Sveitarstjórnarmál

Ukioqatigiit

Sveitarstjórnarmál - 01.07.1964, Qupperneq 6

Sveitarstjórnarmál - 01.07.1964, Qupperneq 6
íslenzka lýÖveldið 20 ára Hinn 17. júní s.l. var þess minnst með hátíðahöldum um land allt, að þann dag voru liðin 20 ár frá stofnun lýðveldis á íslandi. Á því tuttugu ára tímabili, sem liðið er frá rigningardeginum mikla á Þingvöllum, 17, júní 1944, hefur margt breyt/.t hér á landi. Ekki verður þvi neitað, að sókn þjóðarinnar til liam- fara og menningar hefir verið mikil og tim margt standa nú íslendingar jafn- l'ætis öðrum þjóðum, og jafnvel framar sums staðar. Það er því sorglegt, þegar ísland er nefnt í tölu „vanþróaðra" landa og mjög er landanum þá aftur farið, ef liann lætur sér slíkt lynda til lengdar. Á fullveldisdaginn í ár var veður hið ákjósanlegasta um allt land og í Reykja- vík var meira fjölmenni saman komið til að fagan fullveldinu en nokkru sinni fyrr. í ræðum forustumanna þjóðarinnar var vongleði og bjartsýni, enda hefir jrjóðarhagur aldrei verið betri en nú né jijóðin horft vonbetri fram á veginn. Það verður |jví ekki annað sagt en að sú kynslóð, sem borið hefur uppi þjóðar- búskapinn Jjessi fyrstu tuttugu ár lýðveldisins liafi skilað miklu og góðu starfi til hinnar óbornu framtíðar. Sú er é>sk og von allra — og ekki sízt þeirra, sem fyrir 1944 unnu að ]>ví að draumurinn um lýðveldi á íslandi rættist — að svo fari fram sem „verið hefur og að liinn huldi verndarkraftur", sem svo olt hefur sagt til sín í sögu íslands, megi um alla framtíð hlífa hinni stórbrotnu, fögru og tignarlegu ættjörð vorri um ókomin ár og aldir. Kápumyndin er frá hátíðahöldunum í Reykjavík á 20 ára lýðveldisdaginn jregar forseti Islands og forsætisráðherra leggja blómsveig að fótstallinum á styttu Jóns Sigurðssonar á Austurvelli, en myndin hér að ofan sýnir mannfjöld- ann, sem tók þátt í hátíðahöldunum á Arnarhóli í Reykjavík að kvöldi þjóð- hátíðardagsins 17. júní. 4 SVEITARSTJÓRNARMÁL

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.