Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 01.10.1984, Page 43

Sveitarstjórnarmál - 01.10.1984, Page 43
LANDSHLUTASAMTOKUM veitingar sjóðsins eru lán vegna húsakaupa og bygginga, véla- kaupa, markaðsmála, iðngarða- bygginga og kaupa á hlutabréfum. Áhættulán hafa fyrst og fremst verið veitt vegna nýiðnaðarathug- ana. Hafa verið veitt áhættulán vegna arðsemiskönnunar á ál- steypu, framleiðslu á C-vítamíni, kísilkarbíð, kertum, frekari úrvinnslu sjávarfangs, t.d. meltu og humar- krafti, ræktun á áli, rækju og humri. Lokaorð Óhætt er að fullyrða, að reynslan af Iðnþróunarsjóði Suðurlands er góð. Ég tel, að ein ástæðan fyrir því, hvað hægt hefur miðað i iðn- þróun sé sú, að menn hafa bara talað um málin, en síðan engin tæki haft til að gera hlutina. Iðnþróunarsjóður á héraðsvísu er tæki, sem getur lyft grettistaki. í núverandi stjórn sjóðsins eiga sæti: Guðmundur Sigurðsson, bæjarfulltrúi á Selfossi, sem er for- maður; Ölvir Karlsson, oddviti Ása- hrepps, varaformaður; Ólafur Elís- son, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, Andrés Sigmundsson, bæjarfulltrúi í Vestmannaeyjum, Vigfús Guð- mundsson, oddviti Mýrdalshrepps; Hafsteinn Kristinsson, oddviti Hvera- gerðishrepps, og Einar Sigurðsson, hreppsnefndarfulltrúi í Ölfushreppi. Reglugerð fyrir Iðnþróunarsjóð Suðurlands er fáanleg hvort heldur er á skrifstofu iðnþróunarsjóðsins, Austurvegi 38, Selfossi, símanr. 99-1350, eða á skrifstofu Sam- bands íslenzkra sveitarfélaga, Háa- leitisbraut 11, Reykjavík, en síma- númer þar er 91-83711. Iþróttahús og félagsheimili í senn? Víða um land eru sveitarfélög að berjast við að koma upp félagsheimili og íþróttahúsi, sem rúma eiga það stærsta, sem þörf er á á hvorum vett- vangi um sig. Þetta eru fjárfrek mann- virki, sem lengi eru að ná því marki að vera talin fullgerð. Allar tilraunir til að draga úr þessari miklu yfirbyggingu sveitarfélaga ættu því að vera góðra gjalda verðar. Með þessum orðum er ætlunin að benda á mjög hagstæða lausn á þessu vandamáli. Sú lausn felst í því, að hægt sé að breyta íþróttahúsi I samkomuhús á stuttum tíma, án þess þó, að viðkvæmir fletir íþróttahússins skemmist við það. Breytingin er sú, að sérhannaðir pallar, sem eru mjög fyrir- ferðarlitlir í geymslu, eru notaðir til að skapa þær hæðir í húsið, sem þurfa þykir hverju sinni. Ein gerð þessara palla eru TRENOMAT-pallarnir. Þeir eru þýzk gæðavara, sem hlotið hefur viðurkenningu þar í landi fyrir gæði og styrkleika. Pallar þessir eru smíðaðir úr hnotu og áli og eru þess vegna léttir og auðveldir í meðförum. Hver pallur er 2 fermetrar að stærð og ber 1000 kg. Á TRENOMAT handvagni er því hægt að geyma 16 palla eða 32 m2 svið, og rétt er að undirstrika, að pall- urinn er aðeins 2 m2 að flatarmáli, eins og áður segir. Pallar þessir koma að sem mestu gagni, séu þeir með hæðarstillandi fót- um. Þá er unnt að velja um allt að timm hæðarstillingar, allt frá 10 að 100 cm. Einnig er unnt að fá pallana í föstum hæðum eða án undirstöðu til að leggja beint á viðkvæm gólf, svo hægt sé að dansa í húsinu. Með pöllum þessum fylgja margs konr aukahlutir til að gera pallana svipmeiri og öruggari, t. d. handrið og tröppur, sviðstjöld, lýsing og sitthvað fleira. Forstöðumenn TRENOMAT-fyrirtækisins taka einnig tillit til mismunandi aðstæðna og óska væntanlegra viðskiptavina. Umboðsmaður TRENOMAT á ís- landi er Rúnar Björgvinsson, sem hef- ur skrifstofu að Laugavegi 21 í Reykja- vík með símanúmer 91-22245. Þar er hægt að fá allar frekari upplýsingar um tæknileg atriði og fleira um þessa palla. Rúnar Björgvinsson sveitarstjórnarmál 233

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.