Sveitarstjórnarmál

Årgang

Sveitarstjórnarmál - 01.10.1984, Side 28

Sveitarstjórnarmál - 01.10.1984, Side 28
IARIÐ 2004 sækja til Stykkishólms. Þessi fram- tíðarsýn um eyjar Breiðafjarðar er með öllu háð samgönguþættinum. Opinber þjónusta Opinber þjónusta verður að fylgja íbúafjölgun. í þeim efnum verður því að spá um þróun og áætla fram- kvæmdaþörf hvers áratugar. Meðal þeirra stofnana eða mannvirkja, sem ætla má, að rísi til ársins 2004 eða taki verulegum breytingum, mætti nefna eftirfarandi: 1) Ný kirkja. 2) íþróttahús, ný sundlaug og íþróttavellir, þ. á m. grasvöll- ur. 3) 2. og 3. áfangi skólabygg- ingar. 4) Deildir fjölbrautaskóla ásamt rannsóknarstofnun á vegum atvinnuveganna. 5) Lista- og náttúrugripasafn. 6) Staðbundin útvarps- og sjón- varpsstöð með móttöku fyrir erlendar sjónvarpsstöðvar. 7) Ráðhús. 8) Amtsbókasafnið filmu- og tölvuvætt. 9) Sjúkrahús fullbyggt, rekið deildaskipt ásamt heilsu- gæzlustöð. 10) íbúöir fyrir aldraða byggðar við dvalarheimilið. 11) Höfnin í Stykki fullgerð sam- kvæmt áætlun með garði út í Súgandisey, smábátabryggju og aðstöðu fyrir ferju. 12) Höfnin í Skipavík aðlöguð þeim aðstæðum, sem þarf vegna nýrra greina í skelveið- um, t. d. kúfiskveiða. Lokaorð Óneitanlega er tekin nokkur áhætta, þegar fengizt er við spá- dóma eða áætlanir um mannanna verk. Þær spár, sem hér eru settar fram, eru gerðar með öllum tiltæk- um fyrirvara, enda má segja, að hér fari nokkur óskhyggja þess, sem vill láta draumana rætast, án þess að geta verið viss um að hafa áhrif á framvinduna. En maður lifir ekki á brauðinu einu saman. Meðal hinnar andlegu næringar er óskhyggjan, en hún getur ekki aðeins flutt fjöll, heldur einnig hrundið af stað þróun. Það, sem hér er sett fram, er tilraun til þess. Með góó spil á hendi Útvegum SARLIN brunndælur fyrir skolp, vatn og sjó. Finnsk gæðavara, sarliim hagstætt verð. ' ^ Einkaumboð á íslandi: yiTÆKNI HF Skúlatúni 6 sími 91-29388 218 SVEITARSTJÓRNARMÁL

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.