Sveitarstjórnarmál - 01.06.1962, Síða 10
8
SVEITARST J ÓRNARMÁL
varp til nýrra sveitarstjórnarlaga og upp-
kast að í’rumvarpi um tekjustofna sveitar-
félaga, og voru þessi mál rækilega rædd
þá.
Frumvarp til nýrra sveitarstjórnarlaga var
afgreitt frá Alþingi 27. marz 1961 og tók
gildi um seinustu áramót. Má segja, að
með því hafi komizt í höfn eitt af baráttu-
málum sambandsins, að sett yrði ein heild-
arlöggjöf um sveitarstjórnina í landinu og
er að þeirri breytingu mikill fengur.
Seinasti fulltrúaráðsfundur samþykkti til-
lögur um nokkrar breytingar á frumvarp-
inu, eins og það þá lá fyrir og voru þær
nær allar teknar til greina á Alþingi.
Frumvarp til laga um tekjustofna sveitar-
félaga, sem rætt var á seinasta fundi í full-
trúaráðinu og skýrt þá af ráðuneytisstjór-
anum í félagsmálaráðuneytinu, hefur verið
lagt fram á Alþingi og verður væntanlega
afgreitt þaðan sem lög eftir nokkra daga.
Er þar komið vel á veg annað stórmál, sem
verið hefur á dagskrá landsþinga og full-
trúaráðsfunda um margra ára skeið. Fjár-
öflunarmál sveitarfélaganna eru nú sett upp
í heildarkerfi í einum lagabálki, og horfir
það mjög til bóta, enda þótt ýmis atriði
mættu sjálfsagt betur fara, og sum þau ný-
mæli, sem þar eru, og stórbreytingar, orki
tvímæíis, a. m. k. fyrst í stað. Þessi löggjöf
skapar grundvöll fyrir frekari breytingum
í þessum málum eftir því, sem reynslan
leiðir í Ijós síðar. En hér eru þó teknar upp
margar þær ábendingar, sem komið hafa frá
sambandinu — landsþingum þess og full-
trúaráðsfundum. Þessar má nefna:
1. Fasteignaskattur er lögákveðinn í öllum
sveitarfélögum.
2. Aðstöðugjald kemur í stað hinna um-
deildu veltuútsvara.
3. Landsútsvör á ríkisfyrirtæki, sem reka
starfsemi, sem nær til landsins alls, svo
og á olíufélög, eru lögfest og væntan-
lega bætast við áður en langt um líður
bankar og fleiri fyrirtæki.
4. Jöfnunarsjóður sveitarfélaga er lög-
festur og eíldur enn frá því, sem áður
var með því að í hann renna hlutar
af landsútsvörum og einnig er ráðherra
heimilt að halda eftir 1% af tekjum
sjóðsins unz hann nemur allt að 5
millj. krónum til að sinna þörfum
sveitarfélaga, sem aðstoðar þurfa.
5. Einn útsvarsstigi er upp tekinn um
land allt.
Frumvarpið var rætt efnislega á seinasta
fulltrúaráðsfundi svo ekki er ástæða til að
ræða J:>að frekar á þessum fundi.
Eftir að nokkurra ára reynsla er fengin
af íramkvæmd laganna, þarf vafalaust að
endurskoða Jiau, eins og flesta slíka löggjöf.
☆
Önnur löggjöf. Fjölmörg önnur málefni
hafa komið til kasta stjórnar sambandsins
frá seinasta fulltrúaráðsfundi, bæði frá ein-
stökum nefndum Alþingis og frá ríkisstjórn-
inni. Virðist mér að tekið hafi verið rétt-
mætt tillit til ábendinga stjórnarinnar og
ber að meta Jjað, enda æskilegt, að jafnan
geti verið gott samstarf milli stjórnar sam-
bandsins og ríkisstjórnar liverju sinni, Jjví
Jjað er mikils vert fyrir framgang hinna
ýmsu mála sveitarfélaganna. Frá seinasta
fulltrúaráðslundi liafa verið sett ný lög um
lijargráðasjóð íslands, lög um ríkisábyrgðir,
lög um ríkisfangelsi og vinnuhœli og lög um
liéraðsfangelsi. Af öðrum nýlegum frum-
vörpum, sem stjórnin hefur verið spurð álits
um, mætti nefna frumvarp til laga um bygg-
ingarsjóð verkamanna, sem gerir ráð fyrir
auknum stuðningi ríkisvaldsins við lausn