Sveitarstjórnarmál - 01.10.1984, Side 41
LANDSHLUTASAMTOKUM
Garðarsson, sveitarstjóra í Ölfus-
hreppi, og stjórn Iðnþróunarsjóðs
hefur kosið Guðmund Sigurðsson,
bæjarfulltrúa á Selfossi, og Ólaf
Elísson, bæjarstjóra í Vestmanna-
eyjum.
Þá var loks í atvinnumálum álykt-
að um nauðsyn þess að vinna mark-
visst að aukinni úrvinnslu úr sjávar-
afurðum og var sérstaklega bent á
vannýtta fiskstofna, s. s. kola,
spærling og gulllax.
Bændur og félagssamtök þeirra
voru hvött til þess að huga vel að
öllum möguleikum á fjölbreytni í
framleiðslu og vinnslu landbúnaðar-
afurða með þarfir og óskir markað-
arins í huga. Fundurinn vakti athygli
á þeirri búseturöskun, sem stórfelld-
ur samdráttur i landbúnaði hefur,
og minnti í því sambandi á þýðingu
niðurgreiðslna í verðlagningu og
neyzlu landbúnaðarvara innan-
lands.
Fundurinn hvatti alla þá, sem að
atvinnumálum starfa, sveitarstjórnir,
atvinnumálanefndir, atvinnurekend-
ur og samtök þeirra og launþega-
samtök að stuðla á allan hátt að
eflingu og framgangi atvinnuupp-
byggingar í kjördæminu. Jafnframt
var bent á, að uppbygging verk-
námsskóla í héraðinu geti stuðlað í
ríkum mæli að eflingu atvinnulífs í
framtíðinni.
Heilbrigðiseftirlit
Matthías Garðarsson, heilbrigðis-
fulltrúi, gerði á fundinum grein fyrir
starfsháttum við heilbrigðiseftirlit á
vegum ríkisins og Ingimar Sigurðs-
son, formaður stjórnar Hollustu-
verndar ríkisins, gerði einnig grein
fyrir nýskipan heilbrigðiseftirlits
samkvæmt lögum um hollustuhætti
og heilbrigðiseftirlit númer 50/1981.
Að tillögu heilbrigðisnefndar
gerði fundurinn ályktun, þar sem
fagnað er framkomnum tillögum til
breytinga á lögunum, sérstaklega
tillögu um heimild til gjaldtöku fyrir
eftirlitsskylda starfsemi. Taldi fund-
urinn eðlilegt, að allt að tveir þriðju
hlutar af kostnaði við heilbrigðiseft-
irlitið greiðist af gjaldskyldum fyrir-
tækjum á svæðinu.
Að tillögu fjárhagsnefndar skor-
aði fundurinn á Alþingi að breyta
lögunum þannig, að ríkissjóður
greiði laun heilbrigðisfulltrúa eins
og önnur laun við heilbrigðisþjón-
ustuna.
Stuðningur við Ferðamáia-
samtök Suðuriands
Að tillögu allsherjarnefndar fund-
arins var samþykkt að hvetja til
átaks til eflingar ferðamálum á
Suðurlandi svo sú atvinnugrein
megi verða til öflugri stuðnings við
afkomu Sunnlendinga.
Samvinna um iandvernd
Fundurinn hvatti sveitarstjórnir til
náinnar samvinnu sín á milli um
uppgræðslu og landvernd. Mikið
hafi áunnizt, m. a. með því að losna
við hrossabeit úr afréttum, auk þess
sem sauðfé hafi fækkað allveru-
lega.
Þá var mælt með því, að efnis-
námur til vegagerðar og bygging-
arframkvæmda á Suðurlandi verði
kortlagðar.
Varnir gegn riðuveiki
Loks mælti fundurinn með ströng-
um varnaraðgerðum vegna riðu-
veiki í sauðfé og tók undir ályktun
Búnaðarfélags Laugardalshrepps,
sem fundinum barst um það efni.
Varnargarðar við
Markarfijót
Af ályktunum fundarins um sam-
göngumál er helzt að nefna sam-
þykkt um byggingu varnargarða við
Markarfljót vegna tjóns þar sl. vetur.
Einnig er lögð áherzla á lagningu
stofnbrauta um byggðarlagið og
skorað á stjórn vegamála að
breikka hin mjóu ræsi, sem eru á
Ölfusvegi milli Hveragerðis og
Þrengslavegar vegna mikillar slysa-
hættu, þegar umferð er beint á
þann veg vegna ófærðar á Hellis-
heiði.
Loks eru gerðar samþykktir um
flugvallamál, póstþjónustu og síma-
þjónustu um hinar búsældarlegu
sveitir Suðurlandsundirlendis.
Stjórn og fuiitrúaráð
í stjórn SASS til eins árs voru
kjörnir Ólafur Elísson, bæjarstjóri í
Vestmannaeyjum, formaður; Óli Þ.
Guðbjartsson, bæjarfulltrúi á Sel-
fossi; Kristinn Jónsson, oddviti
Fljótshlíðarhrepps; Hanna Hjartar-
dóttir, oddviti Kirkjubæjarhrepps,
og Gísli Einarsson, oddviti Biskups-
tungnahrepps.
Aðrir í fulltrúaráð SASS voru
kjörnir bæjarfulltrúarnir Georg Þór
Kristjánsson og Andrés Sigmunds-
son í Vestmannaeyjum, Hafsteinn
Þorvaldsson, bæjarfulltrúi á Sel-
fossi, Auður Guðbrandsdóttir,
hreppsnefndarmaður í Hveragerði;
oddvitarnir Guðrún Inga Sveinsdótt-
ir í Austur-Eyjafjallahreppi og
Magnús Karel Hannesson á Eyrar-
bakka og sveitarstjórarnir Ólafur
Sigfússon í Hvolhreppi, Hafsteinn
Jóhannesson f Mýrdalshreppi hin-
um nýstofnaða og Stefán Garðars-
son í Ölfushreppi.
Endurskoðendur SASS voru
kosnir Steingrímur Jónsson,
hreppsnefndarmaður á Stokkseyri,
og Ólafur Sigfússon, sveitarstj. í
Hvolhreppi.
Þá var á fundinum kosið fimm
manna fræðsluráð, fjórir fulltrúar á
aðalfund Landsvirkjunar, orkunefnd
og samgöngunefnd til þess að
starfa milli aðalfunda auk fimm
manna atvinnumálanefndar, sem
getið er framar f þessari frásögn.
Að loknum fundi bauð Hvol-
hreppur fundarmönnum til kvöld-
verðar.
Að kvöldi fyrri fundardagsins var
haldinn aðalfundur Iðnþróunarsjóðs
Suðurlands, og segir frá sjóðnum
aftan við þessar frásögn.
SVEITARSTJÓRNARMÁL 231