Fréttatíminn - 30.05.2014, Page 74
2 veiði Helgin 30. maí-1. júní 2014
Svansson ehf • Sími: 567-2100 • www.svansson.is •
Netfang sala@svansson.is
Hægt er að skipta um gler ef þarf.
Varagler í boði.
Glerið er Polorized og er með 100% vörn
gegn útfjólubláum geislum UVA og UVB.
SeaSpecs gleraugu fyrir veiðimanninn,
sjósport og hinar ýmsu jaðaríþróttir.
Söluaðili: RadíóRaf • Smiðjuvegi 52 • (rauð gata) • Kópavogi • S: 567-2100
H jónin Oddný Magnadóttir og Hilmar Hansson eru eigendur verslunarinnar
Veiðiflugna við Langholtsveg. Þar
er boðið upp á mjög gott úrval af
búnaði og fatnaði í fluguveiðina og
fyrsta flokks þjónustu starfsmanna
sem allir eru reyndir veiðimenn.
„Við bjóðum upp á vörur frá tveimur
stærstu merkjunum í Skandinavíu,
Loop og Guideline. Núna í vor var
bandarískum f lugustöngum frá
Scott og Sage bætt við. Með þessu
góða úrvali ættu allir að finna stang-
ir við sitt hæfi í búðinni. Hjá okkur
fást allar þær stangir sem hafa vakið
hvað mesta athygli í veiðiheiminum
í dag, má þar til dæmis nefna Loop
Cross S1, Sage ONE, Scott Radian
og Guideline Lxi,“ segir Oddný.
Allar flugurnar í versluninni eru
frá Atlantic Flies sem er orðin þekkt
fluguverksmiðja. Þaðan koma vönd-
uðustu og flottustu flugur sem í boði
eru á markaðnum í dag.
Tvíhenduskothaus fyrir ís-
lenskar aðstæður
Í vor koma nokkrar flottar nýjungar
frá Guideline, til dæmis nýjar stór-
ar töskur (Duffel bag) undir allan
veiðibúnaðinn. „Þær koma í 85L og
150L útgáfum. Töskurnar eru létt-
ar, sterkar og vatnsfráhrindandi,“
segir Oddný. Frá Guideline kemur
líka nýr fatnaður þetta sumarið. Ex-
perience vöðlujakkinn hefur verið
endurhannaður og er þægilegur og
góður jakki fyrir erfiðar aðstæður.
„Svo kemur nýr Primaloft fatnað-
ur með 60 gramma léttri fyllingu,
bæði jakki og buxur. Þetta er frá-
bær „layer“ fatnaður, Primaloft fyll-
ingin er ótrúlega hlý miðað við létt-
leika. Frá Guideline er líka að koma
nýr tvíhenduskothaus sem er besti
haus sem við höfum prófað. Hann
er Compact, hannaður af Klaus Fri-
mor, sérstaklega fyrir íslenskar að-
stæður.“
Nýr fatnaður frá Patagonia
Nú í vor hefur úrvalið af Patagonia
fatnaði verið aukið til muna. „Við
eigum til létta dúnjakka, Primaloft
jakka og vesti í ýmsum litum. Næsta
haust aukum við svo enn frekar úr-
valið af Patagonia útivistarfatnaði
því þetta er frábær fatnaður. Hönn-
unin er falleg, litirnir bjartir og mik-
il áhersla lögð á gæði og umhverfis-
sjónarmið,“ segir Oddný. Patagonia
fatnaðurinn hentar í alla útivist,
hvort sem fólk stundar fjallgöngur,
golf, veiði eða hestamennsku.
Nánari upplýsingar má nálgast á
vefnum veidiflugur.is og á Facebo-
ok-síðunni Veiðiflugur / Fishing-
flies
Eina sérhæfða fluguveiðiverslun landsins
Veiðiflugur
eru eina sér-
hæfða flugu-
veiðiverslun
landsins.
Veiði er
ástríða og
lífsstíll allra
starfsmanna
verslunar-
innar. Kom-
inn er nýr
tvíhendu-
skothaus,
hann-
aður af Klaus
Krimor,
sérstaklega
fyrir íslensk-
ar aðstæður.
Hvergi betra að vera en á
bakkanum með góðum vinum
Um fimmtíu drengir milli tvítugs og þrítugs eru í veiðifélaginu
Óríon sem starfrækt hefur verið síðustu fimm árin. Drengirnir
veiða bæði á stöng og skjóta fugla. Fyrir utan veiðiferðirnar eru
hápunktar ársins aðalfundur og þorrablót.
Ó ríón er veiðiguðinn. Við vorum ekkert að vaða yfir lækinn til að sækja
nammið þegar við völdum
nafnið,“ segir Þorgils Helgason,
gjaldkeri veiðifélagsins Óríon.
Veiðifélagið var stofnað árið
2009 og telur tæplega fimm-
tíu meðlimi í dag. „Upphaflega
kveikjan var að við fórum um
tíu félagar saman í Stóru-Laxá.
Við veiddum nú ekki mikið,
fengum einn lax, en þótti þetta
mjög gaman og ákváðum í
kjölfarið að stofna veiðifélag. Á
fyrsta aðalfundi gengu eitthvað
um þrjátíu manns í klúbbinn
og síðan hefur þetta spurst út
meðal félaga þeirra sem fyrir
eru.“
Er hverjum sem er hleypt í
félagið?
„Neinei. Við höfum ekkert
gert út á nýliðun. Menn hafa
bara samband við okkur og
sitjandi meðlimir þurfa að mæla
með þeim sem vilja ganga í
félagið. Svo fara þeir á reynslu-
tíma fram að aðalfundi þar sem
þeir eru teknir inn.“
Þetta er karlafélag, ekki satt?
Er konum ekki hleypt inn?
„Ja, maður skyldi nú aldrei
segja aldrei. Það hefur alla
vega ekki verið opnað fyrir það
í reglum félagsins enda hefur
engin kona óskað eftir aðild.
Þær geta kannski byrjað á því
að stofna sitt félag og óska eftir
gerast vinafélag okkar,“ segir
hann og hlær.
Meðlimir Óríon eru milli tví-
tugs og þrítugs og upphaflega
komu flestir þeirra úr Kvennó
og MR. „Nú eru þetta menn
sem koma víða að, frá uppsveit-
um Borgarfjarðar, úr Skagafirði
og Kópavogi og Hafnarfirði,“
segir Þorgils
Meðlimir Óríon veiða bæði á
stöng og byssu og fara í nokkrar
skipulagðar ferðir á ári. Að
sögn Þorgils er fyrirkomulagið
þannig að ferð er bókuð og hún
kynnt á Facebook-síðu félags-
ins. Svo komast þeir með sem
fyrstir eru að skrá sig.
„Við höfum farið á hverju ári á
Arnarvatnsheiði, sú ferð er fasti
punkturinn, og í ár förum við
líka í Haukadalsá í Dölum. Svo
höfum við líka haft ýmiskonar
aðra starfsemi eins og skotveiði-
mót og dorgveiðimót. Menn
hittast líka á veturna og hnýta
flugur og segja veiðisögur.“
Stærsti viðburður hvers árs
er þó aðalfundur félagsins.
„Hann er jafnan haldinn í lok
stangveiðiársins, á milli stang-
veiða og rjúpu,“ segir Þorgils.
„Aðalfundurinn er mjög vel sótt-
ur og það er þorrablótið líka. Þá
tökum við með okkur frændur,
feður og bræður og þá er farið
yfir liðinn veg og dansað og
drukkið.“
Er það ekki einmitt málið, er
þetta ekki allt saman bara af-
sökun fyrir stráka til að hittast
og skemmta sér?
„Ja, þetta hentar alla vega
einstaklega vel saman. Það er
hvergi betra að vera en á bakk-
anum með góðum vinum. Og
ef baukur vill vera í hönd, þá er
það ekkert verra. Menn velja
sér það eins og annað. Það er
alla vega alltaf mikið fjör hjá
okkur.“
Veiðifélagarnir búnir að koma sér vel fyrir í ónefndri paradísarlaut við Vatnsdalsá. Þarna er skálað fyrir maríulaxi og góðum
félagsskap. Þarna eru Jón Magnús, Sigþór, ónefndur fyrrverandi félagsmaður, Árni, Einar og Þorgils.
Oddný Magnadóttir er eigandi Veiðiflugna
ásamt manni sínum Hilmari Hanssyni.