirhrafnar.is www.tveirhrafnar.is
Opnunartímar
12:00-17:00 miðvikudaga til föstudaga
13:00-16:00 laugardaga
og eftir samkomulagi
Ragnar
Þórisson
Myndlist Hulda Rós opnaR sýningu í galleRí Þoku á laugaRdagskvöld
Framtíðin er í fortíðinni
Í verki sínu „Keep Frozen“ fjallar Hulda Rós Guðnadóttir um samband mannskepnunnar við
sjávarsíðuna og misjafnar birtingarmyndir þess sambands. Hulda hefur búið í Berlín undan-
farin ár þar sem hún starfar við myndlist en þörfin fyrir að skoða ræturnar leiddi hana vestur
á Bíldudal fyrir nokkrum árum þar sem hugmyndin að verkinu fæddist. Eftir að hafa leitt Huldu
milli hafna heimsins beinir þessi nýjasti hluti verksins sjónum sínum að hafnarsvæði Reykjavíkur
en listakonan er alls ekki hrifin af þróuninni þar.
Hulda Rós Guðnadóttir myndlistakona fjallar um hverfandi atvinnustarfsemi hafnarinnar í nýju verki, „Keep Frozen part two“
sem frumsýnt verður á Listahátíð um helgina. Ljósmynd/Hari
legan hátt því þetta segir sorgar-
sögu um umhverfismál en er samt
svo fallegt á að líta.“
Hulda nýtti þessar marglitu
plasttægjur sem efnivið í sýningu
á næstu viðkomustað, í New York,
en sú sýning er annar hluti „Keep
Frozen“ rannsóknarverkefnisins,
„Keep Frozen part one“.
Vinnusvæði verður útsýni
Í „Keep Frozen part two“, sem
verður frumsýnt um helgina á
Listahátíð setur Hulda sig aftur
í stellingar verkamannsins og
veltir fyrir sér sambandi fortíðar-
innar við framtíðina, en hverfandi
atvinnustarfsemi hafnarinnar
innan borgarmarkanna er eitthvað
sem Hulda hefur mikla skoðun á.
„Ég er að fókusa á vinnuna sjálfa,
við höfnina. Skapandi fólk í dag
heillast mjög mikið af iðnaðinum
tengdum hafinu, og ég er þar
engin undantekning. En um leið og
fólk fer að hafa áhuga á höfninni
og sjá hana sem útsýni úr glugga,
þá þurfum við að breyta öllu. Í
raun er verið að reka höfnina hér
í Reykjavík í burtu, ég hef heyrt
frá fólki sem vinnur við höfnina að
planið sé að taka yfir allar bygg-
ingar við hafnarsvæðið, breyta
vinnusvæðum í skrifstofur og
íbúðir. Flestir halda að hér sé verið
að taka yfir tómt húsnæði en það er
ekki veruleikinn,“ segir Hulda sem
hefur tekið viðtöl við fjölda fólks
sem vinnur við höfnina. „Reykja-
víkurborg byggðist upp meðfram
uppbyggingu hafnarinnar og það
er ennþá atvinnustarfsemi þar. En
höfnin hefur verið að missa meira
og meira tengslin við borgina, og
það er ekkert einsdæmi hér, það
gerðist í mörgum borgum heims-
ins. En núna á að endurskipuleggja
höfnina út frá fagurfræði sem
fólk er að uppgötva, og vinnan við
höfnina hefur ekkert rými í þessari
enduruppgötvun. Það á að gera
höfnina að útsýnisstað en í leið
klippa á söguna og lífið.“
Opnunin er 31. maí klukkan 19
í Gallerí Þoku við Laugaveg. Þar
verður einnig gjörningur framinn
í samstarfi við Hinrik Þór Svavars-
son, sviðslistamann og fyrrverandi
gjörningamann.
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
„Keep Frozen“
er verk í vinnslu,
þar sem verkið
sjálft er ekki endi-
lega markmið í
sjálfu sér, heldur
frekar sjálft sköp-
unarferlið.
Miðasala | 568 8000 | midasala@borgarleikhus.is
Furðulegt háttalag hunds um nótt (Stóra sviðið)
Lau 31/5 kl. 20:00 Fös 6/6 kl. 20:00
Sun 1/6 kl. 20:00 Lau 7/6 kl. 20:00 lokas
Síðustu sýningar
BLAM (Stóra sviðið)
Fim 19/6 kl. 20:00 aukas Lau 21/6 kl. 20:00 aukas
Fös 20/6 kl. 20:00 aukas Sun 22/6 kl. 20:00 lokas
Sýning ársins í Danmörku 2012, 6 Grímutilnefningar 2013. Aðeins þessar sýningar!
Dagbók Jazzsöngvarans (Nýja sviðið)
Fös 30/5 kl. 20:00
Síðasta sýning!
Ferjan (Litla sviðið)
Fös 30/5 kl. 20:00 aukas Mið 4/6 kl. 20:00 35.k Mið 11/6 kl. 20:00 38.k
Lau 31/5 kl. 20:00 32.k Fim 5/6 kl. 20:00 aukas Fim 12/6 kl. 20:00
Sun 1/6 kl. 20:00 33.k Fös 6/6 kl. 20:00 36.k Fös 13/6 kl. 20:00
Þri 3/6 kl. 20:00 34.k Lau 7/6 kl. 20:00 37.k
Fyrsta leikrit Kristínar Marju eins ástsælasta rithöfundar þjóðarinnar
Der Klang der Offenbarung des Göttlichen (Stóra svið)
Fös 30/5 kl. 20:00 3.k
Myndlistarverk fyrir svið eftir Ragnar Kjartanson. Tónlist Kjartan Sveinsson
Dagbók Jazzsöngvarans –Síðasta sýning í kvöld