Sveitarstjórnarmál

Årgang

Sveitarstjórnarmál - 01.10.1984, Side 37

Sveitarstjórnarmál - 01.10.1984, Side 37
IFRA LANDSHLUTASAMTDKUMl aö slíku samstarfi, mótun þess og framgangi. Fjórðungsþingið getur ekki sam- þykkt tillögur um að svipta núver- andi smæstu einingar sveitarstjórn- arstigsins tillögu- og ákvörðun- arrétti í samstarfi sveitarfélaga. Fjórðungsþingið tekur undir orð núverandi félagsmálaráðherra á Fjórðungsþingi, að slíkt komi aldrei til greina. Fjórðungsþingið leggur til, að kjörgengir til héraðssamtaka skuli vera kjörnir sveitarstjórnar- menn og varamenn þeirra. Fjórð- ungsþing fellst á, að sveitarstjórnir skuli kjósa fulltrúa til héraðssam- taka á sama hátt og nú er kjörið á fjórðungsþing. 5. Fjórðungsþing bendir á, að Fjórðungssamband Vestfirðinga er nú sameiginlegur vettvangur sveitarstjórna til umræðna um þau málefni, sem eru sameiginleg fyrir fjórðunginn í heild eða viðurkennd framfaramál einstakra svæða. Verkefni þau, sem ætlað er að leysa á héraðsgrundvelli samkv. 96. gr., eru nú að verulegu leyti leyst með starfi Fjórðungssam- bandsins, en hin smærri sameigin- leg verkefni, sem hafa verið leyst innan sýslunefnda, er nú gert ráð fyrir að leysa á héraðsgrundvelli. Flér er um verulega breytingu að ræða, sem virkar neikvætt fyrir nú- verandi svæði, þar sem sýslunefnd- ir eru virkar. Fjórðungsþing bendir á, að sam- vinna sveitarfélaga innan sýslu- nefnda á Vestfjörðum hefur haft verulegt hagnýtt og félagslegt gildi fyrir þau sveitarfélög, sem þar eru þátttakendur. Með því að leggja þennan sam- starfsvettvang niður og flytja hin svæðisbundnu verkefni sýslu- nefndanna á héraðsgrundvöll, er hætt við, að sú eining, sem nú ríkir á þessum vettvangi, falli brott. Fjórðungsþingið bendir því á, að verði til héraðsþinga stofnað eftir tillögum nefndarinnar, þá verði það skýrt greint í lögum, að innan hér- aðsþinganna starfi viðurkenndar Jónas Ólafsson, sveitarstjóri á Pingeyri, ný- kjörinn formaður Fjórðungsþingsins. einingar, t.d. oddvitafundir, fyrir hvert svæði núverandi sýslufé- lagsskipunar, er fjalli um sameigin- leg, svæðisbundin málefni. Rétt væri, að í gegnum þessar einingar væru ákveðin tengsl við umboðs- menn ríkisvaldsins í héraði. 6. Varðandi kostnað af störfum héraðsþinga leggur Fjórðungsþing- ið á það þunga áherzlu, að núver- andi tekjustofnar landshlutasamtak- anna, þ.e. framlag Jöfnunarsjóðs og Byggðasjóðs, yfirfærist til hér- aðsþings og verði eigi skertir frá því, sem þeir eru nú. 7. Fjórðungsþing telur mikil- vægt, að samvinna sveitarfélaga um framkvæmd einstakra verkefna, samanber X. kafla tillagnanna, sé í framkvæmd grundvölluð á samn- ingum. Þingið lítur svo á, að slík samvinna einstakra sveitarfélaga mótist af hagsmunaástæðum, sem eru mjög breytilegar hverju sinni. Og þvf sé eðlilegt, að svæðis- samtök sveitarfélaga, t.d. oddvita- fundir og héraðsþing, gæti þess, að samningsgerð um þessi efni fari fram. Fjórðungsþing ítrekar, að eðli- leg uppbygging héraðsþinga grundvallist á núverandi starfsemi landshlutasamtakanna og því óþarft að heimila með lagaákvæði starfsemi staðbundinna lands- hlutasamtaka. Fjórðungsþing lýsir ánægju sinni með gerð samstarfssáttmála ríkis- stjórnar íslands og Sambands ís- lenzkra sveitarfélaga, en leggur mikla áherzlu á, að samstarf þess- ara aðila fjalli um stjórnunarlegt og fjárhagslegt sjálfstæði sveitarfélag- anna. Lokaorð Fjórðungsþing Vestfirðinga 1984 telur mjög tímabært, að ný sveitarstjórnarlög verði sett og að mestu varði við setningu laganna, að eðlileg framþróun sveitarstjórn- armála sé þar mörkuð. Þingið áréttar það álit sitt, að ný- skipan sveitarstjórnarmála verði grundvölluð á þeim samstarfsvett- vangi, sem þróazt hefur um áraraðir milli sveitarfélaganna og gifturík reynsla er komin á. Jafnframt verði séð svo um í hinni nýju skipan, að samstarfsvettvangi smæstu sveitar- félaganna, þ.e. sýslunefndarfund- unum, sé ekki bara kippt burtu, heldur verði nýr vettvangur tryggð- ur í því formi, sem sveitarfélögin sjálf telja farsælastan. Aðalfundur Samtaka sveitarfélaga í Vesturlandskjördæmi verður haldinn í Stykkishólmi 16. og 17. nóvember Aðalfundur Samtaka sveitarfé- laga í Vesturlandskjördæmi verður haldinn í Hótel Stykkishólmi 16. og 17. nóvember. Atvinnumál á Vestur- landi verða til umræðu svo og tillög- ur endurskoðunarnefndar sveitar- stjórnarlaga. Einnig verður rætt um samstarf um rekstur framhalds- skóla á Vesturlandi. SVEITARSTJÓRNARMÁL 227

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.