Sveitarstjórnarmál

Årgang

Sveitarstjórnarmál - 01.10.1984, Side 47

Sveitarstjórnarmál - 01.10.1984, Side 47
INYJUNGAR I ATN/IIMIMLJL.IFIIMLJI 6) Til þess að seiðið taki fyrsta mat- arbitann, þarf að vera svo mikið af örverum umhverfis, að það þurfi varla að gera annað en opna kjaftinn. Ef hrygningartíminn, sem er venjulega styttri, því minni sem hrygningarstofninn er, er ekki á sama tíma og hámarksblómstrun- artími grænþörunga, getur dauða- talan orðið allt að 100% af klöktum seiðum. Sé hins vegar um stóran hrygn- ingarstofn að ræða, sem dreifist niður á marga árganga, tekur hrygningin venjulega lengri tíma, sem leiðir til þess, að eitthvað af hrygningunni hittir á hámarks- blómstrun þörunga. Hér verða menn að hafa í huga, að við slík skilyrði er algengt að finna um eina milljón þörunga- frumna I einum lítra af sjó og allt að 3-4 milljónum. Þá má búast við, að dauðatalan lækkaði e. t. v. niður í u. þ. b. 99,99% af klöktum seiðum. Stór munur er á því og 99,9999% dauða. Þrjár þorskeldisaðferdir, sem hentaó gætu ísienzk- um aóstæðum 1) Ala upp u. þ. b. 10 cm seiði, setja þau í búr á hafsbotni og ala til slátrunar. 2) Sleppa u. þ. b. 10 cm seiðum f lokaðan poll, lón eða fjörð. Með réttum aðgerðum má stýra líf- framleiðslunni þannig, að sem allra mest fari í fóður fyrir eldis- þorskinn. 3) Ala upp 5 til 7 cm seiði í millj- ónatali til að sleppa til uppbygg- ingar á íslenzka þorskstofninum. Botnkvíaeldi Tæknilega séð er eflaust hægt að koma fyrir stóru nótabúri á hafs- botni og losna þannig við öldugang og áhrif veðra og vinda. Og rétt eins og að vitja um net væri hægt að fóðra fiskinn í gegnum slöngur. Það góða við þorskinn í þessu sambandi er, að hann étur upp af botninum, en það gerir laxinn t. d. sjaldan, og að hann étur svo að segja allt, sem að kjafti kemur. Lax er hins vegar matvandur fiskur og getur átt það til að hætta að éta f nokkra daga, ef skipt er um fóð- urtegund. Þess má geta, að tilraunir með að fóðra lax á hafsbotni, sem gerðar voru í rannsóknareldisstöð- inni að Austevoll, leiddu eftirfarandi í Ijós: Laxinn virðist gleypa loft við yfirborð sjávar, þ. e. a. s. setur loft f sundmagann, og stillir þannig þyngd sína í sjónum. Þegar hann hefur ekki lengur aðgang að lofti, þyngist hann og erfiðar til þess að sökkva ekki. Álitið var, að leysa mætti vandann með því að stað- setja hvelfingu með lofti ofan f búr- inu. Það hefur hins vegar ekki verið fullreynt. Stærsta spurningin er sú, bæði varðandi þorsk og lax, hvort fóðrið sé nægilega ódýrt til þess að það borgi sig að fara út í slíkt. Þumal- fingurregla til hjálpar við að svara því er, að ef kg af fóðri er undir 30% af söluverði fisksins/kg, þá er grundvöllurinn kominn. Pollaaóferö Hér er um að ræða sömu aðferð og notuð er við rannsóknir í Hyltro- pollinum, þ. e. a. s. að maðurinn reynir að hafa áhrif á lífframleiðslu pollsins á þann hátt, að sem allra mest fari í mat handa þorskinum, en ekki handa samkeppnisverum og þeim, sem éta þorsk eða þorsk- seiði. T. d., eins og áður er nefnt, drepa allt líf og byrja svo frá grunni og hafa þannig stjórn á, hvaða líf- verur eru til staðar og hve mikið af hverri tegund. Hér mætti hugsanlega auka fram- leiðslu þörunga með áburðardreif- ingu, þ. e. fosfór (fosfat-P043-) og köfnunarefni (nitrat-N03-). Með tiltölulega litlu af fosfór má auka framleiðsluna verulega, en Greinarhölundur, Guðmundur Valur Stefánsson, að starfi í háskótanum í Bergen. Guðmundur heldur hér á vænum laxi úr tilraunaeldisstöð skótans. SVEITARSTJÓRNARMÁL 237

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.