Sveitarstjórnarmál - 27.10.2005, Síða 23
Tímamótaskýrsla um skóla- og æskulýðsstarf
Unnið er að því að samþætta og tengja starf leikskóla og grunnskóla saman í Vestmannaeyjum auk
íþrótta- og æskulýðsstarfs í bæjarfélaginu. Þetta er gert á grundvelli viðamikillar könnunar og mats-
skýrslu.
Pysjan tengist uppeldi barna í Vestmannaeyjum og nú er búið að gera viða-
mikla úttekt á skólamálunum.
Nýlega kom út viðamikil mats-
skýrsla um skóla-, íþótta- og
æskulýðsmál íVestmannaeyja-
bæ. Einsdæmi má vera að sveit-
arfélag hafi lagt út í jafn viða-
mikla könnun á þessum mála-
flokkum, auk þess sem nýlunda
er að öll skólastigin frá leikskóla
til framhaldsskóla voru skoðuð
saman auk málefna barna og
ungmenna almennt.
Ekki viðunandi árangur
Aðdragandi könnunarinnar var
sá að árangur á grunnskólastig-
inu þótti ekki viðunandi auk þess sem
ungmenni voru að falla úr íþróttum í
meiri mæli en áður. Skýrslan sem kom út
á árinu 2003 benti einnig til þess að liðan
drengja í skólum væri ekki
nógu góð. Nokkrar áhyggjur
höfðu einnig skapast af breyttu
skemmtanamynstri ungmenna,
þótt neysla áfengis og vímuefna
meðal efstu bekkja grunnskóla
væri fyrir neðan landsmeðaltal.
f stuttu máli þróaðist þetta verkefni í að
finna leið til þess að átta sig á hvar skór-
inn kreppti einkum að. Vinnan var miðuð
við að hún næði til mun fleiri þátta og
þar á meðal hvort eitthvað væri í sjálfri
samfélagsgerðinni sem væri þess valdandi
að ekki næðist betri árangur í skólastarf-
inu.
Andrés Sigurvinsson, fram-
kvæmdastjóri fræðslu- og
menningarsviðs Vestmanna-
eyjabæjar, segir það síðan
hafa orðið úr að leita eftir því
við menntamálaráðuneytið að
gerð yrði heildarúttekt á öll-
um skólastigunum í bænum,
samhliða íþrótta- og æsku-
lýðsmálum. Hann kvaðst hafa
notið góðs stuðnings Lúðvíks
Bergvinsson, forseta bæjar-
stjórnar og alþingismanns,
Hann ræddi m.a. við mennta-
málaráðherra um þær hug-
myndir að fara nýjar leiðir í
þessari úttekt. Þar hafi þeir einnig mætt
framsýni Þorgerðar Katrínar Gunnarsdótt-
ur menntamálaráðherra sem vinnur nú að
endurskoðun ýmissa þátta
skólamálanna, þar á meðal
aðalnámskráa og skilum á
milli skólastiganna með það
fyrir augum að byggja upp
svokölluð fljótandi skil þar á
milli. I framhaldinu var gerður
samningur á milli Vestmannaeyjabæjar og
menntamálaráðuneytisins um úttekt á
Ákvörðun hefur verið tekin í verkefnisstjórn að
skrifa skóla- og æskulýðsstefnu bæjarfélagsins í
eitt sameiginlegt stefnuplagg.
FYLGDU MER I EYJAR UT
NÝSKÖPUNARSTOFA
DDðftjp§#w\smoV®stoEæiB[D8D®y|æ[í>ofis