Fréttatíminn


Fréttatíminn - 30.05.2014, Blaðsíða 70

Fréttatíminn - 30.05.2014, Blaðsíða 70
Íris Tara er 27 ára Kópa- vogsbúi. Hún og félagar á Króm. is ætla að vera með puttann á púlsinum með hvað er að gerast hverju sinni.  Fjölmiðlar VeFmiðillinn Króm Fer í loFtið í dag Ekkert slúður og engin pólitík Í dag fer nýr vefmiðill í loftið sem hefur fengið nafnið Króm. Vefurinn sameinar á einum stað upplýsingar um allt sem er á döfinni hverju sinni en það eru þær Íris Tara Ágústsdóttir og Erna Sigmundsdóttir sem eru stofnendur vefsins í samstarfi við vefhönnunarfyrirtækið WEDO. „Auk þess að fókusa á við- burði, hvort sem það eru tónleikar, sýningar, pop-up, verslanir eða markaðir svo eitthvað sé nefnt, munum við líka fjalla um viðburðina auk þess að vera með áhugaverð viðtöl tengd því sem er að gerast hverju sinni í hönnun, tækni, tísku og nýsköpun. Við ætlum ekki að fjalla um pólitík og það verður ekkert slúður. Áherslan verður alltaf á jákvæða og skemmtilega umfjöllun og við viljum ná til karla jafnt sem kvenna,“ segir Íris en nú þegar hafa þær Erna fengið til liðs við sig fjöldann allan af blaðamönnum og bloggurum. „Markmiðið er að vera með puttann á púlsinum í öllu því skemmtilega sem er að gerast. Við ætlum að vera dugleg að mæta á viðburði og taka upp efni, svo það verða líka vídeó á síðunni.“ Íris segir síðuna vera mjög notendavæna. „Það getur hver sem er sett inn við- burð og það kostar ekki neitt. Það eina sem þú þarft að gera er að skrá viðburðinn og svo samþykkjum við viðburðinn og þá fer hann beint inn.“ -hh 70 dægurmál Helgin 30. maí-1. júní 2014 Björn Bragi veit að sagan segir að þar sem HM fer fram í Suður- Ameríku muni sigurlandið koma frá þeirri heimsálfu. Þess vegna er hann klár í búningi Argentínu fyrir um- fjöllunina á RÚV sem hann stýrir. Mynd/Hari  SjónVarp Björn Bragi Stýrir Hm-umFjöllun á rÚV í Sumar Amma og afi og allir hinir bíða spenntir Grínistinn Björn Bragi Arnarsson verður í aðalhlutverki í HM-umfjöllun RÚV í sumar. Hann hefur oftast haldið með Hollendingum á HM en gafst upp á þeim fyrir nokkru. Björn Bragi vonast eftir óvæntum úrslitum í keppninni og lofar að gera ekki allt vitlaust með óviður- kvæmilegum ummælum að þessu sinni. Tvær forvitnilegar sýningar verða opnaðar í Norræna húsinu á laugardag klukkan 15. Í ytri sýningarsal hússins verður að finna sýninguna Tölt sem er til heiðurs íslenska hestinum. Sýningin var fyrst sett upp í sýningarrými norrænu sendiráð- anna í Berlín, Fælleshus, sumarið 2013 á ári hestsins og í tilefni þess að heims- meistaramót íslenska hestsins fór fram í Berlín á sama tíma. Sýningin sló í gegn og varð sú fjölsóttasta í sögu Fælleshus. Á sýningunni eru verk eftir íslenska listamenn, ljósmyndara og fatahönnuði. Meðal þeirra eru Hrafnkell Birgisson, Gígja Einarsdóttir, Gréta Vilborg Guð- mundsdóttir, Mundi, Kristín Garðars- dóttir, Andersen & Lauth, Spessi, Jör by Guðmundur Jörundsson, Ásta Guðmunds- dóttir og Una Lorenzen. Sýningarstjóri er Ragna Fróðadóttir en sýningarumsjón er í höndum Birtu Fróðadóttur. Í innri sýningarsal Norræna hússins verður svo opnuð ljósmyndasýningin Mapping Europe eftir sænsku lista- konuna Katerina Mistal. Á sýningunni varpar listakonan fram spurningunni um stöðu manneskjunnar í landslaginu. Áhorfandinn sér ljósmyndir þar sem börn hafa raðað sér upp meðfram strandlengju og stendur frammi fyrir spurningunni um tengslin milli mann- eskju og umhverfis. Katerina Mistal býr og starfar í Stokk- hólmi. Hún vinnur mikið með ljósmyndir og vídeólistaverk og í mörgum verka hennar má sjá svipuð viðfangsefni birtast aftur og aftur; náttúra, ókönnuð svæði og takmarkanir í landslagi. Mistal hefur áður sýnt hér á landi þegar hún var gestur á Listahátíð í Reykjavík 2009 með verkinu Riots. Frítt er inn á sýninguna og stendur hún til 29. júní. Hestar og menn í Norræna húsinu Mynd/Spessi Ég held að það sé sannað að þetta sé stærsti heimsvið- burðurinn, bara yfir allt. Þ etta verður alls ekki leiðinleg vinna,“ segir Björn Bragi Arnars-son, grínisti og sjónvarpsmaður, sem mun stjórna HM-umfjöllun RÚV í sumar. Keppnin hefst 12. júní næstkomandi og verður Björn Bragi gestgjafi í mynd- veri á hverjum degi meðan hún stendur yfir. Helstu sérfræðingar eru þeir Guðni Bergsson, fyrrum landsliðsmaður, og Heimir Hallgrímsson, annar þjálfara ís- lenska karlalandsliðsins. Auk þeirra munu Gunnleifur Gunnleifsson, Guðrún Sóley Gunnarsdóttir og Ríkharður Daðason taka þátt í að greina leikina. „Svo verður líka straumur af öðrum gestum. Það er stórt teymi sem kem- ur að þessu,“ segir Björn Bragi. H a n n k ve ð s t vera mikill fótbolta- áhugamaður og því sé þetta draumaverk- efni fyrir sig. „Ég hef alltaf horft á HM. Keppnin 1990 er fyrsti sjónvarpsvið- burðurinn sem ég man eftir að hafa horft á. Þá var ég sex ára. Keppnin var mjög góð og dramatísk og það var ekki annað hægt en að hoppa á vagninn.“ Áttu þér uppáhaldslið? „Ég hélt alltaf með Hollendingum en svo áttu þeir svo mörg leiðinleg mót, það var óeining í liðinu og fleira. Ég á eiginlega eftir að finna mitt lið. Maður hrífst líka af einhverju liði og á næsta móti er kominn allt annar mannskapur. Nú eru til dæmis Belgar allt í einu með frábært lið.“ Hverjir vinna? „Flestir virðast setja peninginn á heima- menn í Brasilíu, þeir eru með frábært lið og náttúrlega á heimavelli. Það er líka at- hyglisverð staðreynd að í þau fjögur skipti sem keppnin hefur verið haldin í Suður- Ameríku hefur Suður-Ameríkuþjóð alltaf sigrað. Ég vona að það verði óvænt úrslit í ár.“ Í undanförnum keppnum hefur tek- ist afar vel til við val á einkennislagi keppninnar, síðast með Union City Blue með Blondie. Björn Bragi við- urkennir að hann sé undir nokkurri pressu við valið. „Þetta er vandasamt val því það þarf að gera ráð fyrir að fólk sé tilbúið að heyra lagið 200 sinnum.“ Þú gerðir allt brjálað í ársbyrjun þegar þú sagðir að íslenska landsliðið væri eins og nasistar að slátra því austurríska á EM í handbolta. Þurfum við nokkuð að hafa áhyggjur af því að þú gerir allt brjálað nú? „Nei, nei. Ég held að það þurfi litlar áhyggjur að hafa af því. Ég held að það verði bara allir í stuði að tala um fót- bolta.“ Er það ekki ein- mitt málið, að HM er svo skemmti- legt fyrirbæri að keppnin nær til ótrúlegasta fólks? „Ég held að það sé sann- að að þetta sé stærsti heims- viðburðurinn, bara yfir allt. Það eru f lestir sem fylgjast með HM. Amma og afi og fólk sem horfir annars aldrei á fótbolta situr límt og á sér uppáhalds lið. Svo myndast líka oft skemmtileg stemning á vinnustöðum með rauðvínspottum og fleiru.“ Höskuldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is Leitið upplýsinga á auglýsingadeild Fréttatímans í síma 531 3310 eða á auglysingar@frettatiminn.is Fréttatímanum er dreift á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri auk lausadreifingar um land allt. Dreifing með Fréttatímanum á bæklingum og fylgiblöðum er hagkvæmur kostur. Ert þú að huga að dreifingu?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.