Brennidepill - 01.03.1998, Page 10

Brennidepill - 01.03.1998, Page 10
Sameining sveitar- félaga skiptir máli Hermann Sæmundsson deildarsérfræðingur í félagsmálaráðuneytinu. B.A. í stjórnmálafræði fráH.Í. 1991. Kandi- datspróf í stjórnmála- fræði frá háskólanum í Árósum 1996. Efni lokaritgerðar: Sjálfstæði sveitarfélaga á íslandi. I. Sveitarfélögum fækkar þrátt fyrir allt Sameining sveitarfélaga hefur verið tals- vert til umræðu hér á landi síðustu árin. Eins og kunnugt er var á árinu 1993 ráðist í mikið átak til að sameina sveitarfélögin og fækka þeim verulega með það að mark- miði, að efla þetta stjórnsýslustig og flytja til þess fleiri verkefni.1 Árangur af átakinu var ekki eins mikill og menn vonuðust eft- ir þrátt fyrir umtalsverða undirbúnings- vinnu og kynningu meðal sveitarstjórnar- manna og almennings. Aðeins ein tillaga um sameingu var samþykkt af 32. Ýmis- legt getur skýrt þá afleitu útkomu, en ekki síst hefur verið bent á að of geyst hafi ver- ið farið í þessum efnum og að ríkisvaldið hafi gengið of beint til leiks í máli, sem eingöngu varðar málefni sveitarfélaga. Hins vegar er því ekki að neita, að óbein áhrif af sameiningarátakinu hafa verið nokkur og til að mynda hefur sveitarfélög- um fækkað frá 1993 um ein 30, sem verð- ur að teljast veruleg fækkun í ljósi þess, hver þróunin hefur verið á þessari öld.2 Með sömu augum má líta á þann mikla sameiningarhug, er nú ríður yfir víða um land, sbr. grein Hólmfríðar Sveinsdóttur hér að framan. En fleiri þættir hafa þó einnig áhrif á áhuga sveitarstjórnar- manna fyrir sameiningu í dag og vil ég í því sambandi einkum benda á tvo þætti. í fyrsta lagi hefur flutningur grunn- skólans frá ríki til sveitarfélaga 1. ágúst 1996 haft veruleg áhrif í þá átt að auka áhuga sveitarstjómarmanna fyrir samein- ingu sveitarfélaga.3 Flutningur þessa verkefnis hefur án efa vakið marga til um- hugsunar um þau vandamál, sem kunna að tengjast því að mjög fámenn sveitarfé- lög taki við umfangsmikilum og kostnað- arsömum verkefnum. í öðru lagi hefur það einnig ýtt við áhuga manna fyrir sameiningu sveitarfé- laga að enn frekar er rætt um að flytja verkefni frá ríki til sveitarfélaga. Nú þegar hefur verið hafist handa við að flytja mál- efni fatlaðra að öllu leyti til sveitarfélaga og stefnt er að því, að sá flutningur fari fram í upphafi árs 1999.4 í dag annast sveitarfélög eingöngu ákveðna þætti þjón- ustunnar við fatlaða, svo sem heimilis- hjálp og ferliþjónustu, en stærstur hluti verkefnisins er í höndum ríkisvaldsins. Það er því ljóst að með tilfærslu verkefnis- ins mun enn frekar reyna á getu sveitar- stjórnarkerfisins til að standa undir vandasömu verkefni og margir sveitar- stjórnarmenn vilja búa sín sveitarfélög undir þá yfirfærslu með sameiningu við önnur.5 Samkvæmt ofangreindu má búast við að sveitarfélögum eigi eftir að fækka enn frekar á íslandi á næstu árum þrátt fyrir að ekki sé um bein afskipti löggjafarvalds- ins eða hins opinbera á þessu sviði að ræða eins og var árið 1993.6 Það almenna viðhorf hefur einnig verið ríkjandi, bæði af hálfu hins opinbera og samtaka sveitar- félaga, að löggjafarvaldið eigi ekki að knýja fram sameiningu og árangursríkara sé að íbúar viðkomandi sveitarfélaga ákveði slíkt sjálfir.7 Engin breyting virðist í sjónmáli á þeirri stefnu. Sameining 11 sveitarfélaga í Skagafirði nú fyrir skemmstu og þriggja sveitarfélaga á Aust- fjörðum gefur hins vegar miklar vænting- ar um að framhald verði á sameiningu sveitarfélaga og að fjöldi sveitarfélaga geti verið kominn undir eitthundrað um alda- mótin. II. Hvers vegna á að sameina sveitarfélög á íslandi? Hér á eftir verður þó ekki frekar spáð fyrir um horfur á sameiningu sveitarfélaga heldur verður vikið að nokkrum atriðum, sem telja má röksemdir fyrir sameiningu sveitarfélaga hér á landi. Mest áhersla verður þó lögð á fyrstu tvö atriðin, en það er annars vegar samhengið á milli stærð- ar og skilvirkni stjórnsýslu sveitarfélaga og hins vegar á milli stærðar og flutnings fleiri verkefna til þeirra. A. Stærri sveitarfélög búa við faglegri yfirstjóm Stjórnsýslan er mikilvægur þáttur í rekstri hvers sveitarfélags og því skiptir umgjörð hennar og skipulag máli. Öflugri stjórn- sýsla, t.d. hvað menntun starfsmanna varðar, reynslu þeirra og fjölda, er ávísun á meiri skilvirkni og getu við úrlausn verkefna, að minnsta kosti í tvennskonar samhengi: í fyrsta lagi er öflug stjórnsýsla mikilvægt atriði gagnvart innri málum sveitarfélags, ekki síst með tilliti til Ijár- hagslegrar afkomu og daglegs reksturs. Vert er í þessu sambandi að benda á grein eftir Karl Björnsson, bæjarstjóra á Sel- fossi, í tímaritinu Sveitarstjórnarmál. Þar bendir hann á að þjónustusamningar og alútboð séu árangursrík tæki varðandi fjármál sveitarfélaga, en að beiting slíkra tækja krefjist hins vegar „reynslumikilla og helst vel menntaðra stjórnenda sveitar- félaga“.8 í öðru lagi skiptir öflug og fagleg stjórnsýsla máli gagnvart ytra umhverfi sveitarfélaganna, bæði varðandi sam- skipti við önnur sveitarfélög og hags- munasamtök, en ekki síst varðandi sam- skipti við ríkisvaldið. Sveitarfélag sem býr við veikburða stjórnsýslu á þannig erfið- ara með að reka sjálfstæða pólitík gagn- vart umhverfi sínu eða leysa með viðun- andi hætti verkefni sín. Hvort tveggja eyk- ur líkurnar á afskiptum annarra, t.d. ríkis- valdsins, af málefnum sveitarfélags og dregurþarafleiðandi úrsjálfstæði þess.9 Almennt séð eru stærri sveitarfélög líklegri til að búa við öflugri stjórnsýslu en minni,10 og það á ekki síst við hér á ís- landi, þar sem mikill breytileiki ríkir varð- andi gerð og umfang stjórnsýslu sveitarfé- laga.11 Hin stærri sveitarfélög hafa náð að byggja upp öfluga og faglega stjórnsýslu en stjórnsýsla minni sveitarfélaga, t.d. með færri en 400 íbúa, er varla saman- burðarhæf í því sambandi. Þessi sveitarfé- lög eru heldur ekki skyldug skv. sveitar- stjómarlögum (nr. 8/1986) til að ráða sér framkvæmdastjóra og því hefur oddvitinn með höndum daglegan rekstur. Töluvert er þó um að fámennari sveitarfélög hafi valið að ráða til sín sérstakan fram- kvæmdastjóra, einkum á það við um minni þéttbýlisstaði. Með öðrum orðum er starfslið í stjómsýslu þessara minnstu sveitarfélaga á íslandi fáliðað og almennt séð er stjórnsýslan veikburða. Slík sveitar- félög eru hins vegar nokkur meirihluti sveitarfélaga á íslandi, eða tæplega % hlutar, því þann 1. des. 1997 voru 107 10 Brennidepin l.tbl. 1998

x

Brennidepill

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Brennidepill
https://timarit.is/publication/1061

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.