Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 27.10.2005, Blaðsíða 24

Sveitarstjórnarmál - 27.10.2005, Blaðsíða 24
Mæður og börn í Eyjum. samstarf og samvirkni innan málaflokk- anna megi sjá fyrir sér heilsdagsskóla í framkvæmd þar sem nemendur geti m.a. unnið að heimaverkefnum að loknum hefðbundnum skóladegi, einnig stundað íþróttir, listir og önnur áhugamál sem ungmenni leita eftir. Hann telur mjög áhugavert fyrir unga foreldra að koma til Vestmannaeyja og setjast þar að, vegna þess hversu fjölskylduvænt og gefandi umhverfið er. Af þeim sökum hefur sú stefna verið tekin nú að spara ekki við þennan málflokk, þótt stærsti hluti af heildarútgjöldum bæjarfélagsins gangi til hans. Kennarar vanir að takast á við breytingar skóla- og æskulýðsmálum í bæjarfélag- inu. Skólaþróunarsvið kennaradeildar Há- skólans á Akureyri, fengið til þess að ann- ast úttektina skilaði það af sér viðamikilli og greinargóðri skýrslu á síðasta vori. Einn leik- og einn gunnskóli frá og með skólaárinu 2006 til 2007 Andrés segir marga hafa dáðst að þeim kjarki að láta fara fram svona viðamikla úttekt, vegna þess að þessir tveir stóru málaflokkar, skólamálin í heild og íþrótta- og tómstundamálin, hafi aldrei fyrr verið teknir svona saman til athugunar. Að þvf leyti er um tímamótaskýrslu að ræða. Skýrsluhöfundar drógu sérstaklega fram 22 atriði sem þyrfti að skoða og huga að. Eitt af því var að á næstu fimm til sex árum væri veruleg fækkun nemenda fyrir- sjáanleg og bentu þeir á að gaumgæfa kosti þess að sameina grunnskólana undir eina stjórn. Síðan var tekin ákvörðun, af öllum fulltrúum í bæjarstjórn, um að sameina grunnskólana tvo og þrjá leik- skóla í bænum í einn grunnskóla og einn leikskóla frá og með skólaárinu 2006 til 2007. I kjölfarið hafa verið haldnir fjórir opnir fræðslufundir á vegum verkefnis- stjórnarinnar um ýmis málefni sem tengj- ast þessu máli og í framhaldi af því verið haldnir samráðsfundir með bæjarbúum undir stjórn verkefnisstjóra. Auka þarf tengsl málaflokka I stuttu máli eru niðurstöður úttektar- innar þær að nauðsynlegt sé að auka tengsl á milli skólastiganna og einnig á milli skólanna og íþrótta- og æskulýðs- starfseminnar í bænum. í matsskýrslunni er áhersla lögð á mikilvægi kennslu og uppeldis í mjög víðum skilningi. Þar segir að uppeldisstarfið feli í sér menntun og þurfi að vera slík forvörn að einstaklingar sem alast upp njóti sín sem best, lifi heil- brigðu og góðu lífi og rækti með sér sam- stöðu og samkennd. Það ýti undir farsæld og stuðli að því að ungmenni leiti ekki í skuggann, á vit fíkniefrja og annarra vá- gesta. Skýrsluhöfundar segja mikils um vert að samstaða þeirra sem koma að uppeldi; foreldra, skóla og frjálsra félaga, sé sem mest. Bent er á að sérstaklega þurfi að hlú að náms- og starfsskilyrðum barna og ungmenna, s.s. fjölbreytni í námi, kennsluaðferðum og æskulýðsstarfi svo koma megi til móts við öll ungmenni, hvernig sem andlegt eða líkamlegt atgervi þeirra er. Andrés segir að takist að auka Þegar Andrés var inntur eftir þvf hvernig fólk hefði tekið þessum hugmyndum sagði hann að menn skiptist í tvo hópa. „Það er í sjálfu sér eðlilegt því breytingar hafa ávallt í för með sér óvissu og óör- yggi. Hins vegar eru kennarar vanir því að takast á við breytingar og sem fag- menn hafa þeir það hlutverk að búa nem- endur undir líf og starf í þjóðfélagi sem er í sífelldri þróun. Bæjaryfirvöld eru á hinn bóginn viss um að úttektin sem unnin var, muni vel nýtast skóla- og æskulýðsstarfi til hvers konar umbóta- og breytingastarfs er bæta mun náms- og starfsumhverfi ungra Vestmannaeyinga," segir Andrés. Matsskýrsluna má finna í heild sinni á slóðinni www.vestmannaeyjar.is undir Skýrslur og rannsóknir og eins á vef menntamálaráðuneytisins. Á skólabekk í Vestmannaeyjum 24 tölvumiðlun H~Laun ISFS

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.