Sveitarstjórnarmál - 01.10.1984, Qupperneq 32
Á síðasta starfstímabili Alþingis, sem lauk 22. mai
sl., voru alls afgreidd 11 lagafrumvörp sem lög. Þar á
meðal voru að venju allmörg lög, sem varða sveitarfé-
lögin. Hér á eftir verður getið þeirra helztu:
(1) Lánsfjárlög nr. 2 frá 20. marz 1984.
(2) L. nr. 15 frá 27. apríl 1984 um breytingu á I. 73/
1980 um tekjustofna sveitarfélaga.
(3) L. nr. 43 frá 30. maí 1984 um ráðstafanir í ríkisfjár-
málum o. fl.
(4) Lög nr. 42 frá 25. maí 1984 um breytingu á I. 10/
1960 um söluskatt.
(5) L. nr. 60 frá 1. júni 1984 um Húsnæðisstofnun
ríkisins.
(6) L. nr. 64 frá 30. maí 1984 um breytingu á I. 5/
1962 um sveitarstjórnarkosningar.
(7) Hafnalög nr. 69 frá 28. mai 1984.
(8) L. nr. 70 frá 30. maí 1984 um breytingu á I. 44/
1979 um húsaleigusamninga.
(9) L. nr. 75 frá 30. maí 1984 um breytingu á I. 73/
1980 um tekjustofna sveitarfélaga.
(10) L. nr. 85 frá 28. maí 1984 um breytingu á I. 21/
1977 um heimild til stofnunar fjölbrautaskóla.
(11) L. nr. 90 frá 30. maí 1984 um breytingu á jarða-
lögum nr. 65/1976.
(12) L. nr. 92 frá 16. maí 1984 um breytingu á I. 51/
1981 um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit.
(1) í lánsfjárlögum nr. 2/1984 eru m. a. fastákveðin
framlög ríkissjóðs til Hafnabótasjóðs, Félags-
heimilasjóðs og til þjóðvega í þéttbýli og veittar
heimildir til ríkisábyrgða vegna lána til hitaveitu-
framkvæmda nokkurra sveitarfélaga.
(2) Með lögum nr. 15/1984 um breytingu á I. 73/1980
um tekjustofna sveitarfélaga voru hækkaðir ýmsir
frádráttarliðir frá útsvarsskyldum tekjum.
(3) / lögum nr. 43/1984 um ráðstafanir í ríkisfjármál-
um o. fl. eru m. a. ákvæði um breytingu á reglum
um skil Innheimtustofnunar sveitarfélaga til
Tryggingastofnunar ríkisins og flýtingu á endur-
greiðslu útborgaðra meðlaga. Þá er í lögunum
lántökuheimild fyrir Jöfnunarsjóð sveitarfélaga
vegna uppgjörsflýtingarinnar, og tekjur Jöfnunar-
sjóðs af söluskatti og aðflutningsgjöldum eru tak-
markaðar við áætlun fjárlaga fyrir árið 1984. Þessi
ákvæði hafa það í för með sér, að tekjur Jöfnunar-
sjóðs sveitarfélaga munu skerðast á þessu ári og
næstu þremur árum um 7-8% á ári og heildar-
tekjur sveitarfélaganna þar með um ca. 1% á ári.
(4) Með lögum nr. 42 frá 25. maí 1984 um breytingu
á söluskattslögum nr. 10/1960 er m. a. veitt heim-
ild til að fella niður söluskatt af verksmiðjufram-
leiddum húsum fyrir barnaskóla og leikskóla.
Þetta nýmæli ætti að leiða til lækkunar á verði
slíkra húsa og er því mikið hagsmunamál sveitar-
félaganna.
(5) Lög nr. 60 frá 1. júni 1984 um Húsnæðisstofnun
ríkisins. Hér er um að ræða ný heildarlög um
Húsnæðisstofnun ríkisins, Byggingarsjóð ríkis-
ins, Byggingarsjóð verkamanna og félagslegar
íbúðabyggingar (verkamannabústaði og leigu-
íbúðir sveitarfélaga) og byggingarsamvinnufé-
lög. Lögin gengu í gildi 1. júlí sl. og leystu af
hólmi eldri lög nr. 51/1980 um Húsnæðisstofnun
ríkisins og eldri lagaákvæði um byggingarsam-
vinnufélög. í þessum lögum felast ýmsar breyt-
ingar frá áðurgildandi lögum. Ekki verða þær
raktar hér, en helztu breytingarnar, sem varða
sveitarfélögin, eru þessar:
a. Ákvæði eldri laga um lán úr Byggingarsjóði
ríkisins til sveitarfélaga. til byggingar dagvist-
arstofnana, íbúða aldraðra og öldrunarheimila
eru í meginatriðum óbreytt, en þó er tekið
sérstaklega fram í nýju lögunum, að heimilt sé
að lána úr sjóðnum til hjúkrunarheimila aldr-
aðra.
b. í lögunum (15. gr.) er nýmæli um heimild
sveitarstjórna til að selja lífeyrisþegum hlut-
deild í íbúðum, sem lán hafa verið veitt til úr
Byggingarsjóði ríkisins. Þá er það nýmæli, að
sveitarfélögum skuli heimilt að fengnu leyfi
Seðlabankans að selja einstaklingum verð-
tryggð skuldabréf til að tryggja sér leigurétt á
íbúð eða vistun á dvalarheimili, sem byggt er
með láni úr Byggingarsjóði ríkisins.
c. Ákvæði um kaupskyldu sveitarfélaga á verka-
mannabústöðum er breytt þannig, að kaup-
skyldutími verður 15 ár talið frá útgáfu afsals
ibúðar í stað 30 ára skv. eldri lögum.
d. Skv. lögunum verða hámarkslán til verka-
mannabústaða 80% í stað 90% skv. eldri lög-
um, þ. e. af kostnaði staðalibúðar.
e. Skv. lögunum er lánstimi lána til byggingar
leigufbúða lengdur úr 16 árum í 31 ár, og er
það mjög þýðingarmikil breyting fyrir sveitarfé-
lögin.
(6) Með lögum nr. 64 frá 30. maí 1984 um breytingu
á lögum nr. 5/1962 um sveitarstjórnarkosningar
eru teknar upp í lögin um sveitarstjórnarkosning-
ar áður gildandi reglur í lögum um kosningar til
Alþingis um, hverjir hljóti kosningu, þegar um
hlutbundnar kosningar (listakosningar) er að
ræða. Er það hin svonefnda d'Hondt-aðferð við
hlutfallskosningar, en með lögum nr. 66/1984 um
breytingu á lögum um kosningar til Alþingis er
lögfest önnur aðferð varðandi Alþingiskosningar.
(7) Hafnalög nr. 69 frá 28. maí 1984. Hér er um að
ræða heildarlög, sem leysa af hólmi eldri hafna-
lög nr. 45/1973. í lögunum eru nokkur nýmæli
222 SVEITARSTJÓRNARMÁL