Sveitarstjórnarmál - 27.10.2005, Page 19
Götumynd frá Vestmannaeyjum.
með beinum hætti, og hins vegar síðast-
liðin 15 ár, þegar segja má að því starfi
hafi verið lokið. „Fyrstu árin eftir náttúru-
hamfarirnar einkenndust af gríðarlegum
þrótti og þrautseigju. Mikill kraftur varð til
og menn gengu að verkefni sem í fyrstu
virtist nær vonlaust að Ijúka. En með mik-
illi elju og þrautseigju höfðu menn það
af. Menn urðu að koma hjólum atvinnu-
lífsins af stað á skömmum tíma og einnig
þurfti að byggja mannabústaðina að nýju,
því mörg hús skemmdust eða jafnvel
eyðilögðust. Þessi þróun varð til þess að
bæjarbúum fjölgaði hratt eftir gosið þótt
heildarfjöldinn hafi aldrei náð þeirri tölu
sem hann var áður.
Fyrir gos bjuggu
um 5.300 manns í
Vestmannaeyjum
en íbúafjöldinn er
um 4.200 í dag og
hefur hæst komist í
4.900 á síðustu þremur áratugum."
Félagslegu íbúðirnar þungur
baggi
Bergur segir eina af afleiðingum þessarar
miklu uppbyggingar eftir gosið hafa kom-
ið illa við rekstur Vestmannaeyjabæjar.
Þar á hann við félagslega íbúðakerfið.
„Vegna ótta við húsnæðiseklu eftir gosið
var ráðist í að byggja mikið af félagsleg-
um íbúðum í Vestmannaeyjum. Á þeim
tíma litu menn á þetta sem vænlegan kost
í uppbyggingunni. Með árunum hefur
verið byggt nægilega mikið af húsnæði í
einkaeigu til að anna eftirspurn og þörfin
fyrir þessar íbúðir hefur stöðugt verið að
minnka. í dag eru þessar íbúðir orðnar
þungur baggi á sveitarfélaginu. Halli af
rekstri þeirra er um 70 milljónir króna á
ári og heildarskuldir eru allt að 1.100
milljónir króna. Þessar eignir útheimta
viðhald eins og öll önnur mannvirki og
við erum að ráðast í umfangsmikið við-
haldsverkefni af þeim sökum. Að mínum
dómi er ekki vænlegt að setja þær í sölu
eins og á stendur. Þær myndu ekki seljast
fyrir nema hluta af kostnaði, auk þess
sem sala þeirra myndi skekkja fasteigna-
markaðinn í bæjarfélaginu. Þetta er vandi
sem við sjáum ekki fram úr á þessari
stundu. Félagslegu íbúðirnar eru fyrir
löngu orðnar barn síns tíma með fyrr-
greindum afleiðingum fyrir rekstur sveitar-
félagsins."
Mál málanna
„Hvað brennur á okkur nú? Samgöngu-
málin!" svarar Bergur
stutt og laggott. „Sam-
göngur eru mál mál-
anna í Vestmannaeyj-
um. Þær eru lykill að
nútíma samfélagi. Það
er nauðsynlegt fyrir
okkur að komast á
milli lands og eyja
nánast hvenær sem
er. Þetta er almenn krafa okkar Vest-
mannaeyinga og nú er nefnd á vegum
samgönguráðherra að fjalla um hvernig
framtíðarsamgöngum við eyjarnar verður
háttað."
Bergur segir fjóra kosti vera til athug-
unar. „í fyrsta lagi er um öflugri flugsam-
göngur að ræða. Þá á ég bæði við flug-
samgöngur við höfuðborgarsvæðið og
einnig möguleika á að byggja upp öflugri
flugsamgöngur til Bakkaflugvallar í Land-
eyjum. Þangað er aðeins um fimm mín-
útna flug frá Vestmannaeyjaflugvelli og
þessi samgöngumáti er nú þegar talsvert
notaður af Vestmannaeyingum. í öðru lagi
er til umfjöllunar hvort ráðast eigi í bygg-
ingu nýrrar ferju og
efla þannig ferjusigl-
ingarnar til Þorláks-
hafnar og bæta að-
stöðu um borð. í
þriðja lagi er fjallað
um þann möguleika á
að byggja ferjulægi á
Bakkafjöru og auka
þar með tíðni ferjusigl-
inganna verulega, en
aðeins er um hálfrar
klukkustundar sigling á
milli lands og eyja
miðað við þá land-
töku. Með því móti
gæti skip verið í stöð-
ugum siglingum allan
daginn. Fjórði kostur-
inn og sá umfangs-
mesti er síðan gerð
jarðganga til Vest-
mannaeyja. Verið er
að kanna möguleika á
slíkri framkvæmd og
einnig að meta þjóð-
hagslega hagkvæmni
af slíku samgöngumannvirki. Nú fer að
styttast f niðurstöður nefndarinnar og síð-
an hljóta að hefjast umræður um hvaða
kostir verða taldir vænlegastir."
Sættum okkur ekki við
aðra deild
Bergur segir Vestmannaeyjar mikið
keppnissamfélag og keppnisandann end-
urspeglast í íþróttunum, en einnig í ýmsu
öðru. Öflug þátttaka Vestmannaeyinga í
íþróttastarfi hafi t.d. útheimt 74 milljónir
króna í ferðakostnað á síðustu tveimur
árum. „Þetta er eitt af því sem knýr á um
samgöngubætur þótt margt annað haldist
þar í hendur. Vestmannaeyingar sætta sig
ekki við að vera í öðrum flokki eins og
margoft hefur komið fram í íþróttunum.
Menn sætta sig ekki lengi við að vera í
annarri deild og eru fljótir að rífa sig upp
aftur."
.. .þá lögum við okkur að þínum þörfum!
Vildarpjónusta Sparísjóðslns ■
m fmoatmkm
«r ny persrtnutoa í|arrrvSlaOúna«ii s«n ef oóf- B TOOlrardEMkoitttxnkrtári’
snlöin aA fiörtum og trygg» tramtr- • AíiUOi'«' »r^»l
SPARISJÓÐURINN
mMA 1 ruBSla SpartsjiW nfta A www.spar.ls ■ n»í»a-oðh|»0S VoMom. Puoloðum og l>vm ÚtVi -fyrir þig Og þlna
Sparisjoður Vestmannaeyja Bárustig 15 Simi 488 2100 Fax: 488 2101
„Hver og einn getur útbúið sér sinn eigin kassa
eða fjölskyldukassa og sett í hann hluti sem vekja
upp góðar hugsanir og minningar."
TOLVUMIÐLUN
20
Traust í 20 ár
1985-2005
19