Hús & Búnaður - 01.08.1972, Side 3
Af
hverju
er
Kalli
svona?
Eftir G. W. TARGET
Ef börn þín eru yfirgangssöm, hávær og
þolinmæði þín á þrotum og þér finnst,
að hin löngu skólafrí muni aldrei taka
enda, þá skaltu lesa þessa frásögu. Að
loknum lestri hennar er það von mín, að
hugur þinn fyllist þakklætiskennd.
Það kemur að því í lífi sérhvers manns,
fyrr eða síðar, að allt virðist vera að fara
úrskeiðis. Erfiðleikar og tilgangsleysi lífsins
virðast vera að vaxa þér yfir höfuð. Ef þú
tekur upp krukkuna með ávaxtamaukinu,
missir þú hana í gólfið, sama gegnir um
mjólkurhyrnuna. Rafmagnsöryggin brenna
yfir, þegar sízt varir, það hellirignir hvern
einasta dag og allt gengur á afturfótunum.
Og það er segin saga, að þegar þannig
stendur á, koma börnin heim úr heima-
vistarskóalnum í fríin sín.
G.rein þessi er þýdd úr ensku, en í Eng-
landi gengur mikill fjöldi barna í heima-
vistarskóla, og skólafríum er þar hagað á
annan hátt en títt er á Islandi. Engu að
síður breytir það eigi boðskap greinarinnar
og því þótti ekki ástæða að færa hana yfir
á íslenzka staðhætti.
Alltaf koma þau á fimmtudögum, en
aldrei á mánudögum, sem hentaði vissulega
okkur foreldrunum miklu betur. Og þessi
eilífu frí virðast sífellt vera að aukast og
lengjast.
Það á víst að heita svo, að vesalings
kennararnir þurfi aukna hvíld og hressingu.
Hvað þá um okkur foreldragreyin, sem
aldrei komumst bæjarleið og fáum þar að
auki ekki borgað fy.rir allt barnaamstrið?!
Framh. á bls. 19
. r .jmm jjl Kpr PfJp'' m
ílr k X i II %.J ‘■í S
m 9 iWitAL, yWMi
3