Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 01.10.1984, Page 11

Sveitarstjórnarmál - 01.10.1984, Page 11
SAMTALIÐ Sundlaugin ad Sólgörðum. Handan búnmgsklefahússins er skólahúsið. Það var upphaflega riest sameiginlega at Kvenfélagi Siglufjarðar og Haganeshreppi sem skólahús á vetrum og sem sumardvalarheimili siglfirzkra barna & sumrum. Húsið var nýtt þannig tyrstu árin ettir að það var bvggt kringum árið 1940. Sundlaugin er 16% mx 12 mað stærð og kringum hana rimlaveggur. Henni er vel við haldið og hún mikið notuð. — Eru félagsmál sameiginleg í hreppunum? „Já, ungmennafélag er sameiginlegt í þeim báðum. Bridgefélagar hafa með sér sameiginlegan klúbb, og er spilað einu sinni í viku. Kvenfélag er sameiginlegt, en búnaðarfélag í hvorum hreppi fyrir sig. Hrepparnir standa nú sameiginlega að félagsheimili að Ketilási í Holtshreppi, en það var upphaflega aðeins byggt fyrir Holtshrepp. Þar var einnig skóli áður fyrr. Fleira mætti nefna um félagsmál. Þannig eru skíðamenn beggja hreppanna í einu félagi, Skíðafélagi Fljótamanna. í Fljótum hafa löngum verið góðir skíðagöngumenn. Margir þeirra hafa náð langt. Til dæmis má nefna þrjá eða fleiri íslandsmeistara í skíðagöngu, og fleiri fræknir skíðamenn eiga uppruna sinn að rekja til Fljótanna. Það er örðugt að halda uppi líflegu félagsstarfi á vetrum, meðan unga fólkið er flest í skólum annars staðar." — Hvaða mótbárur eru helztar gegn sameiningu hreppanna? „Ýmsir halda, að breyting muni verða á upprekstrarrétti einstakra jarða. En það held ég, að ekki sé ástæða til að ætla, að verði. Ég held, að hver jörð eigi sinn upprekstur, án tillits til þess, í hvaða hreppi hún er nú, og að þar á verði ekki breyting." — Stíflugerð vegna Skeiðsfossvirkjunar spillti jörðum í Fljótum? „Já, einir 5 eða 6 bæir í Holtshreppi fóru í eyði, þegar Skeiðsfoss í Fljótaá var virkjaður á árunum 1942—1945, en virkjunin er í Holtshreppi. Gert var geysistórt uppistöðulón, sem þekur mestallt láglendi Stíflunnar, en svo heitir fremsti hluti Holtshrepps. Þar er aðeins búið á tveimur býlum nú. Það er því að mestu af, sem áður var, samanber vísuna alkunnu: Vaxa fíflar Fróni á, finnst þar ríflegt heyið ó hve líflegt er að sjá oní Stíflugreyið. Orðið ríflegt er í vísunni jafnan borið fram ríbblegt og orðið líflegt sem líbblegt, eins og að líkum lætur. Einhverjar smábætur fengu bændur jarðanna á sínum tíma fyrir missinn, en ég gæti trúað, að þær þættu ekki miklar nú. Siglufjarðarkaupstaður keypti jörðina Skeið á árinu 1921, en henni fylgdu hálf vatnsréttindin við Skeiðsfoss. Hinn helming vatnsréttindanna keypti bærinn á árinu 1929. Skeiðsfossvirkjun varsíðan byggð á árunum 1944 og 1945 og var þá 24oo kW, en var á árunum 1953 og 1954 stækkuð í 3200 kW. Loks var endurvirkjað við Þverá á árunum 1975 til 1976. Afl beggja virkjananna er nú talið 4900 kW, en raforkuvinnsla var á árinu 1983 samtals 19275 MWh og hafði aukizt um 12% frá árinu á undan. Rafmagn frá Skeiðsfossvirkjun var á árinu 1955 leitt á býli í hreppunum og ári síðar um Lágheiði til Ólafsfjarðar. Loks tengdist svæðið landskerfinu með lagningu SVEITARSTJÓRNARMÁL 201

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.